Umhverfisstofnun skoðar umhverfisfyrirtæki ársins

Umhverf­is­stofnun mun taka dreif­ingu Terra á plast­meng­aðri moltu í Krýsuvík til skoð­unar. Land­græðslu­stjóri segir að Land­græðslan beri hluta af ábyrgð í mál­inu en það megi hins vegar ekki verða til þess að stoppa notkun á moltu.

Umhverfisstofnun skoðar umhverfisfyrirtæki ársins
Skoða plast­mengun í Krýsuvík Sigrún Ágústs­dóttir, for­stjóri Umhverf­is­stofn­unar, segir að stofn­unin muni taka mál Terra til skoð­unar. Árni Bragason land­græðslu­stjóri segir að Land­græðslan beri ábyrgð í mál­inu.

Umhverf­is­stofnun mun taka mál sorp­hirðu- og end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Terra, sem dreifði plast­meng­aðri moltu í Krýsuvík, til skoð­unar. Sú skoðun er ekki hafin og óljóst hvað, ef eitt­hvað, verður gert í mál­inu. Land­græðslu­stjóri segir að Land­græða­slan beri ábyrgð á mál­inu eins og allir sem að því komu og aug­ljóst sé að bæta þurfi vinnu­brögð. Hann segir þó algjör­lega nauð­syn­legt að halda áfram að nýta moltu.

Terra vann að því í sumar í sam­starfi við Land­græðsl­una, með stuðn­ingi frá umhverf­is­ráðu­neyt­inu, að græða upp land á 50 hekt­ara svæði í nágrenni Krýsu­víkur með því að dreifa á svæðið moltu. Moltan reynd­ist hins vegar þegar allt kom til alls menguð af plasti og í ljós kom að verk­ferlar við gerð moltunnar reynst alls ófull­nægj­andi, sökum þekk­ing­ar­leysis hjá starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins.

Terra, sem dreifði 1.500 rúmmetrum af plast­meng­aðri moltu á svæð­inu í sumar, var útnefnt „umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins“ af Samtökum atvinn­lífs­ins um miðjan þennan mánuð. Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að fyr­ir­tækið hafi gefið sér mjög trú­verð­ugar skýr­ingar á því sem þar gerð­ist og öllum geti orðið á mis­tök.

Plast­mengunMoltan sem Terra dreifði í Krýsvík var full af plasti, stóru og smáu.

Umhverfisstofnun heimilt að afturkalla ráðgefandi álit

Sigrún Ágústs­dóttir, for­stjóri Umhverf­is­stofn­unar, segir varð­andi þetta mál að litið sé svo á að frétta­skrif um það séu ábend­ing til stofn­un­ar­innar um að mis­brestur hafi orðið á. „Við munum með­höndla þetta eins og aðrar ábend­ingar og tökum málið til skoð­unar. Það er ekk­ert sem liggur fyrir um það núna.“

„Það hefur engin ákvörðun verið tekin um að skoða að aft­ur­kalla, eða aft­ur­kalla, álitið“

Terra hefur starfs­leyfi frá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Hafn­ar­fjarðar, Garða­bæjar og Kópavogs. Sigrún útskýrir að venju­lega fjalli starfs­leyfi um meng­un­ar­varni í fram­leiðslu en almennt ekki um vör­una sjálfa. Mik­il­vægt sé að halda því til haga að það séu fram­leið­endur, fyr­ir­tækin sjálf, sem beri ábyrgð á vör­unni sem þau fram­leiða. „Hitt er annað mál að þegar um er að ræða að það er verið að búa til vöru úr úrgangi þá er gjarnan leitað eftir ráð­gef­andi áliti frá Umhverf­is­stofnun. Það var gert í þessu til­viki, það var gefið út jákvætt álit frá okkur í júní 2018. Það er hins vegar engin eft­ir­fylgni með slíkum álitum, það er að segja stofn­unin hefur ekki eft­ir­lit. Þetta er ekki stjórn­valds­á­kvörðun heldur álit.“

Í umræddu áliti er hins vegar settur fyr­ir­vari, þar sem segir í lokin: Jafn­framt er vakin athygli á því að Umhverf­is­stofnun er heim­ilt að aft­ur­kalla ráð­gef­andi álit ef mengun af notkun á við­kom­andi vöru er meiri en búast mátti við. Sigrún segir að ekki sé búið að taka neinar ákvarð­anir um hvort umrætt ráð­gef­andi álit verði endu­skoðað. „Nú er ábend­ingin komin, með frétt­inni, og það er ekki hafin vinnsla á henni. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um að skoða að aft­ur­kalla, eða aft­ur­kalla, álitið.“

„Það er ekk­ert í kort­unum hjá okkur að beita neinum þving­un­ar­að­gerðum“

Til stendur að eft­ir­lits­maður frá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Hafn­ar­fjarðar, Garða­bæjar og Kópavogs fari og kanni fram­leiðslu Terra á moltu, í þess­ari viku. Hörður Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins segir að heil­brigð­is­eft­ir­litið hefði ekki fengið neinar ábend­ingar um mis­bresti á moltu­fram­leiðslu Terra, fyrr en frétta­flutn­ingur af þessu máli hófst. „Þetta er ákveðið klúður í þess­ari fram­leiðslu og menn eru að reyna að ná utan um það. Mér finnst vera mik­ill vilji hjá fyr­ir­tæk­inu til að ná þessu í við­un­andi horf og auð­vitað styðjum við það að það sé moltu­fram­leiðsla í gangi og að við end­ur­nýtum meira af þessum líf­ræna úrgangi. Það er sam­fé­lags­lega nauð­syn­legt að fara út í þessar aðgerðir. Það er ekk­ert í kort­unum hjá okkur að beita neinum þving­un­ar­að­gerðum, þeir hafa sýnt mik­inn sam­starfsvilja til að ná þessu í lag og við höfum trú á að það náist.“

Mikilvægt að molta sé nýtt

Árni Bragason land­græðslu­stjóri segir í sam­tali við Stundina að ljóst sé að bæta þurfi vinnu­brögð við moltu­gerð­ina. Hann vill þó ekki skella skuld­inni á fyr­ir­tækið Terra, sem hafi brugð­ist við, við­ur­kennt mis­tök og sent mann­skap á svæðið til að tína þar upp plast­rusl á svæð­inu. Mik­il­væg­ast sé að haldið sé áfram að vinna moltu og koma þeim áburð­ar­efnum sem í henni eru í vinnu við upp­græðslu.

„Fyr­ir­tækið við­ur­kenndi að það hefðu orðið mis­tök hjá þeim í vinnslu með hluta af þessu og létu okkur vita af því. Ég veit að Terra fór þarna í Krýsuvík með mann­skap og voru að týna upp. Þetta var ekki mikið dót sem þau týndu upp en allt er auð­vitað of mikið. Auðvitað vitum við það að þetta er því miður aldrei alveg hreint, þessi molta sem við erum að nota. Við höfum reynslu af því. Við höfum verið að nota moltu þar sem hægt hefur verið að fá hana og vanda­málið liggur í því að fólk flokkar ekki nógu vel heima hjá sér. Ég er ekk­ert sáttur við þær aðferðir sem not­aðar eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu við þessa flokkun, sem hugs­an­legur not­andi þessa efnis. Er ekki hægt að tryggja að við fáum betri gæði á þessu hrá­efni sem fer inn í þessa vinnslu?“

„Þetta er lær­dóms­ferli hjá okkur öllum“

Þegar Árna er bent á að Arn­grímur Sverr­is­son, rekstr­ar­stjóri Terra, hafi í sam­tali við Stundina lýst því að ekki hafi verið um mis­tök að ræða, heldur þekk­ing­ar­leysi á aðferðum við moltu­gerð­ina og gera megi ráð fyrir að moltan öll, 1.500 rúmmetrar, hafi verið plast­menguð og plast sé því komið ofan í jörð­ina í Krýsuvík sem ekki sé hægt að tína upp, segir Árni að um lær­dóms­ferli sé að ræða. Þarna hafi í fyrsta skipti verið gerð til­raun með notkun moltu af þessum skala og fylgj­ast eigi með fram­vindu gróð­urs á svæð­inu.

„Mín við­brögð eru þau að við megum ekki láta þetta eyði­leggja fyrir okkur í því að fara að nota þetta efni. Þetta er góð ábend­ing um það að við skulum vanda okkur og við skulum vanda okkur líka sem ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki sem eru að skila inn þessum efnum. Þetta er lær­dóms­ferli hjá okkur öllum í þessu og það er alveg aug­ljóst að það þarf að bæta vinnu­brögð, það er ekki nokkur vafi á því. Ég lít þannig á að við þurfum að halda áfram, hinn kost­ur­inn er að við þurfum að urða þetta allt saman, og það er alveg skelfi­leg sóun ef við erum að urða áburð­ar­efni. Það er það sem býr að baki og ástæðan fyrir því að við viljum að þetta kom­ist í notkun. Það er minn punktur númer 1,2 og 3. Vöndum okkur í öllu ferl­inu, gerum þetta betur. Við lærum að þessum mis­tökum, þessu þekk­ing­ar­leysi ef þú vilt kalla það það. Höldum áfram, lærum af þessu og reynum að auka nýt­ingu á þessum efnum. Ég fagna því að það sé umræða um þetta og gagn­rýni því það þarf að halda mönnum á beinu braut­inni með þetta en sendum líka skila­boð til okkar sem neyt­enda og þeirra sem eru að flokka, vöndum okkur,“ segir Árni.

„Auðvitað berum við okkar ábyrgð í þessu máli eins og allir sem koma að því“

Spurður hvort hann telji að Land­græðslan beri sök í mál­inu svarar Árni því til að hún geri það að hluta. Stofn­unin verði að vera betur vak­andi fyrir þeim efnum sem notuð séu í verk­efnum sem þessum og tryggja að það sé ásætt­an­legt að dreifa þeim. „Auðvitað berum við okkar ábyrgð í þessu máli eins og allir sem koma að því. Við erum að reyna að gera ákveðna til­raun í sam­starfi við þetta fyr­ir­tæki. Við að sjálf­sögðu treystum því að það sé besta fáan­lega tækni og þekk­ing sem er notuð. Okkar starfs­fólk skoð­aði molt­una á staðnum þegar þetta var í vinnslu. Síðan kemur þarna gríð­ar­lega mikið magn, og fyr­ir­tækið hefur sagt að það hafi verið í hluta af vinnsl­unni sem hafi orðið mis­tök. Það eru þær upp­lýs­ingar sem við höfum fengið. Við erum ekki eft­ir­lits­að­ilar að þessu en sem sam­starfs­að­ilar hljótum við að passa upp á það, það er hagur okkar allra. Við lærum af þessu, reynum að gera þetta betur í fram­tíð­inni en ég ítreka það, látum þetta ekki slá okkur út af lag­inu. Hættum að urða verð­mæti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár