Streymi, mannætuplöntur og óralangir útgáfutónleikar

Tón­leik­ar, við­burð­ir og sýn­ing­ar 23. októ­ber til 12. nóv­em­ber.

Streymi, mannætuplöntur og óralangir útgáfutónleikar

Margt er á döf­inni í menn­ing­ar­líf­inu næstu vikur. Athugið að tíma­setn­ingar gætu breyst með stuttum fyr­ir­vara vegna sam­komu­banns og að fjölda­tak­mark­anir geta átt við.

Iceland Airwaves 2020

Hvar? www.dice.fm streymi
Hvenær? 13. & 14. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: 7.250 kr.

Iceland Airwaves hefur verið upp­skeru­há­tíð íslensku tón­list­ar­sen­unnar í rúm­lega tvo ára­tugi. Hátíðin byrj­aði sem eins dags veisla í flug­skýli árið 1999 og stækk­aði uns hún varð fimm daga hátíðin sem lagði miðbæ Reykja­víkur undir sig og fleiri hund­ruð hljóm­sveita komu fram. Hátíðin var stökk­pallur fyrir yngri flytj­endur, og fögn­uður fyrir reynd­ari. Sökum COVID-19 er óger­legt að halda hátíð­ina með þessu sniði, en í stað þess að blása hana alveg af munu sextán af bestu og áhuga­verð­ustu hljóm­sveitum lands­ins koma fram á nettón­leikum. Meðal þeirra eru Ásgeir Trausti, Bríet, Cell7, Daði Freyr, Emilíana Torrini, Hatari, Kælan Mikla, Mammút, Ólafur Arnalds og Of Monsters and Men.

Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2020

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? Til 26. októ­ber
Aðgangs­eyrir: 1.690 kr.

Kvik­mynda­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs eru veitt til að auka áhuga á nor­rænu menn­ing­ar­sam­fé­lagi og sam­starfi um umhverf­is­mál, svo og að veita verk­efnum sem skarað hafa fram úr á sviði lista eða umhverf­is­mála athygli. Fimm myndir frá fimm löndum hafa verið til­nefndar og verða til sýnis í Bíó Paradís til 26. októ­ber.

Sófa kabarett

Hvar? Crowdcast-net­sýn­ing
Hvenær? 24. októ­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.200 kr.

Kabarett-hóp­ur­inn Tút­tífrútt­urnar býður áhorf­endum sýn­ingu til að létta lund­ina á þessum þreyt­andi COVID-tímum. Til sýnis verða valin atriði úr burlesque, dragi, loft­fim­leikum, dað­ur­dönsum, töfra­brögðum og fleiru. Á þess­ari net­sýn­ingu koma fram fjöl­breyttir skemmti­kraftar. Taka skal fram að um er að ræða sýn­ingu sem er ekki ætluð börnum.

Syngjum saman

Hvar? Hann­es­ar­holt
Hvenær? 25. októ­ber & 8. nóv­em­ber kl. 14.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Hann­es­ar­holt hefur hlúð að söng­hefð­inni síð­ast­liðin rúm sjö ár með því að bjóða reglu­lega upp á fjölda­söng í Hljóð­bergi. Textar birt­ast á tjaldi og gestir taka undir, en einnig verður streymt frá við­burð­inum fyrir þá sem ekki eiga heim­an­gengt. Þann 25. októ­ber leiða Marína Ósk og Mikael Máni söngin, og Hera Björk og Benni Sig 8. nóv­em­ber.

Samtal við Lucky 3

Hvar? www.fineart.lhi.is
Hvenær? 30. októ­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Lucky 3 er lista­hópur stofn­aður af Darren Mark, Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo, en þau eru íslenskir lista­menn af fil­ip­p­eyskum upp­runa. Hópurinn hélt sýn­ing­una Lucky Me? síð­ast­lið­inn nóv­em­ber, en þau koma fram í við­tals­s­eríu Lista­há­skóla Íslands. Hægt er að fylgj­ast með streymi af við­tal­inu á net­inu.

Múlinn

Hvar? Harpa
Hvenær? 4. & 11. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Þríeykið í Múlanum hefur verið að í tólf ár, en upp á síðkastið hefur það komið fram í Flóa, sal Hörpu þar sem er nóg pláss og auð­velt að virða fjar­lægð­ar­mörk. Tveir tón­leikar fara fram á næst­unni; á þeim fyrri gengur Haukur Gröndal Múlanum til liðs og á þeim seinni Magnús Jóhann og Skúli Sverr­is­son.

Halloween föstudagspartísýning: Litla hryllingsbúðin

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 30. októ­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.690 kr.

Litla hryll­ings­búðin er einn vin­sæl­asti kvik­mynda­söng­leikur sem gerður hefur verið, en hann er byggður á sam­nefndum Broadway-söng­leik. Nör­da­legur blóma­sali kaupir blóð­þyrsta mannætu­plöntu af kín­verskum götu­sala og hlut­irnir taka strax dýfu niður á við er hann rembist við að stand­ast kröfur plönt­unnar. Fram koma meðal ann­ars Rick Moranis, Steve Martin, James Belushi og Bill Murray.

Tíu tíma útgáfutónleikar Mammúts

Hvar? Gamla bíó
Hvenær? 7. nóv­em­ber kl. 12.00 & 17.30
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Listræna rokksveitin Mammút bar sigur úr býtum í Músiktil­raunum 2004 og hefur komið víða við síðan þá. Nú er fimmta plata sveit­ar­innar vænt­an­leg og því efnir hún til ein­stakra útgáfu­tón­leika. Í tíu klukku­tíma mun sveitin flytja efni af nýj­ustu breið­skífu sinni, Ride the Fire, í bland við valin lög af fyrri plötum.

Fílalag í beinni

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 11. nóv­em­ber kl. 19.30
Aðgang­eyrir: 3.900 kr.

Saman hafa þeir Bergur Ebbi og Snorri Helgason gefið út hlað­varpið Fílalag frá árinu 2014, en í hverjum þætti er eitt valið dæg­ur­lag krufið til mergjar. Nú gefst áhorf­endum færi á að sjá þessa tvo skemmti­legu lista­menn fíla lag á sviði og vera hluti af því að taka upp næsta þátt.

Úff, hvað þetta er slæm hugmynd!

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 31. okt, 7. & 13. nóv. kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 4.400 kr.

Á þess­ari meta­leik­sýn­ingu um sköpun leik­sýn­ingar fær íslenskur leik­ari spuna­leikkonu frá Varsjá og kokk til að reyna að búa til vin­sæla leik­sýn­ingu á pólsku. Saman leiða þau áhorf­endur í gegnum þessa ein­lægu gam­an­sýn­ingu þar sem fjallað er um löngun okkar til að tengj­ast. Sýningin er á pólsku með enskum texta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár