Náði bata frá fíknivanda en óttast um adrif dóttur sinnar á götunni

Móðir segir hér sög­una af því hvernig hún strauk að heiman 12 ára, var vistuð á ung­linga­heim­ilum og leidd­ist út í harða neyslu, missti nýfæddan son sinn og eign­að­ist þrjár dætur með þremur mönnum, en náði sér á strik eftir enn eina með­ferð­ina fyrir þrettán árum og hefur verið alls­gáð síðan. Dóttir hennar er hins vegar á göt­unni.

Náði bata frá fíknivanda en óttast um adrif dóttur sinnar á götunni

Konan sem hér segir frá glímdi lengi við fíkni­vanda. Rétt eins og móðir hennar sem reykti hass. Þótt hún hafi náð sér á strik, sé búin að vera alls­gáð um ára­bil, í góðu starfi og vís­inda­tengdu meist­ara­námi, þá kom það ekki í veg fyrir að dætur hennar fylgdu í fót­spor mæðr­anna. Ein þeirra er enn í neyslu og býr nú á göt­unni. 

„Mamma á allan heiður skil­inn en lífið var töff,“ segir konan sem bjó við mikið rót­leysi í æsku. „Mamma var fátæk og vann mikið. Það var lítið öryggi. Ég var lykla­barn eins og fleiri á þessum árum og við fluttum oft. Mamma faldi neysl­una fyrir mér, en ég var rosa­lega stressað og ótta­slegið barn. Ég hafði miklar fjár­hags­á­hyggjur fyrir hönd mömmu og mig dreymdi um að vinna í lottó­inu til að geta keypt hús og greitt skuld­irnar hennar. Stundum lét ég mömmu ekki vita ef eitt­hvað í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár