Hamingjan er flæði

Vilborg Halldórs­dóttir leikkona segir að hamingjan sé ferðalag. „Ef maður er sorg­mæddur er það að fara út það besta sem maður gerir. Bara til að ganga, það þarf ekkert að vera hratt.“

Vilborg Halldórs­dóttir leikkona hefur vakið athygli frá því í sumar fyrir fallegar hugleiðingar í sjónvarps­þætti Símans, Það er kominn Helgi, sem kenndur er við eiginmann hennar, Helga Björnsson, tónlistar­mann og leikara, sem kemur þar fram ásamt fleiri tónlistar­mönnum. Hún flytur þá ljóðrænan texta sem oft er mikil merking í. Hún segir hér frá því hvað hamingjan er fyrir henni:

„Hamingjan er ferðalag, hún verður til þegar maður fyllir út í sjálfan sig,“ segir hún. „Það er ekki nóg að vera það sem maður er, heldur á að stefna að því að verða það sem maður getur orðið. Breiða út vængina. Dansa á nálaroddi augna­bliksins. Hvíla í endur­tekningunni. Ég upplifi mikla hamingju í leikhúsi þegar ég er að leika og dansa á sama andartaki, þegar ég upplifi að andar­takið er þrungið. Þetta er hið smáa sem jafnframt er hið stóra, hið æðsta. 

Ég elska morgnana þegar allt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita hamingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finnist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki hamingjan að vera alltaf einhvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregðast við ef það finnur fyrir óhamingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlutina. Fjall­göngur hjálpuðu Jóhönnu Fríðu í kjölfar sambands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem farar­stjóri í aukavinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Friðriks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um árabil var hún skotspónn bekkjar­félaga sinna og upplifði sig eina þótt hún ætti vinkonur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við tilfinninga­doðann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risastórt og ótrúlega ógnvænlegt skref,“ segir Ingileif sem er nú hamingju­samlega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár