Gerður Helgadóttir út frá feminískri listfræði

Hanna Guðlaug Guðmunds­dóttir, list­fræðingur, fjallar um ýmsa þætti í listferli Gerðar Helga­dóttur með feminískri nálgun.

Stundin sendir út menningar­viðburði í samstarfi við Menningar­húsin í Kópavogi. Að þessu sinni mun Hanna Guðlaug Guðmunds­dóttir, list­fræðingur, fjalla um ýmsa þætti í listferli Gerðar Helga­dóttur með feminískri nálgun. 

Streymið hefst kl. 16:00 og verður aðgengilegt í þessari frétt og á Facebook-síðum Stundarinnar og Menningar­húsanna í Kópavogi. Upptaka verður tiltæk á sömu stöðum í kjölfarið.

Eftir­farandi er frétta­tilkynning frá Gerða­safni um viðburðinn:

Hanna Guðlaug Guðmunds­dóttir, list­fræðingur, fjallar um ýmsa þætti í listferli Gerðar Helga­dóttur með feminískri nálgun. Erindið fer fram í Salnum í Kópavogi.

Feminísk listfræði (e. Feminist art history) á sér hálfrar aldar sögu. Upphafið má rekja til þeirrar viðleitni að varpa ljósi á list­sköpun myndlistar­kvenna og að sama skapi, þeirrar tilhneigingar að þagga niður framlag þeirra í karllægri listasögu. Í dag er Gerðar minnst sem merkrar myndlistar­konu í íslenskri listasögu sem naut viðurkenningar á erlendum og innlendum vettvangi á starfs­ferli sínum; er hún þá undan­tekningin sem sannar regluna þegar kemur að orðræðu um myndlistar­konur og framlagi þeirra? Hvernig var orðræðan um Gerði Helga­dóttur hérlendis á sjötta áratugnum fram til 1975 ? Var hún álitin „meistari“ á sama hátt og starfs­bræður hennar í mynd­listinni?

Hanna Guðlaug hefur unnið sem list­fræðingur á Ljós­myndasafni Reykja­víkur, kennt listfræði við Háskóla Íslands og Lista­háskóla Íslands, verið fagstjóri í listfræði við myndlistar­deild Lista­háskóla Íslands, ritað greinar og bókar­kafla, haldið fyrir­lestra hérlendis og erlendis og lauk fyrri hluta doktors­prófs í listfræði frá Sorbonne háskólanum í París árið 2013 (DEA). Hanna Guðlaug er nú í doktors­námi við Háskóla Íslands og er viðfangs­efnið að greina opinbera orðræðu um myndlist á Íslandi (frá lokum 19. aldar til 1960), með tilliti til kyngervis og feminískrar (kynja­fræðilegrar) greiningar.

Sköpunar­kraftur og tilrauna­starfsemi Gerðar er leiðar­stef í starfsemi Gerðar­safns sem einnig endur­speglar stöðu þess sem eina listasafn landsins stofnað til heiðurs listakonu.

Erindið er liður í dagskránni Menning á miðvikudögum á vegum Menningar­húsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðar­safn, Náttúru­fræði­stofa, Héraðs­skjalasafn og Salurinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Menning á miðvikudögum

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár