Upplestur: Blóðrauður sjór

Lilja Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur les upp úr nýút­kominni glæpa­sögu sinni, Blóð­rauður sjór.

Bókaupplestri streymt Útsendingin hefst klukkan 12:15 og verður aðgengileg í þessari frétt.

Stundin sendir út menn­ing­ar­við­burði í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi. Að þessu sinni mun rit­höf­und­ur­inn Lilja Sig­urð­ar­dóttir lesa upp úr nýút­kominni skáld­sögu sinni, Blóð­rauður sjór, og ræða um hana við  Maríönnu Clöru Lúth­ers­dóttur, bók­mennta­fræð­ing og leikkonu. 

Streymið hefst í dag kl. 12:15 og er aðgengi­legt á Facebook-síðum Stund­ar­innar og Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi. Upptaka verður til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið. Streymið má nálg­ast hér.

Eft­ir­far­andi er frétta­til­kynn­ing frá Menn­ing­ar­hús­unum í Kópavogi um við­burð­inn:

Lilja Sig­urð­ar­dóttir rit­höf­undur les upp úr nýút­kominni glæpa­sögu sinni, Blóð­rauður sjór, og ræðir verkið við Maríönnu Clöru Lúth­ers­dóttur, bók­mennta­fræð­ing og leikkonu. Við­burð­ur­inn verður sendur út á Facebook-síðu Menn­ing­ar­hús­anna í Kópavogi mið­viku­dag­inn 28.10. kl 12:15.

——————

Um Blóð­rauðan sjó eftir Lilju Sig­urð­ar­dóttur:

Þegar athafna­mað­ur­inn Flosi kemur heim í kvöld­mat er allt á rúi og stúi en Guðrún kona hans horfin. Á eld­hús­borð­inu bíður bréf um að henni hafi verið rænt og ef Flosi greiði ekki him­in­hátt lausn­ar­gjald verði hún drepin. Hann má ekki leita til lög­regl­unnar en eftir króka­leiðum kemst hann í sam­band við Áróru, sem vinnur við að finna falið fé, og Daníel rann­sókn­ar­lög­reglu­mann.

Án þess að nokkuð spyrj­ist út reyna þau í sam­ein­ingu að átta sig á hvað hefur gerst. Getur verið að ránið á Guðrúnu teng­ist alþjóð­legri glæp­a­starf­semi og pen­inga­þvætti – eða er skýr­ingin ef til vill mun nær­tæk­ari?

———————-

Menning á mið­viku­dögum verður næstu vik­urnar helguð umfjöllun um nýút­komnar bækur - fram koma Auður Ava Ólafs­dóttir, Jón Kalman Stef­áns­son, Lilja Sig­urð­ar­dóttir, Ófeigur Sig­urðs­son, Sigríður Hagalín Björns­dóttir og Vilborg Dav­íðs­dóttir. Maríanna Clara Lúth­ers­dóttir ræðir við höf­undana sex á Bóka­safni Kópavogs.

Þætt­irnir verða sendir út á mið­viku­dögum kl. 12:15 í gegnum Facebook-síðu Menn­ing­ar­hús­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Menning á miðvikudögum

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár