Útlendingar eru 40 prósent atvinnulausra

20 prósent atvinnu­leysi er meðal erlendra ríkis­borgara á Íslandi og fer vaxandi. Heildar­atvinnu­leysi á landinu var rúm 9 prósent í ágúst. Staðan verri meðal kvenna en karla. Lagt er til að hækka fjármagn til Þróunar­sjóðs innflytjenda­mála verulega.

Meira atvinnuleysi meðal erlendra kvenna
Meira atvinnu­leysi meðal erlendra kvenna Hlut­falls­legt atvinnu­leysi meðal erlendra kvenna er hærra en meðal erlendra karla. Mynd: Pressphotos

40 prósent þeirra sem eru atvinnu­lausir á Íslandi eru innflytjendur og er atvinnu­leysi meðal hópsins nú um 20 prósent. Heildar­atvinnu­leysi á landinu í ágúst var hins vegar 9,4 prósent, samkvæmt skilgreiningu Vinnumála­stofnunar. Í Reykja­nesbæ nam hlutfall innflytjenda sem fengur fjárhags­aðstoð til fram­færslu tæpum 58 prósentum af heildar­fjölda þeirra sem fengu fjárhags­aðstoð. Sambærileg tala hjá Reykja­víkurborg var 36 prósent. Lagt er til að hækka fjármagn til Þróunar­sjóðs innflytjenda­mála verulega vegna þessa.

Í nýrri stöðu­skýrslu teymis um uppbyggingu félags- og atvinnu­mála í kjölfar Covid-19 er einblínt á stöðu og þjónustu við innflytjendur. Þar kemur fram að innflytjendur séu um 14 prósent íbúa á Íslandi, um 50 þúsund talsins.

Sjö þúsund útlendingar án atvinnu

Samkvæmt tölum Vinnumála­stofnunar verður fjöldi erlendra ríkis­borgara á vinnu­markaði að jafnaði um 38 þúsund á árinu 2020, á milli 18 og 19 prósent alls vinnuafls. Um 7.000 erlendir ríkis­borgarar eru nú án atvinnu. Atvinnu­leysi meðal hópsins er mun meira en meðal lands­manna allra og gerir Vinnumála­stofnun ráð fyrir að meðal erlendra ríkis­borgara verði atvinnu­leysi 17 prósent að jafnaði á árinu 2020. Þá gera spár ráð fyrir að atvinnu­leysi meðal erelndra ríkis­borgara haldi áfram að aukast og verði um 22 prósent í árslok.

Pólverjar eru fjölmennasti erlendra ríkis­borgara hér á landi, líkt og verið hefur, en 1. janúar 2012 voru þeir 44 prósent allra erlendra ríkis­borgara á landinu. Í tölum Vinnumála­stofnunar kemur fram að gert sé ráð fyrir að atvinnu­leysi þeirra á meðal verði um 21 prósent á árinu en atvinnu­leysi annarra erlendra ríkis­borgara stefni í að verða um 11 prósent á árinu 11 prósent.

„Ljóst er því að þrengingarnar núna eru að hafa verri áhrif á stöðu erlendra kvenna en erlendra karla“

Fleiri karlar eru meðal erlendra ríkis­borgara hér á landi heldur en konur, um 30 þúsund á móti um 20 þúsund. Atvinnu­leysi meðal erlendra kvenna hefur hins vegar verið heldur meira síðustu ár heldur en meðal erlendra karla og hefur munurinn aukist í Covid-19 faraldrinum. Vinnumála­stofnun gerir ráð fyrir að atvinnu­leysi erlendra kvenna verði um 20 prósent að jafnaði á þessu ári en ríflega 15 prósent meðal karla. „Ljóst er því að þrengingarnar núna eru að hafa verri áhrif á stöðu erlendra kvenna en erlendra karla á vinnu­markaði, ólíkt því sem var á árunum eftir banka­hrunið þegar staða erlendra karla versnaði nokkuð umfram stöðu kvenna,“ segir í stöðu­skýrslu teymisins.

Teymi um uppbyggingu félags- og atvinnu­mála í kjölfar Covid-19 gerir það að tillögu sinni að fjármagn til úthlutunar úr Þróunar­sjóði innflytjenda­mála verði hækkað verulega í þessu ljósi. Ein af áherslum sjóðsins verði virkni­úrræði fyrir innflytjendur og flótta­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár