Skógar, jöklar, stjörnukerfi Ptólómeusar og stafræn fagurfræði

Tón­leik­ar, við­burð­ir og sýn­ing­ar 11. sept­em­ber til 1. októ­ber.

Skógar, jöklar, stjörnukerfi Ptólómeusar og stafræn fagurfræði

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu vik­urnar. Athugið að tíma­setn­ingar gætu breyst með stuttum fyr­ir­vara vegna sam­komu­banns.


Epicycle

Hvar? Harpa
Hvenær? 23. sept­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 4.500 kr.

Gyða Val­týs­dóttir, hand­hafi Tón­list­ar­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs 2019, kemur fram ásamt tón­list­ar­fólki í fremstu röð á þessum ein­stöku tón­leikum. Hér rennur saman ævafornt og nýtt, heill­andi útsetn­ingar Gyðu á tón­list tón­skálda á borð við galdr­a­nunn­una Hild­eg­ard von Bingen og franska dul­hyggju­mann­inn Olivier Messiaen í bland við magn­aða tón­heima tón­list­ar­fólks eins og Skúla Sverr­is­sonar, Daníels Bjarna­sonar, Kjartans Sveins­sonar og Ólafar Arnalds, sem ásamt fleirum eiga tón­list á nýrri plötu Gyðu, Epicycle II. Tit­ill­inn vísar til stjörnu­kerfis Ptóló­meusar og vel má líkja hljóð­heimi Gyðu við víð­feðmt og til­finn­inga­ríkt sól­kerfi, og efni plöt­unnar við hvernig allir tengj­ast órjúf­an­legum böndum.


Takk Vigdís

Hvar? Midpunkt
Hvenær? Til 27. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Takk Vigdís er nýjasta mynd­list­ar­sýn­ing Loga Bjarna­sonar, en hún sam­anstendur af grind­verki sem var í eigu Vigdísar Finn­boga­dóttur, fyrr­ver­andi for­seta Íslands. Verkið er í senn ádeila og hug­leið­ing að því sem sam­fé­lagið leggur verð­mæti í. Hvort verkið telj­ist til þjóð­minja eða sam­tíma­listar verða gestir að ákveða fyrir sig.


Listþræðir

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 12. sept­em­ber–24. jan­úar 
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Á ald­ar­af­mæli Ásgerðar Búa­dóttur gefst til­efni til að horfa sér­stak­lega til vefn­aðar og þráð­listar í íslenskri sam­tíma­list og þess hvernig lista­menn hafa notað þráð­inn, þennan fjöl­breytta efni­við; spunnið hann, litað, ofið og for­mað eftir öllum kúnst­ar­innar reglum. Á sýn­ing­unni er til sýnis fjöldi lista­verka úr saf­n­eign þar sem unnið er með þráð sem efni­við.


Hyper Cyber

Hvar? Þula
Hvenær? Til 17. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á sýn­ing­unni Hyper Cyber er skjám og tölvu­mynd­máli gert hátt undir höfði. Staf­rænir hlutir eru ein­fald­aðir með því að taka út hið staf­ræna og það eina sem eftir situr er kunn­ug­legt mynd­mál og lýsandi skjáir með enga virkni. Sýningin er rann­sókn Þórdísar Erlu Zoëga á staf­rænni fag­ur­fræði í dag­legu lífi.


Tréð

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 13. & 19. sept­em­ber kl. 13.00 & 15.00
Aðgangs­eyrir: 3.100 kr.

Tréð er ein­læg fjöl­skyldu­sýn­ing um veru­leika flótta­barns­ins Alex, eftir leik­hóp­inn LaLaLab. Sagan fylgir Alex er hann missir fjöl­skyldu sína og heim­ili í stórum jarð­skjálfta og ákveður að bjarga því litla sem hann á eftir, meðal ann­ars sítrónu­tré fjöl­skyld­unnar, og leggur í langt ferða­lag. Á því lendir hann í ýmsum hrak­förum við að finna sér og tré sínu nýtt heim­ili.


Ísland pólerað

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 17., 20. & 25. sept, 4. & 11. okt
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Ísland pól­erað er fyrsta sýn­ing fjöl­menn­ing­ar­leik­fé­lags­ins Reykja­vík Ensemble í fullri lengd, en það var frum­sýnt í mars. Leik­verkið kjarn­ast um sögu pólsks inn­flytj­anda og þær áskor­anir sem fel­ast í því að aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi. Efni­viður sýn­ing­ar­innar er leik­inn á þremur tungu­málum, ensku, íslensku og pólsku, og koma flytj­end­urnir frá ólíkum heims­hornum. 


Borgarhljóðvist í formi ensks lystigarðs

Hvar? Hafn­ar­borg
Hvenær? Til 25. októ­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þessi sýn­ing Davíðs Brynjars Franzsonar beinir athygli okkar að þætti borg­ar­hljóð­vistar í upp­lifun okkar af stað og tíma. Hljóð­rit­anir frá ólíkum tímum dags, úr nán­asta umhverfi hóps alþjóð­legra lista­manna, hafa verið útfærðar af Davíð yfir í þrí­vítt hljóð­um­hverfi sýn­ing­ar­innar í anda hug­mynda­fræði enska lysti­garðs­ins á 18. öld. 


Af fingrum fram: Jónas Sig

Hvar? Salurinn
Hvenær? 16. & 17. jan­úar kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: 5.500 kr.

Fyrrum Sól­strand­argæinn Jónas Sig hóf sól­ó­feril sinn 2007, en hann hefur vakið mikla athygli fyrir bein­skeytta texta og til­finn­inga­þrungna tón­list þar sem er fjallað á opin­skáan máta um þung­lyndi og áskor­anir lífs­ins. Hann mætir í Salinn þar sem hann tekur þátt í spjalltón­leika­röð­inni Af fingrum fram.


Skógar / Jöklar

Hvar? Ljós­mynda­safn Reykja­víkur
Hvenær? Til 15. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Takashi Nakagawa er búsettur í Kyoto, Japan. Hann hefur ferð­ast til um 50 landa með mynda­vél í fartesk­inu. Verk hans hafa birst í alþjóð­legum miðlum og hefur hann unnið til fjöl­margra verð­launa, svo sem Ferða­ljós­mynd­ari árs­ins hjá tíma­rit­inu National Geographic. Takashi Nakagawa finnur list­sköpun sinni helst far­veg í ljós­myndun og með inn­setn­ingum.


RIFF

Hvar? Bíó Paradís, Norræna húsið og www.riff.is
Hvenær? 24. sept­em­ber–4. októ­ber

Alþjóð­leg kvik­mynda­há­tíð Reykja­víkur, RIFF verður haldin í 17. skipti og verða rúm­lega 100 stutt­myndir, heim­ild­ar­myndir og kvik­myndir sýndar í ár, bæði íslenskar og erlendar. Opn­un­ar­mynd hátíð­ar­innar í ár er Þriðji pól­inn eftir þau Anní Ólafs­dóttur og Andra Snæ Magnason sem fjallar um Högna Egilsson og Önnu Töru Edwards sem bæði þjást af geð­hvörfum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár