Samherji beinir myndbandi sínu að börnum

Gera má ráð fyrir því að stór hluti áhorf­enda á mynd­band Samherja þar sem málsvörn þeirra gegn RÚV birt­ist séu börn. Fyr­ir­tækið keypti kost­aðar, sjálf­spilandi birt­ingar á mynd­band­inu tengdar við barna­efni eins og Stubbana á Youtube. Í siða­reglum íslenskra aug­lýs­inga­stofa er ákvæði gegn slíkum birt­ingum.

Samherji beinir myndbandi sínu að börnum
Samherji kaupir birt­ingar Samherji hrósar sér af því að 85 þús­und manns hafi séð síð­asta mynd­band fyr­ir­tæk­is­ins. Það stenst hins vegar ekki skoðun.

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherji keypti aug­lýs­inga­pláss á Youtube og birti þar nýjasta mynd­band sitt þar sem málsvörn fyr­ir­tæk­is­ins er sett fram. Í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á vef­síðu Samherja í gær hreykir fyr­ir­tækið sér af því að 85 þús­und manns hafi horft á mynd­bandið sem ber yfir­skrift­ina Óheið­ar­leg vinnu­brögð Rík­is­út­varps­ins. Meðal þess efnis sem aug­lýs­ing Samherja hefur verið tengd við er barna­efni, til að mynda efni fyrir yngsta ald­urs­hóp­inn eins og bresku teikni­mynd­irnar um Stubbana.

Í yfir­lýs­ingu Samherja segir að ríf­lega 85 þús­und manns hafi horft á umræddan þátt. Sú full­yrð­ing heldur ekki vatni þar eð um er að ræða spil­anir. Í hvert skipti sem keypt sjálf­spilandi aug­lýs­ing Samherja hefur spil­ast í 30 sek­úndur eða meira telst það vera ein spilun. Hafi því til dæmis sama barnið horft á sjálf­spilandi Youtube rás þar sem mynd­band Samherja hefur spil­ast fimm sinnum jafn­gildir það fimm spil­unum. Samherji kýs hins vegar að túlka töl­urnar sem svo að einn ein­stak­lingur hafi horft á þátt­inn miðað við hverja slíka spilun, alls 85 þús­und mann­eskjur. 

Myndband tengt barna­efniSem sjá má er dreif­ing á mynd­bandi Samherja keypt og tengd við efni sem bein­ist beint að börnum.

Fjöldi manns hefur lýst því að síð­ustu daga hafi mynd­band Samherja birst því sem aug­lýs­ing á undan mynd­böndum á Youtube eða það hafi birst sem keypt sjálf­spilandi efni eftir áhorf á ákveðin mynd­bönd en virkni Youtube er með þeim hætti að mið­ill­inn spilar annað efni sjálf­virkt að loknu því mynd­bandi sem fólk hefur valið að horf á.

Samherji og Prumpufólkið

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, birti í gær­kvöldi færslu á Twitter þar sem hann vakti athygli á að aug­lýs­ing Samherja hefði meðal ann­ars birst við áhorf á íslensk barna­lög sem finna má á Youtube. Þannig er mynd­band Samherja tengt við lag tón­list­ar­manns­ins Dr. Gunna um Prumpu­fólkið og einnig við Stubbana á íslensku. Fleiri hafa bent á að börnin þeirra hafi fengið mynd­bandið í spilun þegar horft hafi verið á efni á Youtube.

Í 6. grein laga um eft­ir­lit með við­skipta­háttum og mark­að­setn­ingu segir að aug­lýs­ingar skuli þannig úr garði gerðar að ekki leiki vafi á um að um aug­lýs­ingar sé að ræða. Í 7. grein sömu laga segir að aug­lýs­ingar skuli mið­ast við að börn sjái þær og heyri og megi þær ekki mis­bjóða þeim. Þá verði að sýna sér­staka var­kárni vegna trú­girni barna og ung­linga og áhrifa á þau.

Þá segir í 18. grein siða­reglna Sambands íslenskra aug­lýs­inga­stofa, þar sem fjallað er um börn og ung­linga, að „ekki ætti að aug­lýsa vörur sem ekki henta börnum eða ung­lingum í miðlum sem sér­stak­lega er beint til þeirra.“

Stundin hafði sam­band við umboðs­mann barna til að leita álits emb­ætt­is­ins á mál­inu. Í svörum umboðs­manns kom fram að emb­ættið hefði ekki haft tök á að kynna sér birt­ingu mynd­band­anna í tengslum við umrætt barna­efni og gæti því ekki tjáð sig um þau að svo stöddu. Sömu svör feng­ust hjá Neyt­enda­stofu en ekki náð­ist sam­band við for­mann Fjöl­miðla­nefndar fyrir birt­ingu frétt­ar­innar. 

Uppfært kl. 13:15.

Einar Hugi Bjarna­son, for­maður Fjöl­miðla­nefndar, segir að ekk­ert erindi hafi borist nefnd­inni varð­andi umræddar birt­ingar Samherja. Þá hafi nefndin fyrst nú í morgun orðið áskynja um málið. Spurður hvort nefndin geti tekið mál af þessu tagi fyrir af eigin frum­kvæði svarar Einar Hugi því til að ekk­ert sé því til fyr­ir­stöðu en engin ákvörðun þar um hafi verið tekin. Nefndin komi saman á reglu­bundnum fundi í næstu viku og mögu­lega verði málið skoðað þá.

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár