Verðlagsstofa fann Samherjaskjalið úr Kastljósi

Verð­lags­stofa skipta­verðs hefur fundið þriggja blað­síðna skjal sem starfs­maður vann og skrif­aði ályktun um gögnin. Skjalið er með sama titil og það sem birt var í Kast­ljós­þætti RÚV um Samherja árið 2012. Samherji hefur sakað RÚV um óeðli­leg vinnu­brögð og fölsun gagna.

Verðlagsstofa fann Samherjaskjalið úr Kastljósi
Skjalið í Kast­ljósi Sami tit­ill er á skjal­inu sem Verð­lags­stofa fann og því sem birt var í Kast­ljós­þætt­inum.

Verð­lags­stofa skipta­verðs hefur fundið þriggja blað­síðna skjal sem unnið var af starfs­manni. Hefur það tit­il­inn „Greining á sölu á óunnum karfa sem fluttur var til Þýska­lands á árunum 2008 og 2009“. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stof­unni í dag.

Er þetta sama skjal og birt var í Kast­ljós­þætti 2012. Hefur útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherji ýmist haldið því fram að gögnin væru fölsuð, þau hefðu aldrei verið til eða við þau hefði verið átt. Fjallar fyr­ir­tækið um málið á heima­síðu sinni í dag og birtir skjalið.

„Skjal það sem Rík­is­út­varpið byggði umfjöllun Kast­ljóss á hinn 27. mars 2012 er nú komið í leit­irnar,“ segir á vef Samherja. „Ekki er um skýrslu að ræða heldur þriggja blað­síðna óund­ir­ritað og ódag­sett vinnu­skjal um karfa­út­flutn­ing án efn­is­legrar nið­ur­stöðu. Ekkert í skjal­inu styður þær ásak­anir sem settar voru fram á hendur Samherja í Kast­ljósi.“

Samherji hefur und­an­farið birt mynd­bönd þess efnis að RÚV hafi falsað gögnin eða þau sett fram á vill­andi hátt. Í mynd­bandi með titl­inum „Skýrslan sem hvergi finnst“ sem birt var á sunnu­dag heldur Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Samherja, því fram að vinnu­brögð Kast­ljóss í umfjöllun um fyr­ir­tækið árið 2012 hefðu ekki getað talist eðli­leg.

„Skjalið sem var aðal heim­ild Kast­ljóss við gerð sjón­varps­þátt­ar­ins 27. mars 2012 og ítrekað var vísað til sem „skýrslu Verð­lags­stofu skipta­verðs“ var Excel-skjal sem ekki hafði verið lagt efn­is­legt mat á og ekki hafði að geyma nið­ur­stöðu,“ segir í texta í mynd­bandi Samherja. Nú, aðeins tveimur dögum síðar, segir fyr­ir­tækið að á öðru skjali hafi verið byggt, enda hafi það komið í leit­irnar.

Verð­lags­stofa hafði áður sagst hafa tekið saman upp­lýs­ingar um karfa­út­flutn­ing í Excel-skjali og sent úrskurð­ar­nefnd sjó­manna og útvegs­manna árið 2012. Stang­að­ist þetta alfarið á við full­yrð­ingar sem Samherji setti fram í mynd­bandi þar sem haldið var fram að Helgi Seljan, frétta­maður RÚV, hefði átt við upp­lýs­ing­arnar. Gögnin voru lögð til grund­vallar frétta­flutn­ings RÚV um Samherja árið 2012, sem leiddi til þess að Seðla­bank­inn óskaði eftir hús­leit hjá fyr­ir­tæk­inu vegna gruns um gjald­eyr­is­brot.

Fundu skjalið á aflögðu gagnadrifi

Verð­lags­stofa skipta­verðs sendi frá sér nýja yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í dag. „Við áfram­hald­andi leit í gögnum VSS að upp­lýs­ingum sem varða útflutn­ing á karfa á þessum árum hefur komið í leit­irnar vinnu­skjal með grein­ingu á sölu á óunnum karfa sem fluttur var til Þýska­lands á árunum 2008 og 2009. Vinnu­skjalið sem ber yfir­skrift­ina: „Greining á sölu á óunnum karfa sem fluttur var til Þýska­lands á árunum 2008 og 2009“ var tekið saman af þáver­andi starfs­manni VSS og sent úrskurð­ar­nefnd í apríl 2010. Við­kom­andi starfs­maður lét af störfum hjá Verð­lags­stofu vorið 2010.“

„Í lok skjals­ins dregur þáver­andi starfs­maður VSS ályktun af þessum gögnum í nokkrum línum“

Skjalið er þrjár blað­síður, ódag­sett og óund­ir­ritað og inni­heldur töflur og tölu­legar upp­lýs­ingar um útflutn­ing á óunnum karfa til Þýska­lands árin 2008 og 2009, um með­al­verð og magn í beinni sölu og á mark­aði inn­an­lands þessi ár ásamt yfir­liti um útgefin með­al­við­mið­un­ar­verð á karfa hjá VSS eftir mán­uðum árin 2008 og 2009. „Í lok skjals­ins dregur þáver­andi starfs­maður VSS ályktun af þessum gögnum í nokkrum línum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þriggja blað­síðna skjalSkjalið sem Kastljós kall­aði „skýrslu Verð­lags­stofu skipta­verðs“ er merkt sem „grein­ing“.

„Ástæða þess að ekki var getið um til­vist þessa skjals í fyrri yfir­lýs­ingu VSS frá 12. ágúst er að það fannst ekki fyrr en nýlega þar sem það var vistað utan hefð­bund­ins skjala­kerfis VSS aflögðu gagna­drifi sem núver­andi starfs­menn hafa fæstir aðgang að.“

Sögðu fréttaflutning RÚV villandi

Helgi Áss Grét­ars­son, lög­fræð­ingur og stór­meist­ari í skák, var feng­inn til við­tals í nýjasta mynd­bandi Samherja. „Skýrsla inni­felur venju­lega í sér sam­kvæmt hefð­bundnum skiln­ingi ann­ars vegar upp­lýs­ingar um stað­reyndir, til dæmis tölu­legar upp­lýs­ingar, og hins vegar mat þess sem semur skýrsl­una um hvað sé satt og rétt og hvað er það sem skiptir máli,“ sagði Helgi Áss í þætt­inum.

„Þú ert að gefa í skyn að gagn sem þú ert að vinna með er sterkara sönn­un­ar­gagn en til­efni er til að ætla“

Vísaði hann í að Verð­lags­stofa hafi ein­ungis fundið Excel-skjal. „En þegar þú setur töl­urnar fram eins og var gert í þessum Kast­ljós­þætti með þeim hráa hætti sem gert var að mínu mati, þá ertu að gefa vill­andi mynd af mál­inu og líka með hvaða hætti í raun og veru þú ert að vísa til sönn­un­ar­gagns­ins,“ sagði hann. „Þú ert að gefa í skyn að gagn sem þú ert að vinna með er sterkara sönn­un­ar­gagn en til­efni er til að ætla.“

Björgólfur Jóhanns­son for­stjóri bætti því við í mynd­band­inu að það rýrði trú­verð­ug­leika RÚV að áhöld væru um hvaða gögn væri verið að fjalla um í þætt­inum. Nú er hins vegar ljóst að Kastljós byggði umfjöll­un­ina á skjal­inu sem birt var í þætt­inum, sem merkt var sem grein­ing og hafði að geyma kafla í lok þess þar sem upp­lýs­ing­arnar voru dregnar saman.

Í þeim kafla fjallar starfs­mað­ur­inn um gögnin. „Í ljós kemur að Samherji hf. er að greiða lægstu verðin en það fyr­ir­tæki er eina fyr­ir­tækið sem er að selja karfa í eigin vinnslu í Þýska­landi það er um er að ræða beina sölu,“ segir í lok skjals­ins. „Þau verð eru þó langt yfir þeim verðum sem feng­ust fyrir karf­ann í beinni sölu inn­an­lands. Ef árin eru borin saman þá hafa þau verð sem Samherji hf. er að greiða hækkað veru­lega milli ára miðað við verð á upp­boðs­mark­aði í Þýska­landi.“

Hélt Kastljós því fram í þessu sam­hengi að Samherji hefði selt dótt­ur­fé­lagi sínu karfa á und­ir­verði. Skatta­lög hafi lagt bann við því að við­skipti tengdra aðila færu fram á lægra verði en almennt tíðkast. Lög um gjald­eyr­is­varnir væru sam­hljóða og í kjöl­far þess að hafa fengið gögnin í hend­urnar hafi gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hafið rann­sókn sem leiddi til hús­leit­ar­innar hjá Samherja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár