Geðheilbrigði á tímum COVID

Stundin ræddi við Auði Axels­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Hug­arafls, um geð­heil­brigð­is­mál á tímum ann­arrar bylgju COVID. Auður segir sam­fé­lagið vel geta tek­ist á við and­legar hliðar vand­ans í gegnum fjöl­breytt, mann­eskju­leg og vald­efl­andi úrræði. Hún varar á sama tíma við óhóf­legri sjúk­dómsvæð­ingu og lyfja­gjöf við eðli­legum til­finn­ingum sem vakna í kjöl­far veirunnar.

Geðheilbrigði á tímum COVID
Auður Axels­dóttir Mynd: Heiða Helgadóttir

Stundin ræddi við Auði Axels­dóttur, fram­kvæmda­stjóra geð­heil­brigð­is­sam­tak­anna Hug­arafls, um geð­heil­brigði á tímum COVID. Stefna Hug­arafls byggir á því að hver sem er geti leitað þangað á eigin for­sendum, óháð grein­ingum og til­vís­unum. „Við höfum ótrú­lega mögu­leika til þess að mæta þessu, til þess að spyrja okkur hvernig við getum gripið fólk úti í sam­fé­lag­inu áður en fer að halla of mikið undan fæti,“ segir hún um getu sam­fé­lags­ins til að takast á við and­legar afleið­ingar far­ald­urs­ins. 

Auður segir fólk sem leitar til Hug­arafls ganga inn í sam­fé­lag við aðra í stað þess að ganga í gegnum ferlið ein­samalt and­spænis sér­fræð­ingi sem hittir það ekki á jöfnum kili. „Glöggir heim­il­is­læknar vísa gjarnan á okkur, því þeir sjá að það er strax eitt­hvað sem fer í gang. Ein­stak­lingur sem kemur hingað kemur strax inn í sam­fé­lag þar sem hann verður hluti af heild, í stað þess að fara út í bæ, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár