Eyða þrefalt meira í innlendar auglýsingar en Google Ads

Aug­lýs­ingar Reykja­vík­ur­borgar á störfum í skólum eru helst keyptar í inn­lendum miðlum. Eyþór Arnalds borg­ar­full­trúi hefur gagn­rýnt að störfin séu aug­lýst og það á erlendum vef­síðum.

Eyða þrefalt meira í innlendar auglýsingar en Google Ads
Grunn­skóli Reykja­vík­ur­borg aug­lýsir nú störf við grunn- og leik­skóla borg­ar­innar. Mynd: Kristinn Magnússon

Skóla- og frí­stunda­svið greiðir þrjár krónur fyrir aug­lýs­ingar í íslenskum miðlum fyrir hverja eina sem greidd er til Google. Átta millj­ónum hefur verið eytt í atvinnu­aug­lýs­ingar í íslenskum miðlum það sem af er ári sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Reykja­vík­ur­borg.

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn og einn eig­enda Morg­un­blaðs­ins, gagn­rýndi á dög­unum að borgin skyldi aug­lýsa laus störf og það á vef­síðu CNN, en aug­lýs­ingin er keypt hjá Google Ads sem birtir aug­lýs­ingar á ýmsum síðum sem neyt­endur á ákveðnu land­svæði heim­sækja.

„Á sama tíma og fyr­ir­tækin í borg­inni þurfa að segja upp fjölda starfs­manna er borgin sjálf að aug­lýsa eftir starfs­mönnum,“ skrifar Eyþór. „Það vekur ekki síður athygli að verið er að kaupa aug­lýs­ing­arnar meðal ann­ars til birt­ingar á erlendri frétta­veitu. Hefði ekki verið nær að verja skatt­fénu í inn­lenda frétta­miðla? Fjár­festum inn­an­lands. Verjum störfin.“

Sigrún Björns­dóttir hjá upp­lýs­inga­sviði Reykja­vík­ur­borgar segir að aug­lýs­inga­her­ferð skóla- og frí­stunda­sviðs, sem ber heitið Framtíð lands­ins, muni kosta um 4 millj­ónir króna frá byrjun júní til loka sept­em­ber. „Um 23% þeirrar upp­hæðar fer í Google-aug­lýs­ingar og 77% til íslenskra miðla,“ segir hún. „Þar að auki hefur skóla- og frí­stunda­svið frá árs­byrjun 2020 greitt um 8 millj­ónir í atvinnu­aug­lýs­ingar í íslenskum miðlum.“

Þau störf sem skóla- og frí­stunda­svið aug­lýsir um þessar mundir sam­kvæmt vef Reykja­vík­ur­borgar eru störf kenn­ara, stuðn­ings­full­trúa, frí­stunda­leið­bein­enda og skóla­liða. „Stefna sviðs­ins er að birta aug­lýs­ingar þar sem það nær til þeirra sem lík­legir eru til að sækja um störf hjá svið­inu,“ segir Sigrún. „Auglýst er í þeim miðlum sem mark­aðs­rann­sóknir sýna að þeir mark­hópar sem sviðið vill ná til fylgist með. Unnið er að þess­ari aug­lýs­inga­her­ferð í sam­starfi við aug­lýs­inga­stofu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár