Tamson „Fitty“ Hatuikulipi átti skilið að fá greiðslu fyrir að tengja kvótaeigendur við sjávarútvegsfyrirtækið Samherja og koma á samningum þar á milli, að sögn lögmanns hans og Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu.
Rætt var um beiðni þeirra um lausn gegn tryggingu fyrir dómstóli í Windhoek, höfuðborg Namibíu, í vikunni. Hefur blaðið The Namibian greint frá framvindunni.
Eins og Stundin, Kveikur, Al Jazeera og Wikileaks greindu frá í fyrra sýna gögn hvernig Samherji greiddi skipulega hundruð milljóna króna í mútur til stjórnmálamanna og tengdra aðila í Namibíu, til að fá hestamakrílkvóta sem lagði grunn að stórum hluta hagnaði félagsins undanfarin ár. Hagnaðurinn og mútugreiðslurnar runnu í gegnum net skattaskjóla.
Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, og Fitty, tengdasonur hans, eru meðal þeirra sem hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins. …



















































Athugasemdir