„Ég syng oft í fjósinu“

Hlynur Snær Theo­dórs­son er bóndi á bænum Voð­múla­stöðum í Rang­ár­valla­sýslu. Hann og eig­in­kona hans eru með um 50 kýr og 25 kindur og auk þess syngur hann í karla­kór, er í söng­hópnum Öðling­unum og svo kemur hann reglu­lega fram sem trú­bador, hann kemur stundum fram með dætrum sínum og/eða hljóm­sveitum. Segja má að þetta sé auka­bú­grein sem sé mjög frá­brugðin störfum bónd­ans.

„Ég syng oft í fjósinu“
Kýrnar hlusta Hlynur Snær syngur gjarna þegar hann er að gefa kúnum eða dunda sér í fjós­inu og segir að það sé eins og dýrin leggi við hlustir.

Hlynur Snær Theo­dórs­son er frá Hvols­velli. Hann flutti til Reykja­víkur eftir grunn­skóla­nám og lærði bif­reiða­smíði við Iðn­skól­ann í Reykja­vík. Hann vann síðan við bíla­rétt­ingar í fjögur ár en heima­slóð­irnar tog­uðu í hann og flutti hann aftur á Hvols­völl og vann sem rútu­bíl­stjóri hjá Aust­ur­leið í um fimm ár. Það var svo í lok árs 1996 sem hann og eig­in­kona hans, Guðlaug Björk Guð­laugs­dóttir, tóku við búi for­eldra Guð­laugar. Hjónin eru nú með um 50 kýr og 25 kindur.

Náttúran heillar. „Það er þetta frjáls­ræði sem heillar. Það er nátt­úru­feg­urðin hérna í kring og það er eins og maður sé kóngur í ríki sínu. Útsýnið frá sveita­bænum er stór­kost­legt. Vest­manna­eyjar blasa við í suðri, Eyja­fjalla­jök­ull gnæfir í allri sinni dýrð í austri sem og Tind­fjöll og Fljóts­hlíðin í norðri.“

Réttir og kjötsúpa

Tón­list­ar­á­hug­inn gerði snemma vart við sig. „Eitthvað var ég í tón­list­ar­skóla og lærði á hljóm­borð og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár