Í beinni klukkan 11: Opið samtal með Bjarna Karlssyni

Stund­in sýn­ir í dag beint streymi á veg­um Hug­arafls þar sem Bjarni Karlsson, doktor í sið­fræði og prestur við sál­gæslu­stof­una Haf, mun svara spurn­ing­um áhorf­enda. Út­send­ing­in hefst klukk­an 11.

Stundin sýnir í dag beint streymi á vegum Hug­arafls þar sem Bjarni Karlsson, doktor í sið­fræði og prestur við sál­gæslu­stof­una Haf, mun svara spurn­ingum áhorf­enda. Útsend­ingin hefst klukkan 11 og verður birt í þess­ari frétt og á Facebook-síðum Hug­arafls og Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá Hug­ar­afli um við­burð­inn:

Hvað liggur þér á hjarta í tengslum við geðið, til­finn­ingar og almenna líðan á þessum tímum? Það getur skipt sköpum að ræða málin og þannig getum við stutt hvert annað við að kom­ast í gegnum þetta tíma­bil saman.

Við í Hug­ar­afli höfum boðið íslensku sam­fé­lagi upp á afslappað sam­tal um geð­heilsu, til­finn­ingar og önnur tengd mál­efni á föstu­dögum kl. 11 níu vikur í röð og höldum ótrauð áfram í þess­ari viku. 

Við munum senda beint út hér á facebook, föstu­dag­inn 29. maí kl. 11, þar sem Bjarni Karlsson, doktor í sið­fræði og prestur við sál­gæslu­stof­una Haf, mun leit­ast við að svara spurn­ingum ykkar.  Hér gefst tæki­færi til að senda inn spurn­ingar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Streymi Hugarafls

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár