Streymi Hugarafls: Hugaraflsfélagar svara spurningum

Stundin sýnir í dag beint streymi á vegum Hug­arafls þar sem Fanney Björk Ing­ólfs­dóttir og Svava Arn­ar­dóttir Hug­arafls­fé­lagar svara spurn­ingum áhorf­enda. Út­send­ing­in hefst klukk­an 11.

Stundin sýnir í dag beint streymi á vegum Hug­arafls þar sem Fanney Björk Ing­ólfs­dóttir og Svava Arn­ar­dóttir Hug­arafls­fé­lagar svara spurn­ingum áhorf­enda. Útsend­ingin hefst klukkan 11 og verður birt í þess­ari frétt og á Facebook-síðum Hug­arafls og Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá Hug­ar­afli um við­burð­inn:

Hvað liggur þér á hjarta í tengslum við geðið, til­finn­ingar og almenna líðan á þessum tímum? Það getur skipt sköpum að ræða málin og þannig getum við stutt hvert annað við að kom­ast í gegnum þetta tíma­bil saman.

Við í Hug­ar­afli höfum boðið íslensku sam­fé­lagi upp á afslappað sam­tal um geð­heilsu, til­finn­ingar og önnur tengd mál­efni á föstu­dögum kl. 11 átta vikur í röð og höldum ótrauð áfram í þess­ari viku. 

Við munum senda beint út hér á facebook, föstu­dag­inn 22. maí kl. 11, þar sem Fanney Björk Ing­ólfs­dóttir og Svava Arn­ar­dóttir Hug­arafls­fé­lagar munu leit­ast við að svara spurn­ingum ykkar. Fanney og Svava eru báðar með per­sónu­lega reynslu af and­legum áskor­unum, sitja í stjórn Hearing Voices Iceland og leiða jafn­ingja­hóp fyrir fólk sem heyrir raddir, sér sýnir eða lifir með öðrum tengdum upp­lif­unum. Fanney er einnig í stjórn Hug­arafls og með BA gráðu í sál­fræði. Svava starfar sem iðju­þjálfi hjá Hug­ar­afli. 

Hér gefst tæki­færi til að senda inn spurn­ingar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Streymi Hugarafls

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár