Lagabreyting girðir fyrir veika von: Börnin sem hefði verið vísað burt

Mörg þeirra barna sem fengið hafa alþjóð­lega vernd hér á landi á und­an­förnum árum hefðu ekki fengið að setj­ast að hér, væri fyr­ir­huguð laga­breyt­ing orðin að veru­leika. Rauði kross­inn á Íslandi ótt­ast að með laga­breyt­ing­unni fjölgi rétt­inda­lausu fólki hér sem hefur ekki kenni­tölu, má ekki vinna og hefur tak­mark­aðan aðgang að heil­brigð­is­kerf­inu.

Lagabreyting girðir fyrir veika von: Börnin sem hefði verið vísað burt
Börn í við­kvæmri stöðu Maní, Hanye Maleki, Zainab Safari, Sarwari-bræður og fjöl­skyldur þeirra fengu öll efn­is­með­ferð í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar um mál þeirra. Eftir breyt­ing­una sem nú stendur til að gera á lögum fengju börn í sömu stöðu ekki efn­is­með­ferð, þó þau hefðu verið lengi á Íslandi.

Á und­an­förnum árum hafa mál flestra þeirra fjöl­skyldna sem fengið hafa synjun um efn­is­með­ferð hér á landi, á grund­velli þess að þær hafi nú þegar alþjóð­lega vernd í Grikk­landi, runnið út á tíma. Það hefur orðið þeim til happs, því það þýddi að tólf mán­uðir liðu frá því að þær sóttu um vernd hér þar til að kom að þeim degi að senda átti þær úr landi, sem leiddi sam­kvæmt lögum til þess að þær fengu efn­is­með­ferð hér á landi og í kjöl­farið alþjóð­lega vernd hér. Þetta gildir meðal ann­ars um margar af þeim barna­fjöl­skyldum sem verið hafa til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. Nær­tæk­asta dæmið er mál íranska trans­drengs­ins Maní, en einnig má nefna mál barn­anna Hanye Maleki, Zainab Safari, Sarwari-bræðra og fjöl­skyldna þeirra. Fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á lögum um útlend­inga girða fyrir þann mögu­leika að börn í sam­bæri­legri stöðu og þau voru í fengju efn­is­lega með­ferð hér, þrátt fyrir að hafa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár