Stuðningur við stjórnvöld fer aftur minnkandi

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dregst saman um fimm pró­sentu­stig milli kann­ana, eftir að hafa auk­ist veru­lega í kjöl­far þess að COVID-19 far­ald­ur­inn hófst. Sós­í­alista­flokk­ur­inn eini flokk­ur­inn sem bætir mark­tækt við sig milli kann­anna MMR.

Stuðningur við stjórnvöld fer aftur minnkandi
Tíð­inda­lítið Litlar breyt­ingar eru á fylgi stjórn­mála­flokk­anna.

Ekki eru mark­tækar breyt­ingar á fylgi stjórn­mála­flokka milli kann­ana MMR, fyrir utan að fylgi Sós­í­alista­flokks­ins eykst mark­tækt. Flokk­ur­inn mælist nú með 5,6 pró­senta stuðn­ing en mæld­ist með 3,4 pró­senta stuðn­ing fyrir tíu dögum. Slíkt fylgi myndi duga flokknum til að fá kjörna full­trúa á Alþingi en flokk­ur­inn á ekki full­trúa þar. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með mest fylgi á lands­vísu, 22,7 pró­sent sam­an­borið við 23,5 pró­sent 7. apríl síð­ast­lið­inn. Sam­fylk­ingin kemur næst á eftir, með 13,1 pró­sent en mæld­ist síð­ast með 14,1 pró­sent. Píratar eru þriðji stærsti flokk­ur­inn og standa því sem næst í stað, mæl­ast nú með 12,3 pró­senta stuðn­ing sem er 0,1 pró­sentu­stigi minna en síð­ast. Þessar fylg­is­breyt­ingar eru allar innan vik­marka

Fylgi Vinstri grænna mælist nú 1,9 pró­sentu­stigi lægra en síð­ast, er nú 10,4 pró­sent. Viðreisn nýtur stuðn­ings 10 pró­senta aðspurðra en mæld­ist síð­ast með 9,6 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokkur nýtur stuðn­ings 9,8 pró­senta aðspurðra, einu pró­sentu­stigi meira en í síð­ustu könnun. Fylgi Mið­flokks­ins mælist nú 9,5 pró­sent en mæld­ist síð­ast 10,7 pró­sent. Allar þessar fyg­is­breyt­ingar eru innan vik­marka, sem og breyt­ingar á fylgi Flokks fólks­ins, sem nú mælist með 4,7 pró­sent fylgi en mæld­ist síð­ast með 3,4 pró­senta fylgi. Mjög litlu munar þó að um mark­tæka breyt­ingu sé að ræða í því til­felli. 

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mæld­ist nú 51,1 pró­sent og minnkar um rúm fimm pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun, þar sem hann mæld­ist 56,2 pró­sent.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 15. til 17. apríl og svör­uðu 1.051 ein­stak­lingur henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár