Finnar opna birgðageymslurnar í fyrsta sinn

Þeir voru sagðir gam­al­dags og ofsóknaróðir en búa nú að því að eiga umtals­verðar birgðir and­lits­gríma, lyfja og lækn­inga­tækja. Finnar hafa haldið áfram að safna í neyð­ar­birgða­geymslur sínar, nokkuð sem flestar þjóðir hættu að gera þegar kalda stríðið leið undir lok.

Finnar opna birgðageymslurnar í fyrsta sinn
COVID-19 Frá mið­borg Helsinki, höf­uð­borgar Finn­lands. Styttan af smið­unum þremur sem er eitt fræg­asta kenni­leiti borg­ar­innar ber nú merki COVID-19 far­ald­urs­ins. Smið­irnir bera and­lits­grímur og lumbra á kór­óna­veirunni sem veldur COVID-19. Mynd: Shutterstock

Neyð­ar­birgða­geymslur Finn­lands koma nú að góðum notum, en þar geyma finnsk stjórn­völd meðal ann­ars gríð­ar­legt magn af and­lits­grímum, lyfjum og ýmsum lækn­inga­vörum. Safnað hefur verið í geymsl­urnar og birgð­irnar end­ur­nýj­aðar eftir þörfum allt frá lokum heim­styrj­ald­ar­innar síð­ari.

Á tímum kalda stríðs­ins komu margar vest­rænar þjóðir sér upp birgðum af því sem talið var vera nauð­syn­legt til að halda land­inu gang­andi í nokkra mán­uði, kæmi til átaka eða ein­angr­unar lands­ins. Þessar birgðir voru meðal ann­ars mat­vara, lyf og elds­neyti og þegar leið undir lok kalda stríðs­ins hættu all­flestar þjóðir slíkri birgða­söfnun.

En ekki Finnar. Þeir við­héldu þess­ari birgða­stöðu sinni og nú býr finnska þjóðin að því að eiga vel búnar birgða­geymslur sem koma sér vel í COVID-19 far­aldr­inum.  Þar eru lyf og lækn­inga­vörur, elds­neyti, korn, tæki og bún­aður til land­bún­aðar og efni­viður til að smíða vopn. Og nú hefur dyrum geymsl­unnar verið lokið upp, birgð­irnar not­aðar í fyrsta skiptið síðan byrjað var að safna þeim og fyrir skömmu var and­lits­grímum úr geymsl­unum dreift á milli spít­ala í Finn­landi. 

Sagðir gamaldags og með ofsóknaræði

Fjallað er um þetta á vef­síðu norska dag­blaðs­ins Aften­posten. „Á meðan flest lönd, Noregur þar með tal­inn, hættu að safna slíkum lager héldu Finnar áfram eins og ekk­ert hefði í skorist,“ segir Magnus Håkenstad, sem er sér­fræð­ingur í mál­efnum kalda stríðs­ins hjá rann­sókn­ar­stofnun um varn­ar­mál í Noregi. „Finnar hafa verið skot­spónn háðs og spotts í gegnum tíð­ina. Þeir hafa verið kall­aðir gam­al­dags og með ofsóknaræði, en núna sjáum við að þetta var ekki svo galið hjá þeim eftir allt saman,“ segir hann. 

„Finnar hafa verið skot­spónn háðs og spotts í gegnum tíð­ina. En núna sjáum við að þetta var ekki svo galið hjá þeim eftir allt saman“

Í grein Aften­posten segir að til­vist birgða­geymsl­anna sé umlukin tals­verðri leynd. Hvar þær séu og hversu mikið sé í þeim sé rík­is­leynd­ar­mál. Það eina sem hefur verið gert opin­bert er að geymsl­urnar eru stað­settar víða um land.

Í erfðaefni Finna að vera við öllu viðbúnir

The New York Times fjallar einnig um þessar birgða­geymslur Finna. Í grein blaðs­ins er þessi staða sögð öfunds­verð og Finnar eru þar kall­aðir „The prepper nation of the Nordics“, eða dóms­dags­spá­menn Norð­ur­land­anna, en „prepper“ er notað um fólk sem eru ávallt und­ir­búið fyrir dóms­dag af ein­hverju tagi. 

Með grímuNeyð­ar­birgða­geymslur Finn­lands koma nú að góðum notum, en þar geyma finnsk stjórn­völd meðal ann­ars gríð­ar­legt magn af and­lits­grímum, lyfjum og ýmsum lækn­inga­vörum.

„Finnar eiga löng landa­mæri að Rúss­landi. Þeir reiða sig á sam­göngur um Eystra­saltið og hafa í gegnum tíð­ina verið við­búnir hinu versta„“ segir Tomi Lounmena, for­stjóri neyð­ar­birgða­stofn­unar Finn­lands  í sam­tali við NYT. „Það er í erfða­efni Finna að vera við öllu við­búnir.“

Hann segir að sumt af því sem er í birgða­geymsl­unni sé komið til ára sinna, en það sé vel not­hæft og nefnir þar and­lits­grímur.

Varpar ljósi á viðkvæma stöðu Norðurlandanna

Í grein NYT segir að þetta varpi ljósi á hversu við­kvæm staða Norð­ur­landa­þjóð­anna sé í raun og hversu mikið þær þurfi að reiða sig á inn­flutn­ing.

„Þó að sænska ríkið hafi ekki gætt að birgða­stöðu sinni, þá hafa lands­menn þar í gegnum tíð­ina verið hvattir til að koma sér upp sínum eigin neyð­ar­birgðum,“  segir í grein­inni. Þar er vísað til þess að allir Svíar hafi fengið bæk­ling sendan í pósti fyrir um tveimur árum sem bar heitið Hættu­á­stand eða stríð og þar eru leið­bein­ingar um hvernig heim­ili geti komið sér upp matar- og vatns­birgðum og ýmsum nauð­synja­vörum, komi til slíks ástands.

Í grein­inni segir að Norðmenn hafi áður gætt þess að eiga birgðir af ýmsum nauð­synja­vörum í land­inu, en ekki hafi verið lögð nægi­leg áhersla á það und­an­farna ára­tugi og að helsta áhyggju­efni Norð­manna sé hugs­an­legur skortur á lyfjum og lækn­inga­vörum. Yrði lokað fyrir inn­flutn­ing á slíkum vörum yrði landið fljótt uppi­skroppa, en mestur hluti þeirra kemur frá Kína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu