Segir tveggja metra regluna ekki virta í spilasölum

Alma Haf­steins­dóttir, for­maður Samtaka áhuga­fólks um spilafíkn segir að þess sé ekki gætt í spila­söl­unum að tveir metrar séu á milli við­skipta­vina. Samtökin skora á land­lækni, sótt­varna­lækni, stjórn Almanna­varna og rekst­ar­að­ila spila­kassa að láta loka tíma­bundið spila­sölum og spila­kössum og þannig fækka smit­leiðum á COVID-19 veirunni.

Segir tveggja metra regluna ekki virta í spilasölum
Í spila­sal Myndin var tekin í spila­sal á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær­kvöldi. Alma Haf­steins­dóttir hjá Samtökum áhuga­fólks um spilafíkn segir að þar hafi ekki verið gætt þess að tveir metrar væru á milli fólks. Mynd: Aðsend

Samtök áhuga­fólks um spilafíkn skora á land­lækni, sótt­varna­lækni, stjórn Almanna­varna og rekst­ar­að­ila spila­kassa að láta loka tíma­bundið spila­sölum og spila­kössum og þannig fækka smit­leiðum á COVID-19 veirunni. Alma Haf­steins­dóttir, for­maður sam­tak­anna, segir að þess sé ekki gætt í spila­söl­unum að tveir metrar séu á milli við­skipta­vina.

Alma Haf­steins­dóttir Vill láta loka tíma­bundið spila­sölum og spila­kössum og þannig fækka smit­leiðum á COVID-19 veirunni.

Hún segir að sam­tökin hafi  óskað eftir afskiptum Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, inn­an­ríkis- og dóms­mála­ráð­herra,  upp úr miðjum mán­uði vegna þessa, en ekk­ert svar hafi borist. Þá hafi þau einnig sent beiðni til  alþjóða­hreyf­ingar Rauða kross­ins um að grípa fram fyrir hendur Íslands­deildar Rauða kross­ins, sem er einn rekstr­ar­að­ila kass­anna, og láta loka köss­unum, en þaðan hafi ekki borist svör.

Fagna ákvörðun Vestmannaeyjabæjar

Samtökin fagna þeirri ákvörðun Vest­manna­eyj­ar­bæjar um að loka öllum spila­kössum og spila­sölum, en það var gert í dag sem hluti af hertum aðgerðum vegna útbreiðslu COVID-19. 

Alma segir að fyllsta ástæða sé til að hafa áhyggjur af því að leyf­is­hafar kass­anna muni reyna að kom­ast hjá þeim tak­mörk­unum sem kunni að verða settar og bendir á að ekki sé um lífs­nauð­syn­lega starf­semi að ræða. Hún fór, ásamt öðrum úr sam­tök­unum á nokkra spila­staði í gær­kvöld og segir að svo hafi virst sem  hvorki fyr­ir­mælum um hrein­læti né fjar­lægð milli spil­ara hafi verið fram­fylgt.

„Auðvitað ættu þessir leyf­is­hafar að bregð­ast við að fyrra bragði og sýna sam­fé­lags­lega og sið­ferð­is­lega ábyrgð en þau virð­ast ekki ætla að gera það, þrátt fyrir ítrek­aðar áskor­anir,“ segir Alma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár