Aðgerðirnar á Íslandi „mest úthugsaðar“ en útgjaldaáform Spánverja óraunhæf

Kári Gautason, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Vinstri grænna, telur aðgerðir rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur lík­legri til árang­urs en aðgerða­pakkar hinna Norð­ur­land­anna. Hann gagn­rýnir stéttapóli­tískan mál­flutn­ing um veiruna og við­brögð við henni.

Aðgerðirnar á Íslandi „mest úthugsaðar“ en útgjaldaáform Spánverja óraunhæf

Kári Gautason, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Vinstri grænna, telur að aðgerða­pakki rík­is­stjórnar Íslands sé betur úthugs­aður en aðgerðir sem boð­aðar hafa verið á hinum Norð­ur­lönd­unum og víðar. Þetta skrifar hann á Twitter. 

Þá segir Kári „mjög snúið […] að finna aðgerðir sumra rík­is­stjórna sem hafa lofað gríð­ar­miklum fjár­hæðum sem maður fær ekki til að ganga saman við stöðu rík­is­fjár­mála þar í landi“ og bætir við: „Ég er að horfa á þig Spánn.“ Spánn er það land á eftir Ítalíu sem hefur glímt við flest kór­óna­smit. Þar í landi voru kynntar björg­un­ar­að­gerðir í síð­ustu viku að umfangi um 200 millj­arða evra auk stór­auk­inna útgjalda til  félags­þjón­ustu og heil­brigð­is­mála. 

Kári bregst einnig við gagn­rýni Gunnars Smára Egils­sonar, for­manns fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, á áherslur rík­is­stjórn­ar­innar í efna­hags­málum vegna kór­óna­veirunnar. Gunnar hefur haldið því fram á sam­fé­lags­miðlum að rík­is­stjórnin hygli fyr­ir­tækjum á kostnað almenn­ings. Kári segir þetta bull. „Við erum að eiga við vírus sem skeytir ekki um þjóð­fé­lags­stöðu eða þjóð­erni (ESB og BNA mega átta sig á því). Þetta er ekki stétta­stríð en GSE er of sjálf­hverfur til að átta sig á því,“ skrifar hann og bætir við: „Að berj­ast við veirur með marxískri orð­ræðu er eitt­hvað beint frá Lysenko“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár