Stjórnarformaður stærsta hluthafa Arnarlax lýsir af hverju sjókvíaeldi við strendur landa er ekki framtíðin

Atle Eide stjórn­ar­for­maður stærsta hags­mun­að­il­ans í íslensku lax­eldi, Salmar AS, lýsir því hvernig fram­tíð fisk­eldis liggi ekki í sjó­kvía­eldi við strendur landa. Samtímis vill Salmar AS stór­auka lax­eldi í sjó­kvíum við Íslands­strendur.

Stjórnarformaður stærsta hluthafa Arnarlax lýsir af hverju sjókvíaeldi við strendur landa er ekki framtíðin
Fram­tíðin í aflandseld­inu Atle Eide, stjórn­ar­for­maður Salmar AS sem er stærsti hags­mun­að­il­inn í íslensku lax­eldi, segir að fram­tíð lax­eldis liggi úti á rúm­sjó ekki uppi í harða landi líkt og sjó­kvía­eldið sem Salmar stundar á Íslandi í gegnum Arnarlax.

Stjórn­ar­for­maður stærsta hlut­hafa lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax, Atle Eide, segir að fram­tíð fisk­eldis liggi ekki í sjó­kvía­veldi við strendur landa heldur í aflandseldi úti á rúm­sjó. Atle Eide er stjórn­ar­for­maður Salmar AS, norska lax­eld­is­ris­ans sem á meiri­hluta í Arn­ar­laxi, og lét hann þessi orð falla á sjáv­ar­út­vegs­ráð­stefnu í Bergen í Noregi í fyrra­dag sam­kvæmt því sem fram kemur á vef­síð­unni Salmon Business.

Stjórn­ar­for­mað­ur­inn lýsti því í erindi sínu hvernig Salmar AS leggur nú mikla fjár­muni í að þróa tækni­lausnir í fisk­eldi sem byggja á aflandseldi, að koma risa­stórum sjáv­ar­mann­virkjum fyrir úti á rúm­sjó þar sem lax­eldið fer fram.  Með þessu verður í komið í veg fyrir helstu nei­kvæðu umhverf­is­á­hrifin af sjó­kvía­veldi. 

Samtímis reynir Arnarlax að fá frek­ari leyfi til að stunda sjó­kvía­eldi við stendur Íslands, þrátt fyrir að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins telji að fram­tíð fisk­eldis í sjó liggi úti á rúm­sjó en ekki upp í harða landi í fjörðum eins og í Noregi og á Íslandi. Fjölþætt vand­ræði fylgja sjó­kvíum í fjörðum landa, meðal ann­ars laxa­lús og slysa­slepp­ingar auk laxa­dauða.

Í kynn­ingu á starf­semi Salmar AS á ráð­stefn­unni í Bergen er því lýst hvernig fyr­ir­tækið vinni jöfnum höndum á báðum þessum sviðum í dag: Við sjó­kvía­veldi við strendur landa  ann­ars vegar og svo hins vegar að aflandseldi í sjó­kvíum úti á rúm­sjó hins vegar. 

Sjó­kvía­eldi á eld­is­laxi við strendur Íslands er því að hefj­ast nú af fullum krafti á sama tíma og þessi gerð fisk­eldis er á und­an­haldi í umræðum um fram­tíð fisk­eldis í heim­inum vegna þeirra umhverf­is­á­hrifa sem sjó­kvía­veldið hefur. 

3 millj­ónir laxaSalmar AS vinnur nú að þróun tækni­lausna í lax­eldi eins og þess­arar hérna, Mariculture, sem tekið getur 3 millj­ónir laxa úti á rúm­sjó.

Fiskeldisiðnaðurinn gerbreyttur eftir tíu ár

Í erindi sínu í Bergen ræddi Atli Eide meðal ann­ars  um að vaxta­mögu­leik­arnir í fisk­eldi væru miklir: „Einungis þrjú pró­sent af þeim mat sem við neytum í dag kemur úr sjónum. Mögu­leik­arnir eru miklir. Við teljum að Atl­ants­hafið sé eðli­leg­ustu heim­kynni Atl­ants­haf­s­laxs­ins.“

Vaxta­mögu­leik­arnir sem Atli nefnir liggja hins vegar ekki í auknu sjó­kvía­veldi við strendur hinna ýmsu landa eins og Noregs, Íslands og Skotlands. Mögu­leik­arnir á auknu strand­eldi í Noregi eru til að mynda afar tak­mark­aðir og eru stjórn­völd hætt að gefa út ný leyfi fyrir nýjum sjó­kvíum að lang­mestu leyti. Noregur fram­leiðir nú þegar meira en milljón tonn af eld­is­laxi á ári en lax­eld­is­fyr­ir­tækin norsku vilja fimm­falda þessa fram­leiðslu. 

„Við teljum að fisk­eld­is­iðn­að­ur­inn verði breyttur að veru­legu leyti eftir tíu ár miðað við hvernig hann er í dag“

Þessi fimm­földun mun varla eiga sér stað með auknu strand­eldi og alls ekki auknu strand­eldi í Noregi þar sem norska strand­lengjan er nú þegar mett af sjó­kvíum og Norðmenn hafa fyrir margt löngu áttað sig á nei­kvæðum afleið­ingum sjó­kvía­eld­is­ins. Síðustu nýju leyfi sem gefin voru út voru boðin upp á upp­boði um sum­arið 2018 og seld dýrum dómum.

Tilgangurinn að lágmarka umhverfisáhrif

„Mögu­leik­arnir á sjálf­bæru lax­eldi eru tak­marka­lausir. En þessir mögu­leikar krefj­ast tækni­breyt­inga. Við teljum að fisk­eld­is­iðn­að­ur­inn verði breyttur að veru­legu leyti eftir tíu ár miðað við hvernig hann er í dag,“ sagði Atli Eide í erindi sínu.

Hann vís­aði sér­stak­lega til aflands­kvíar sem til stendur að Salmar AS byggi utan fyrir strönd Skotlands í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Scottish Sea Farms. Salmar AS rekur nú þegar eina slíka kví, Ocean Farm 1, 5 kíló­metrum fyrir utan ströndum Noregs.  Ástæðan fyrir notkun slíkra aflands­kvía er að „lág­marka áhætt­una á mengun, laxa­lús og slysa­slepp­ingum“ eins og segir á vef­síð­unni Salmon Business. 

Aflands­kvíin í Skotlandi mun bera heiti Ocean Farm 2 og verður hún tvö­falt stærri en Ocean Farm 1 í Noregi. „Við viljum fara frá því að smíða stórt yfir í að smíða stærra. […] Þessi verður að öllu leyti stað­settur úti á rúm­sjó. Hann verður eins og olíu­bor­p­allur. Vonandi getum við byrjað að byggja hann nú í sumar. Við erum að full­klára hönn­un­ina,“ segir Atle Eide. 

Umrædd eld­is­kví Salmar AS í Skotlandi mun taka um 3 millj­ónir laxa í einu. Þetta þýðir fram­leiðslu­getu upp á um 18 þús­und tonn sé miðað við að með­al­tals­slát­ur­stærð á tveggja ári laxi sé sex kíló. Til sam­an­burðar þá voru flutt út 27 þús­und tonn af eld­is­laxi á Íslandi í fyrra. Tvær slíkar aflands­sjó­kvíar myndu því getað fram­leitt lands­fram­leiðslu Íslands á eld­is­laxi, miðað við fram­leiðsl­una í fyrra, og umhverf­is­á­hrifin af slíkri fram­leiðslu væri lítil í sam­an­burði við sjó­kvía­eldið sem Salmar AS stundar á Íslandi í gegnum Arnarlax.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Tekjur Arnarlax lækkuðu um 39 prósent á milli ára – Eigið fé metið á 17 milljarða króna
InnlentLaxeldi

Tekjur Arnarlax lækk­uðu um 39 pró­sent á milli ára – Eigið fé metið á 17 millj­arða króna

Arnarlax hefur nú birt afkomu­upp­lýs­ingar sínar frá 2024 en þar má sjá að afkoman er mun verri en árið 2023. Mikill laxa­dauði vegna lúsa­fárs árið 2023 hafði þar mikil áhrif. BB.is segir frá því að tekjur Arnarlax á síð­asta ári hafi verið 39 pró­sent minni en árið áður eða um 9 millj­örðum lægri. Tekj­urnar 2024 urðu um 15 millj­arðar króna...
Steinunn Ólína orti tækifærisgaldur gegn laxeldi fyrir norðan: „Ratið út villusauðir!“
Menning

Steinunn Ólína orti tæki­fær­is­galdur gegn lax­eldi fyrir norðan: „Ratið út villu­sauðir!“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir orti tæki­fær­is­galdur gegn áformum um upp­setn­ingu eld­is­stöðva á Norð­ur­landi, og birti á Facebook. Leik­konan og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­and­inn Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir birti í morgun magn­þrungna vísu eða tæki­fær­is­galdur eins og hún orðað það. Þar mót­mælir hún eld­is­stöðvum sem setja á upp víða á Norð­ur­landi með til­heyr­andi mengun og raski. Hefst færsla hennar á eft­ir­far­andi hátt: „Nú er horfið...
Sir Jim Ratcliffe framleiðir gin til verndar villta laxinum
Landið

Sir Jim Ratcliffe fram­leiðir gin til verndar villta lax­inum

Sir Jim Ratcliffe og sam­tök hans, Six Rivers munu á næst­unni fram­leiða sér­stakt gin í sam­starfi við sænskan gin­fram­leið­anda. Hluti sölu­hagn­að­ar­ins mun renna til verndar villta Atl­ants­haf­s­lax­inum. Samkvæmt heima­síðu Six Rivers segir um Íslands­deild sam­tak­anna: „Six Rivers Iceland er vernd­ar­á­ætlun sem er ekki rekin í hagn­að­ar­skyni, sem leit­ast við að snúa við hnignun Atl­ants­haf­s­laxa.“ Það er í því ljósi sem...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár