Ætla að halda þétt utan um hvert annað Um kom­andi helgi ætlar litla fjöl­skyldan í Vest­ur­bænum að vera saman, hitta kannski vini og leika sér. En umfram allt annað ætla þau að hugsa hvert um annað og faðm­ast. Mynd: Heiða Helgadóttir

Gerðu kvöldið sérstakt fyrir Muhammed

Muhammed Zohair Faisal er sjö ára strákur sem þekkir ekki annað en að búa á Íslandi. Fjöl­skylda hans hafði búið sig undir að vera vísað úr landi í lög­reglu­fylgd mánu­dag­inn 3. febr­úar klukkan fimm. Fallið var frá brott­vísun og fjöl­skyldan átti fal­legt kvöld hér á Íslandi.

Muhammed Zohair Faisal fagn­aði sjö ára afmæli um síð­ustu helgi, en skuggi var yfir veislu­höld­unum. Á mánu­dag stóð til að sækja Muhammed og fjöl­skyldu hans klukkan fimm og flytja úr landi í fylgd lög­reglu. Til Pakistan, en þangað hefur Muhammed aldrei komið. Í rúm tvö ár hefur hann búið hér á landi, aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi og náð tökum á tungu­mál­inu. Hann gengur hér í skóla og greindi frá því að hann ætl­aði að mæta í skól­ann á mánu­dag eins og vana­lega, læra og leika sér við vini sína, en fara svo úr landi, og von­að­ist til að hann gæti tekið heima­vinn­una með. 

„Okkur er alveg ótrú­lega létt,“ segir Faisal, faðir Muhammeds, því á sunnu­dags­kvöld var til­kynnt að brott­vísun fjöl­skyld­unnar yrði frestað. Fyrr um dag­inn stóðu for­eldrar skóla­fé­laga og vinir fjöl­skyld­unnar fyrir sam­stöðu­fundi í Vest­ur­bæj­ar­skóla. Þangað streymdi fólk, fullt var út úr dyrum, en talið er að hund­ruð hafi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár