Lögreglumenn sem starfa hjá sjálfsvarnarfyrirtæki sakaðir um ofbeldi

Lög­reglu­maður sem starfar hjá sjálfs­varn­ar­fé­lag­inu ISR Matrix hefur verið ákærður fyrir ofbeldi í starfi. Annar lög­reglu­maður, sem einnig starfar hjá félag­inu, sætir skoðun hjá hér­aðs­sak­sókn­ara vegna kvört­unar um að hann hafi beitt ofbeldi við hand­töku.

Lögreglumenn sem starfa hjá sjálfsvarnarfyrirtæki sakaðir um ofbeldi
Sakaðir um ofbeldi í starfi Þeir Gunnar Scheving og Tómas Helgi Tómasson fengu þjálf­ara­rétt­indi hjá ISR Matrix árið 2017. Tómas Helgi hefur verið ákærður fyrir ofbeldi í starfi sínu sem lög­reglu­maður og kvörtun vegna meints ofbeldis af hálfu Gunnars hefur verið vísað til með­ferðar hér­aðs­sak­sókn­ara. Mynd: Facebook / ISR matrix

Lög­reglu­maður, sem starfar einnig sem þjálf­ari hjá félag­inu ISR Matrix á Íslandi, hefur verið ákærður af hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir lík­ams­árás og brot í opin­beru starfi. Annar lög­reglu­maður, sem einnig starfar hjá ISR Matrix, sætir þá skoð­unar vegna kvört­unar um að hann hafi beitt ofbeldi við hand­töku en nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu sendi kvörtun þess efnis til hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir hálfum mán­uði.

ISR Matrix Ísland er félag sem hefur boðið upp á sjálfs­varn­ar­nám­skeið, meðal ann­ars beint sér­stak­lega að konum, og nám­skeið í öryggi­s­tökum.  Meðal þjálf­ara fyr­ir­tæk­is­ins eru lög­reglu­menn­irnir Tómas Helgi Tómasson og Gunnar Scheving. Tómas Helgi hefur verið ákærður fyrir lík­ams­árás og brot í opin­beru starfi eftir að hafa farið offari og beitt ofbeldi við hand­töku á síð­asta ári. Kvartað var undan fram­göngu Gunnars í starfi í júlí á síð­asta ári …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár