Fjáröflun vegna gróðurelda og göldrótt urta

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 7.–20. febr­úar.

Fjáröflun vegna gróðurelda og göldrótt urta

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Vetrarhátíð 2020

Hvar? Höf­uð­borg­ar­svæðið
Hvenær? 6.–9. febr­úar
Aðgangs­eyrir: Fer eftir við­burði.

Á hinni árlegu Vetr­ar­há­tíð fær myrkrið að njóta sín og fjöldi lista­manna heldur sér­stakar sýn­ingar og við­burði. Á föstu­dag er Safna­nótt, en þá bjóða fjöl­mörg söfn upp á fjöl­breytta dag­skrá og er ókeypis aðgangur frá klukkan 18.00. Á laug­ar­dag­inn er Sund­lauga­nótt þar sem ell­efu sund­laugar gera slíkt hið sama. Auk þess fara fram ýmsir við­burðir, eins og Truflað lands­lag í Gallerí Port þar sem Atli Bollason bjagar og skælir sjón­varps­snjó með skap­andi merkja­vinnslu, Stjörnu-Sævar fer með leið­sögn fyrir börn í Bóka­safni Mos­fells­bæjar þar sem hann segir frá stjörn­unum yfir Íslandi, Ótrúlega mann­leg sýn­ing í Ásmund­ar­sal þar sem Are We Studio? túlkar mis­tök á list­rænan máta, og fleiri sýn­ingar.

Fjáröflunarkvöld vegna gróðurelda í Ástralíu

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 7. febr­úar kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Þúsundir ein­stak­linga hafa misst heim­ili sín og óheyri­legur fjöldi dýra hefur lát­ist vegna gróð­ur­elda sem geisa í ástr­alska fylk­inu Nýja Suður-Wales. Hópur af lista­mönnum leggj­ast á eitt í fjár­öflun fyrir fórn­ar­lömbin. Meðal þeirra eru grínist­arnir Jono Duffy og Kimi Tayler, dragdrottn­ingin Jenny Purr og -kon­ung­ur­inn HANS, og tón­list­ar­menn­irnir SAKARIS og Högni.

Að fanga kjarnann

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 7. febr­úar–3. maí
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Sænski lista­mað­ur­inn Mats Gustaf­son fangar hverf­ul­leika vatns­lit­ar­ins af ein­stakri næmni. Á átt­unda ára­tugnum hóf hann að vinna myndir fyrir tísku­heim­inn en helg­aði sig æ meira eigin list­sköpun þegar fram í sótti. Í verkum sínum sveifl­ast lista­mað­ur­inn af mik­illi leikni milli tísku­heims­ins, nátt­úr­unnar og könn­unar á umhverf­inu. 

Gaddavír, Dead Herring, GÓÐxÆRI

Hvar? R6013
Hvenær? 9. febr­úar kl. 18.00
Aðgangs­eyrir: Frjáls fram­lög

Aðdá­endur harð­kjarna og erf­iðrar tón­listar þurfa ekki að leita lengra til að sjá þrjár af áhuga­verð­ustu sveit­unum í sen­unni, en þær eru á leið í Evr­óputúr. Gaddavír spilar háværa og hraða tón­list af mik­illi færni, Dead Herring fremur hljóð­bylgju­gjörn­ing þar sem karllægir og kven­legir eig­in­leikar takast á og GÓÐxÆRI flytur and­fasískt iðn­að­ar­kraftof­beldi.

Svartir sunnudagar: Requiem for a Dream

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 9. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Harm­leik­ur­inn eft­ir­minni­legi Requiem for a Dream eftir leik­stjór­ann Darren Ara­nof­sky hefur fyrir löngu öðl­ast sess sem költ-mynd, en hún segir sögu fjög­urra ein­stak­linga sem leið­ast út á braut vímu­efna með skelfi­legum afleið­ingum. Taka þarf fram að myndin er alls ekki fyrir við­kvæmar sálir.

Teitur Magnússon & Æðisgengið

Hvar? Röntgen
Hvenær? 12. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Skegg­prúði þjóð­laga­töfra­mað­ur­inn Teitur Magn­ús­son heldur messur til­eink­aðar draumum og góða líf­inu á hverjum tón­leikum. Teitur var lengi vel einn af tveimur söngv­urum í reggí-hljóm­sveit­inni Ojba Rasta, en hinn söngv­ar­inn, Arn­ljótur Sig­urðs­son, hitar einmitt upp fyrir þessa tón­leika sem Kraft­galli. Tón­leik­arnir fara fram í litlum sal og er nánd við flytj­endur því mikil.

Af fingrum fram: Sigríður Thorlacius

Hvar? Salurinn
Hvenær? 13. & 20. febr­úar kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: Frá 4.950 kr.

Sigríður Thorlacius er ein af ást­sæl­ustu söng­konum þjóð­ar­innar, en hún hefur afrekað ansi margt bæði með hljóm­sveit­unum sínum Hjalta­lín og GÓSS og ein síns liðs. Hún mætir í Salinn þar sem hún tekur þátt í spjalltón­leika­röð­inni Af fingrum fram þar sem tón­list­ar­flutn­ingur og við­tal í beinni tvinn­ast saman.

Valentínusar Drag-Súgur

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 14. febr­úar kl. 21.30
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Dragdrottn­ing­arnar og -kon­ung­arnir í hópnum Drag-Súgur fagna degi ást­ar­innar eins og hann var skap­aður af aug­lýs­inga­stofum: með pomp og prakt. Búast má við atriðum fullum af gríni og glensi, sam­fé­lags­á­deilu, metn­að­ar­fullum til­þrifum og hugs­an­lega ofgnótt af gor­djöss dans- og söng­at­riðum.

Sæhjarta

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 14., 19. & 27. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 4.400 kr.

Sæhjarta end­ur­skapar og end­ur­vekur gömlu sög­urnar um urt­urnar sem komu á land og fóru úr sels­hamnum til að búa og elska meðal manna. Í þessu leik­riti verður dul­ar­full kona rekalda á drunga­legri strönd, en hennar marg­slungna furðu­saga er sögð með blöndu brúðu­leiks og hefð­bund­ins leik­húss. Sýningin er ætluð full­orðnum.

Sol LeWitt yfirlitssýning

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 15. febr­úar–24. maí 
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Banda­ríski lista­mað­ur­inn Sol heit­inn LeWitt er gjarnan tal­inn vera einn helsti frum­kvöð­ull hug­mynda­list­ar­innar, en í henni eru allar ákvarð­anir og skipu­lag lista­verks­ins fyr­ir­fram ákveðið og verkið verður allt­ént til úr gang­verki hug­mynd­ar­innar. Þetta er í fyrsta sinn sem yfir­lits­sýn­ing með verkum hans ratar á Íslands­strendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár