Hrifst af ófullkomleika og frumlegu tónlistarfólki

Hildur Vala Ein­ars­dóttir er að fara að gefa út plötu með tón­list eftir sjálfa sig. Hljóð­mynd hennar verður lág­stemmd til að söng­rödd hennar fái að njóta sín sem best. Hún safnar nú fyrir gerð plöt­unnar á Karolina fund.

Hildur Vala Ein­ars­dóttir vinnur nú að fjár­mögnun sinnar þriðju sóló­plötu en ansi langt er um liðið frá því þær fyrri komu út (2005 og 2006). Fjöl­breyttur hópur íslenskra hljóð­færa­leik­ara leggur henni lið.

Hvenær byrj­aðir þú fyrst að semja lög?

„Það eru þó nokkuð mörg ár síðan ég byrj­aði að semja tón­list en á löngu tíma­bili var ég önnum kaf­inn í öðru; háskóla­námi og barn­eignum og hafði ekki sér­lega mikla þörf fyrir að gefa hana út. Nú hins vegar hefur tón­list­ar­á­hug­inn blossað upp á ný og ég læt bara vaða, nýt þess að skapa og syngja.“

Hvers konar stemmn­ingu verður að finna á plöt­unni?

„Ætli megi ekki segja að melankól­ían sé dálítið und­ir­liggj­andi á plöt­unni; ljúfsár lög en einnig glað­leg inn á milli. Ég leyfi mér að fara úr einu í annað og er ekk­ert að binda mig við eitt­hvað eitt ákveðið í þessum efnum. Text­arnir ráða auð­vitað dálítið för en þeir koma úr ýmsum áttum til dæmis frá Degi Hjart­ar­syni, ljóð­skáldi og Hjalta Þor­kels­syni úr Múgsefjun.“

Hvað er það sem hrífur sjálfa þig mest við tón­list?

„Allskyns tón­list hrífur mig, oft hrífst ég af ein­fald­leika og ein­lægni, stundum af orku og miklum krafti, og ófull­kom­leika en einnig af frum­legu tón­list­ar­fólki sem hugsar út fyrir rammann. Annars er alls­konar sam­spil sem veldur því að tón­list hrífur mig sér­stak­lega en kannski fyrst og fremst góð túlkun og sönn til­finn­ing.“

Síðasta sóló­plata þín kom út árið 2006 og þessi mun líta dags­ins ljós 12 árum síðar eða snemma árs 2018. Verður nýja platan gjör­ó­lík því sem þú hefur áður sent frá þér?

„Hún er fyrst og fremst ólík að því leyti að ég sem alla tón­list­ina sjálf en á fyrri plöt­unum flutti ég lög eftir aðra höf­unda. Ég réð laga­val­inu auð­vitað samt sem áður en ég lagði miklu minna til mál­anna þegar kom að sjálfum upp­tök­unum heldur en ég geri núna þegar ég er við­stödd allt sem ger­ist og hef hönd í bagga með loka­út­komu og ákvarð­anir. Þetta er ótrú­lega skemmti­legt og skap­andi ferli.

Og auð­vitað lær­dóms­ríkt.“

Má íslensk þjóðin eiga von á því að sjá meira af þér á næstu árum en þau síð­ustu?

„Ég reikna nú frekar með því. Fyrir það fyrsta mun ég halda útgáfu­tón­leika í Salnum, Kópavogi, 15.febr­úar 2018 og mig langar auð­vitað að flytja mús­ík­ina mína sem víð­ast.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár