„Eins og að láta kalkún skrifa gagnrýni um þakkargjörðarhátíð“

Svein Harald Øygard, fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóri, gefur lítið fyrir gagn­rýni Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar á bók þess fyrr­nefnda, „Í víg­línu íslenskra fjár­mála“.

„Eins og að láta kalkún skrifa gagnrýni um þakkargjörðarhátíð“
Finnst lítið til gagn­rýni Hannesar koma Svein Harald bregst við gagn­rýni Hannesar á bók sína. Mynd: Paal Krokan-Mathisen

„Að biðja einmitt þennan hug­mynda­fræð­ing flokks­ins um að gagn­rýna bók­ina mína er, eins og ég sá að ein­hver skrif­aði, eins og að biðja kalkún um að skrifa gagn­rýni um þakk­ar­gjörð­ar­há­tíð­ar­máls­verð.“ Þetta skrifar Svein Harald Øygard, fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóri, um gagn­rýni Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar á bók Sveins Haralds um tíma hans á stóli Seðla­banka­stjóra.

Svein Harald skrifar færslu á Facebook síðu sína þar sem hann rekur að yfir vetr­ar­mán­uð­ina 2008 til 2009 hafi ein af kröfum mót­mæl­enda sem fylltu götur Reykja­víkur verið sú að Davíð Oddsson viki úr stóli Seðla­banka­stjóra. Davíð hafi hins vegar ekki tekið slíkt í mál. Eftir að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ingar féll hafi Alþingi sam­þykkt lög sem settu Davíð af. „Sumir voru þeirrar skoð­unar að til­raunin um óheft banka­kerfi hefði endað úti í skurði.“

Síðan var Davíð gerður að rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og nú, tveimur mán­uðum eftir útkomu bók­ar­innar er Hannes, helsti arki­tekt nýfrjáls­hyggj­unnar á Íslandi, sá sem rit­stjór­inn velur til að gagn­rýna bók­ina, skrifar Svein Harald. Í ljósi þess að Hannes var við­staddur þegar öll mis­tökin sem leiddu til hruns­ins voru gerð ætti hann að vera í lyk­il­stöðu til að verja aðgerðir stjórn­valda og ekki síður vinar síns, Davíðs Odds­sonar fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóra, í aðdrag­anda fjár­mála­hruns­ins á Íslandi. Þess finnst þó ekki staður í gagn­rýni hans, skrifar Svein Harald, heldur hnýtir Hannes helst í það að Svein Harald hafi mis­ritað nafn eins yfir­manna Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, Danans Poul Thomsens. Svein Harald telur þó að það séu kannski skilj­an­leg, og smá­vægi­leg, mis­tök.

„Ég minn­ist þess enn hversu reiður ég var þá“ 

Svein Harald lýsir því að á fundi með Thomsen þessum hafi staðið deilur um það að íslenski Seðla­bank­inn hafi viljað lækka lána­vexti en á sama tíma beita óhefð­bundnum aðferðum til að styrkja krón­una. Thomsen hafi hins vegar notað vald og hót­anir um að draga til baka stuðn­ing sjóðs­ins en ekki skyn­sam­leg rök til að stöðva þær fyr­ir­ætl­anir. En íslenski Seðla­bank­inn gaf sig ekki.

„Það [mis­rit­unin] var kannski í skiptum fyrir að umræddur yfir­maður Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins öskr­aði á mig í Washington þegar ég varði afstöðu íslenska Seðla­bank­ans í fundi með sjóðnum. Ég minn­ist þess enn hversu reiður ég var þá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár