Milljónamæringar í nýstofnuðum félögum með og á móti ESB

Fimm einstak­lingar á hátekju­listanum eru í framvarða­sveit þeirra samtaka sem annaðhvort berjast með eða móti því að Ísland hefji aðildar­viðræður við ESB. Sá sem er með hæstu tekjurnar í þessum hópi fékk yfir hundrað milljónir í árstekjur og er hlynntur aðildar­viðræðum.

Evrópuþingið
Evr­ópu­þingið Fjár­sterkir aðilar sitja bæði í félögum með og á móti aðild­ar­við­ræðum við ESB. Mynd: AFP

Tveir forsvars­menn Áfram Ísland og einn þeirra helsti stuðnings­maður eru á Hátekju­lista Heimildarinnar í ár og þrír úr röðum Já til að sjá. Enginn úr Heimssýn né stjórn Evrópu­hreyfingarinnar er hins vegar á listanum.

Samtökin fjögur takast nú á um þjóðar­atkvæða­greiðsluna 29. ágúst um hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið. Áfram Ísland og Heimssýn berjast gegn því að viðræðurnar verði teknar upp að nýju og vilja að Ísland standi áfram utan ESB.

Já til að sjá berst fyrir já-atkvæði í kosningunum svo ljúka megi viðræðum og leggja mögulegan aðildar­samning síðar fyrir þjóðina, án þess að samtökin taki afstöðu til þess hvort slíkur samningur eigi að verða samþykktur. Evrópu­hreyfingin styður einnig áframhald viðræðna en hefur það jafnframt að markmiði að Ísland gangi í Evrópu­sambandið.

Jónas Hagan Guð­munds­sonKaup­sýslu­mað­ur­inn Jónas Hagan Guð­munds­son var með um 106 millj­ónir í árs­tekjur á síð­asta ári. …
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Það eru semsagt auðmenn sem vilja "já til að sjá" (eins og þeir viti ekki mætavel hvað er að sjá).
    -4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár