Hlutabréf í Íslandsbanka hafa hækkað meira en í öllum öðrum bönkum á Norðurlöndunum

Hluthöfum í Íslands­banka hefur fækkað um í kringum sjö þúsund frá útboði. Markaðs­virði bankans hefur á sama tíma aukist um 60 prósent og þeir sem hafa selt sig út hafa getað tekið út góða ávöxtun á fjár­festingu sinni á rúmum fjórum mánuðum.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hringdi inn fyrstu viðskipti með bankann í íslensku kauphöllinni fyrr á þessu ári.
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, hringdi inn fyrstu við­skipti með bank­ann í íslensku kaup­höll­inni fyrr á þessu ári. Mynd: Nasdaq Iceland

Markaðs­virði Íslands­banka við lokun markaða í gær var 253,6 milljarðar króna og hefur aldrei verið hærra. Frá því að 35 prósent hlutur í bankanum var seldur í júní síðastliðnum hefur hlutabréfa­verðið hækkað um 60 prósent, farið úr 79 krónum á hlut í 126,8 krónur á hlut. Það er mesta hækkun á virði bréfa í banka á Norður­löndunum á því tímabili sem liðið er frá því að hlutafjár­útboðið í Íslands­banka fór fram.

Frá þessu er greint í fjárfesta­kynningu vegna uppgjörs Íslands­banka á þriðja ársfjórðungi 2021 sem birt var í gær.

Bankinn hagnaðist um 7,6 milljarða króna á fjórðungnum, sem er sá fyrsti sem líður eftir skráningu hans á markað, og arðsemi eigin fjár hans var 15,7 prósent. Á fyrstu níu mánuðum ársins var hagnaður Íslands­banka 16,6 milljarðar króna og arðsemi eigin fjár hans á ársgrundvelli var 11,7 prósent.

Hreinar þóknana­tekjur bankans á fyrstu níu mánuðum ársins jukust um 20,1 prósent frá sama tímabili í fyrra og vaxta­tekjur hans hækkuðu um 1,1 prósent, en þær voru 25,4 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins.

Kostnaðar­hlutfall bankans lækkaði úr 55,3 í 46,6 prósent milli ára en stjórnar­kostnaður hækkaði, aðallega í tengslum við skráningu Íslands­banka á markað, aukins launa­kostnaðar vegna kjara­samnings­hækkana og kostnaðar vegna uppsagna.

Um sjö þúsund hafa þegar selt

Í fjárfesta­kynningunni kemur fram að hluthafar í Íslands­banka séu nú yfir 17 þúsund talsins. Eftir útboðið í sumar voru hlut­hafarnir um 24 þúsund talsins. Það þýðir að um sjö þúsund hafa þegar selt hlut sinn í Íslands­banka á þeim fjórum mánuðum sem liðnir eru frá hlutafjár­útboðinu.

Sá 35 prósent hlutir sem íslenska ríkið seldi í júní er nú metinn á 88,8 milljarða króna. Hann hefur hækkað um 33,5 milljarða króna frá því að útboðið fór fram, eða um alls 60 prósent.

Sá háttur var hafður á í útboðinu að allir sem skráðu sig fyrir einni milljón króna eða minna myndu ekki skerðast ef eftir­spurn yrði umfram framboð. Þetta var gert til að draga sem flesta að þátttöku. Eftir­spurnin reyndist níföld.

Hlutabréf í bankanum hækkuðu um 20 prósent strax á fyrsta degi eftir skráningu á markað og hafa síðan hækkað jafnt og þétt.

Sá sem keypti hlut í Íslands­banka af íslenska rík­inu á eina milljón króna í júní gæti selt þann hlut í dag á 1,6 milljónir króna, og þar með hagnast um 600 þúsund krónur á rúmum fjórum mánuðum.

Íslenska ríkið enn langstærsti eigandinn

Íslenska ríkið er áfram stærsti eigandi Íslands­banka með 65 prósent hlut en heimild er í fjárlögum til að selja þann hlut. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, hefur lýst yfir vilja til að gera það í nánustu framtíð og ljóst að það ferli er á meðal þeirra mála sem eru til umræðu nú þegar stjórnar­flokkarnir þrír: Sjálfstæðis­flokkur, Framsóknar­flokkur og Vinstri græn, ræða áfram­haldandi stjórnar­samstarf.

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Gildi, Capital World Invsestors og RWC Asset Management skuld­bundu sig við upp­haf útboðs­ins á bréfum í Íslands­banka sig til að kaupa um það bil tíu pró­sent af öllu útgefnu hlutafé bankans verða svo­kall­aðir horn­steins­fjár­fest­ar. Þessi hópur á í dag 12,3 prósent í bankanum og auk þess hefur Lífeyris­sjóður starfs­manna ríkisins keypt 2,9 prósent allra hluta­bréfa í honum.

Aðrir eigendur eiga eitt prósent eða minna, en tíu stærstu hluthafar Íslands­banka eiga samtals 83,8 prósent útgefinna hluta­bréfa í bankanum.

Arð­semi eigin fjár langt yfir mark­miði

Sá mæli­kvarði sem stjórn­endur banka nota til að mæla árangur sinn er ekki endi­lega hversu mik­ill hagn­aður er í krónum talið, heldur hver hlut­falls­leg arð­semi þessa eigin fjár er. Und­an­farin ár hefur þessi arð­semi verið nokkuð döpur og verið undir mark­mið­um.

Íslands­banki setti sér það mark­mið að ná átta til tíu pró­­sent arð­­semi á eigið fé fyrir lok árs 2022 og að til lengri tíma yrði arð­­semin yfir tíu pró­­sent.

Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2021 var arð­semin 7,7 pró­sent. Á þeim næsta var hún 11,6 pró­sent og þeim þriðja var hún orðin 15,7 pró­sent. Bank­inn verður því að öllum lík­indum langt yfir lang­tíma­mark­miði sínu þegar árið 2021 verður gert upp.

Vaxta- og þókn­ana­tekjur upp um millj­arð milli ára

Mestu munar ann­ars vegar um að hreinar vaxta­tekjur hreinar þókn­ana­tekjur uxu sam­an­lagt um einn millj­arð króna milli ára.

Vaxta­tekjur mynd­ast af vaxta­mun, mun­inum á þeim vöxtum sem bank­­arnir greiða fólki og fyr­ir­tækjum fyrir inn­­lán sem þau geyma hjá þeim og vöxt­unum sem þeir leggja á útlán.

Þókn­ana­tekjur mynd­ast vegna þókn­ana sem bank­inn tekur fyrir t.d. eigna­stýr­ingu eða fyr­ir­tækja­ráð­gjöf. Í ljósi þess að íslensku bank­­arnir starfa nán­­ast ein­vörð­ungu í íslensku hag­­kerfi þá verður að álykta að stór hluti við­­skipta­vina þeirra séu stærstu fag­fjár­­­fest­­arnir innan þess, íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­­ir.

Hins vegar juk­ust hreinar fjár­muna­tekjur um 900 millj­ónir króna, aðal­lega vegna jákvæðrar virð­is­breyt­ingar á fjár­fest­ingu í óskráðum hlut­deild­ar­fé­lög­um.

Eigið fé Íslands­banka var 197 milljarðar króna í lok september síðastliðins og eiginfjár­hlutfall bnakans 24,7 prósent.

Yfir­lýst mark­mið bank­ans er svo að greiða út 50 pró­sent af hagn­aði hvers árs í formi hefð­bund­inna arð­greiðslna. Þá ætlar hann auk þess að nýta umfram eigið fé bank­ans til frek­ari arð­greiðslna eða kaupa á eigin bréf­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár