Landsbankinn hagnast um 21,6 milljarða á níu mánuðum

Lands­bankinn hagnaðist um 7,5 milljarða á þriðja ársfjórðungi og alls um 21,6 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn

Hagnaður Lands­bankans á þriðja ársfjórðungi, frá júlí fram í lok september, nam 7,5 milljörðum króna. Alls hagnaðist bankinn um 21,6 milljarða á fyrstu níu mánuðum ársins og segir í tilkynningu bankans að jákvæðar virðis­breytingar, sökum þess að efnahagslegar afleiðingar heims­faraldurs hafi verið vægari en gert var ráð fyrir, séu stór þáttur í góðri afkomu bankans það sem af er ári.

Í uppgjörs­tilkynningu bankans, sem send var út í dag, kemur fram að arðsemi eiginfjár bankans hafi verið 10,9 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins og að hreinar þjónustu­tekjur hafi aukist um 22 prósent á milli ára, sem sagt er einkum vegna vaxandi umsvifa í eigna­stýringu og markaðs­viðskiptum.

Kostnaðar­hlutfall bankans, kostnaður hans sem hlutfall af tekjum, var 37,9 prósent á síðasta ársfjórðungi og er 41,7 prósent á fyrstu níu mánuðum ársins. Lilja Björk Einars­dóttir banka­stjóri segir í frétta­tilkynningu bankans að hlutfall kostnaðar af tekjum hjá Lands­bankanum sé „með því lægsta sem þekkist hjá bönkum í Evrópu.“

Eigið fé Lands­bankans nam 275,3 milljörðum króna í lok september og eiginfjár­hlutfallið var 24,9 prósent. Heildar­eignir bankans á sama tíma­punkti námu 1.718 milljörðum króna.

40 prósent nýrra óverðtryggðra lána með fasta vexti

Samkvæmt tilkynningu bankans er markaðs­hlutdeild Lands­bankans á einstaklings­markaði 39 prósent og hefur aldrei verið meiri. Hið sama er sagt um hlutdeild bankans í íbúða­lánum, en hún er 28,7 prósent.

Útlán bankans jukust um 103 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2021. Útlán til einstaklinga jukust um 110 milljarða króna en útlán til fyrir­tækja drógust saman um 7 milljarða króna.

Fram kemur í tilkynningu bankans að um 93 prósent af þeim nýju íbúða­lánum sem bankinn veitir séu óverðtryggð og að tæplega 40 prósent af nýjum lánum séu nú með fasta vexti.

„Við sjáum skýrt og greini­lega að fólk kýs í auknum mæli að festa vextina. Við höfum einfaldað viðskipta­vinum þá aðgerð og það er hægt að festa vextina með hnappi í Landsbanka­appinu,“ er haft eftir Lilju Björk í tilkynningu bankans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár