Vilja auka tekjur með fjölgun hraðamyndavéla

Verkefni ríkis­stjórnarinnar um „hagsýni í ríkis­rekstri“ leiðir af sér gjaldskrár­hækkanir og svo auknar tekjur af hraða­sektum.

Starfshópur skilar af sér
Starfs­hópur skilar af sér Hug­myndum starfs­hóps um hag­ræð­ingu í rík­is­rekstri var skilað í mars, en þær undu upp á sig með til­lögum af tekju­öflun. Mynd: Golli

Í stefnu­yfirlýsingu ríkis­stjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins kom fram að það væri „eitt af forgangs­verkefnum hennar að hagræða í ríkis­rekstri, einfalda stjórn­sýslu og sameina stofnanir“. 

Vinnu­hópur forsætis­ráðherra um hagsýni í ríkis­rekstri hefur skilað skýrslu um störf sín og framgang verkefna. Samkvæmt núgildandi fjármála­áætlun verður hagrætt í ríkis­rekstri um 107 milljarða króna á tímabili áætlunarinnar frá 2026-2030 og þar af um ellefu milljarða króna á næsta ári.

Upphaf verk­efnisins má rekja til víðtæks samráðs sem efnt var til í samráðs­gátt í byrjun kjör­tímabilsins undir yfir­skriftinni „Verum hagsýn í ríkis­rekstri“. Þar var leitað eftir hugmyndum um hagræðingu, einföldun og sameiningar frá almenningi, forstöðu­mönnum ríkis­stofnana og ráðuneytum. Þátttaka reyndist afar góð og bárust hátt í fjögur þúsund umsagnir, sem er metfjöldi, eins og segir í tilkynningu stjórn­valda.

Í skýrslu starfs­hóps um hagsýni í ríkis­rekstri kemur fram um hvaða hugmyndir er að ræða, sem teknar eru lengra, en hópurinn skilaði …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár