Arctic Sea Farm og Fjarðalax fá bráðabirgðarekstrarleyfi

Fiskeldis­fyrirtækin Arctic Sea Farm og Fjarðalax hafa fengið rekstrar­leyfi til bráða­birgða til tíu mánaða fyrir laxeldi í sjókvíum í Patreks­firði og Tálkna­firði.

Fiskeldis­fyrirtækin Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. hafa fengið rekstrar­leyfi til bráða­birgða til 10 mánaða fyrir laxeldi í sjókvíum í Patreks­firði og Tálkna­firði, samkvæmt ákvörðun sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra. Þetta kemur fram í frétt atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytisins.

Matvæla­stofnun hafði veitt fyrir­tækjunum rekstrar­leyfi í lok árs 2017 en úrskurðar­nefnd umhverfis- og auðlinda­mála fellt þau úr gildi 27. september síðastliðinn.

Með breytingum sem gerðar voru á lögum um fiskeldi í síðasta mánuði var ráðherra veitt heimild, að fenginni umsögn Matvæla­stofnunar, að gefa út tíma­bundið rekstrar­leyfi til allt að 10 mánaða. Við ákvörðun leyfis til Arctic Sea Farm og Fjarðalax var óskað eftir umsögnum frá Matvæla­stofnun, Byggða­stofnun, Skipulags­stofnun og Umhverfis­stofnun. Jafnframt var andmælendum veitt tækifæri til að koma sínum sjónar­miðum á framfæri.

Rekstrar­leyfin sem veitt eru til bráða­birgða eru bundin ákveðnum skilyrðum, meðal annars skal Matvæla­stofnun hafa eftirlit með fjölda útsettra laxaseiða, leyfis­hafi ber ábyrgð á vöktun og rann­sóknum til að meta vist­fræðileg áhrif á nánasta umhverfi og leyfis­hafa ber skylda til að nota erfðavísa þannig að unnt sé að rekja uppruna eldislaxa til ákveðinna sjókvíaeldis­stöðva.

Auk þess ber fyrir­tækjunum að hefjast þegar handa við að bæta úr þeim göllum sem úrskurðar­nefnd umhverfis- og auðlindar­mála taldi vera á máls­meðferð við útgáfu rekstrar­leyfisins sem ógilt var og/eða láta reyna á lögmæti ógildingu þeirra fyrir dóms­stólum.

Þann 9. október síðastliðinn var frum­varp Krist­ján Þórs Júl­í­us­sonar sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra sam­þykkt á Alþingi en sam­­­kvæmt því er mög­u­­­legt að veita rekstr­­­ar­­­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eld­i.

Samkvæmt tilkynningu frá stjórn­völdum í byrjun október var frum­varp­inu ætlað að lag­færa ­með almennum hætti ann­marka á lögum um fisk­eldi til fram­tíð­ar. Sá ann­marki birt­ist í því að sam­kvæmt gild­andi lögum er eina úrræði Mat­væla­stofn­unar í þeim til­vikum sem rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is­stöðvar er fellt úr gildi að stöðva starf­semi henn­ar.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra sagði í stöðu­uppfærslu á facebook-síðu sinni á sínum tíma að úrskurðir Úrskurð­ar­nefndar umhverf­is- og auð­linda­mála væru mik­il­vægir því þeir drægju fram nauð­syn þess að skoða fleiri en einn kost líkt og lögin um mat á umhverf­is­á­hrifum kveða á um.

Hann taldi aftur á móti að ekki væri verið að taka fram fyrir hend­urnar á nefnd­inni með fyrr­nefndu frum­varpi ­sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Ein­ungis væri verið að búa til rými til að vinna úr þeim ann­mörkum sem nefndin benti á en ekki fella úrskurð­ina úr gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár