Áslaug segir ESB verða að líta í eigin barm

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, formaður allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis, fullyrðir að fyrst nú sé Evrópu­sambandið að viðurkenna að Bretar séu á útleið úr sambandinu. Hún gagnrýnir forseta framkvæmda­stjórnar ESB á Twitter.

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, formaður allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis, gagnrýnir stefnu­ræðu Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, sem hann hélt á Evrópu­þinginu í morgun. Telur Áslaug að Evrópu­sambandið þurfi að líta í eigin barm og endur­skoða það fyrir­komulag sem nú er við lýði. „Loksins viðurkennt að UK sé að fara en ekki viðurkennt að þurfi að líta í eigin barm,“ skrifar Áslaug á Twitter. Þá útskýrir hún mál sitt með eftir­farandi hætti:

„Ég meina hvort þau teldu sig þurfa að endur­skoða ESB að einhverju leyti eftir að niður­staða Breta varð Brexit. Afhverju, er ESB td orðið of stórt, of viðamikið, tekur það of margar ákvarðanir fyrir þjóð­þingin, eða hvort þetta hvetji þau í að verða enn stærra samband með enn fleira sameiginlegt. Ég td velti stundum fyrir mér eins og með laga­setningu ESB um rafrettur - lítið og ómerkilegt dæmi, en áhugavert að svona litlar ákvarðanir um hertari boð og bönn séu tekin á Evrópu­stigi en ekki ákvarðanir einstaka þjóða eða jafnvel sveitar­félaga.“ 

Juncker hefur oft tjáð sig um þá staðreynd að Bretar ætli að segja sig úr Evrópu­sambandinu og meðal annars tekið skýrt fram að Bretlandi verði ekki refsað fyrir niður­stöðu þjóðar­atkvæða­greiðslunnar í fyrra. Í stefnu­ræðu sinni í morgun gerði Juncker sérstak­lega að umtals­efni að Evrópu­sambandið ætti ekki að skipta sér af daglegu lífi borg­aranna, setja reglu­gerðir um allt og alla eða taka fram fyrir hendurnar á þjóð­þingum með mörgum og stórum ákvörðunum. Þannig var málflutningur Junckers í anda svokallaðrar nálægðar- eða dreifræðis­reglu Evrópu­sambandsins sem felur í sér vörn gegn miðstýringu og er ætlað að tryggja vald­dreifingu milli aðildar­ríkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár