Fjögur hundruð fréttaskýringar í hús

Eftir átta ár er komið að þeim merku tímamótum að fjögur hundraðasta umfjöllun Borgþórs Arngríms­sonar hefur litið dagsins ljós á Kjarnanum.

Borgþór hefur varla misst úr viku síðan hann byrjaði að skrifa fyrir Kjarnann fyrir um átta árum.
Borgþór hefur varla misst úr viku síðan hann byrj­aði að skrifa fyrir Kjarnann fyrir um átta árum. Mynd: Bára Huld Beck

Borgþór Arngrímsson blaða­maður hefur skrifað 400 frétta­skýringar fyrir Kjarnann en sú fjögur hundraðasta birtist fyrr í dag og fjallar um varphænur og hvernig líf þeirra sé ekkert sældarlíf.

Hann starfaði lengi sem frétta­maður á Ríkis­útvarpinu en hann er menntaður leikhús­fræðingur og starfaði í um tuttugu ár sem framhalds­skóla­kennari í Keflavík.

Fyrsta frétta­skýringin sem Borgþór skrifaði fyrir Kjarnann birtist rúmum mánuði eftir stofnun miðilsins eða þann 26. september 2013. Borgþór hefur allar götur síðan skrifað vikulegar frétta­skýringar fyrir Kjarnann um hin ýmsu mál um allt milli himins og jarðar – með áherslu á málefni tengd Danmörku.

Sú fyrsta fjallaði um Danske Bank, lang­stærsta banka Danmerkur og vandræði hans á þeim tíma en Borgþór bjó í Danmörku á þeim tíma. Í frétta­skýringunni fjallaði hann um misheppnaðar auglýsinga­herferðir, flótta­viðskipta­vina frá bankanum og brott­rekstur banka­stjóra sem hafði aðeins setið í hálft annað ár.

Hótelið á hafsbotni, frægastur danskra leikara og skuggar fortíðar í stúlknakór

Vinsælasta frétta­skýring Borgþórs til þessa árið 2021 fjallaði um að í áratugi hefðu gengið sögur um að á hafsbotni norðan við Helsingja­borg í Svíþjóð lægi stærðar steypu­hlunkur sem átti að vera hluti eins þekktasta hótels á Norður­löndum. Í umfjöllun sinni um málið fór hann yfir það hvort þetta væri rétt.

Aðra vel lesna umfjöllun skrifaði Borgþór í byrjun maí á þessu ári en hún fjallaði um frægasta leikara Dana: Mads Mikkelsen. Hann fæddist í Kaupmanna­höfn, lærði ballett og var atvinnu­dansari í 10 ár. Þrítugur að aldri lauk hann leikara­námi og er óumdeilanlega í dag frægastur allra danskra leikara. Borgþór fór meðal annars yfir það að gleymska hefði einu sinni næstum orðið honum dýrkeypt.

Í júní fjallaði Borgþór um skugga fortíðar í stúlknakór. Michael Bojesen, einn þekktasti hljóm­sveitar­stjóri Danmerkur og núverandi forstjóri Malmö óperunnar var þá kominn í ótíma­bundið leyfi. Ástæðan var frásagnir stúlkna sem voru í Stúlknakór danska útvarpsins undir hans stjórn frá 2001 til 2010.

Burt með gettóin, Casanova handtekinn og listgjörningur eða skemmdarverk

Í gegnum árin hefur umfjöllunar­efnið verið fjöl­breytt og sjaldnast er komið að tómum kofanum hjá Borgþóri. Í nóvember 2020 skrifaði hann um atvik er brjóst­mynd af Friðriki V Danakóngi eyði­lagðist þegar deildar­stjóri við Konunglega fagur­lista­skólann í Kaupmanna­höfn, ásamt hópi nemenda, henti styttunni sem var í samkomusal skólans í sjóinn. „List,“ sagði deildar­stjórinn sem var sendur heim í kjölfarið.

Borgþór átti þriðju mest lesnu frétta­skýringu Kjarnans árið 2019. „Hann var bara svo sjar­mer­andi og umhyggju­sam­ur,“ sagði dönsk kona um unga Ísra­el­ann sem sagð­ist vera vopna- og dem­anta­sali, fyrr­ver­andi orr­ustuflug­mað­ur, og millj­arða­mær­ing­ur. Hvorki hún, né aðrar konur sem ungi mað­ur­inn heill­aði, grun­aði hann um græsku í upp­hafi en svo kom önnur hlið í ljós.

Í mars 2018 fjallaði Borgþór um áætlun dönsku ríkis­stjórnarinnar um að uppræta hin svokölluðu gettó. Átta danskir ráðherrar stormuðu inn á Mjølnerparken á Norðurbrú í Kaupmanna­höfn en slíkt var ekki daglegur viðburður. Tilefnið var að kynna fyrr­nefnda áætlun.

„Hygge“, kórónufrumvarp og sígaunafjölskyldan sem lifði sældarlífi

Borgþór velti því fyrir sér, eins og svo margir Íslendingar, í október 2017 hvað danska hugtakið hygge þýddi. „Er það stig sem nær hærra en bara að hafa það kósí? Nær eitthvað íslenskt orð yfir það? Eða er um að ræða sérstaka danska heimspeki?“

Í apríl 2016 fjallaði Borgþór svo um svokallað „kórónu­frumvarp“ – og nei, ekki um veiruna, heldur frumvarp sem danski menningar­mála­ráðherrann lagði fram á danska þinginu. Frum­varpið fjallaði um tiltekið tákn, svonefnda lokaða kórónu. „Kórónu­málið“ eins og það er kallað komst í fréttirnar um heim allan og þeim sem áttu hagsmuna að gæta varðandi þetta frumvarp fannst það hreint ekkert smotterí heldur stórmál sem varðaði bæði heiður og sögulega hefð.

Borgþór átti mest lesnu frétta­skýringu Kjarnans árið 2015: „Sígauna­fjölskylda hefur lifað sældar­lífi á „danska kerfinu“ í áratugi.“ Hún fjallaði um það að árið 1972 hefði júgóslavnesk sígauna­fjölskylda komið til Kaupmanna­hafnar á gömlum Opel bíl með hrörlegt hjólhýsi í eftir­dragi. Fjöl­skyldan kom sér fyrir á tjald­stæði í borginni og fékk hlýjar móttökur hjá borgar­yfirvöldum. Engan grunaði þá að 43 árum síðar, og margfalt stærri, yrði fjöl­skyldan enn á framfæri danskra skatt­borgara, enginn úr þessum hópi myndi nokkru sinni sjá sér farborða með launaðri vinnu og hún hefði þegið jafngildi 1.600 milljóna íslenskra króna frá dönskum skatt­borgurum.

Borgþór er hvergi nærri hættur en hægt er að lesa nýjustu frétta­skýringu hans hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár