Sígaunafjölskylda hefur lifað sældarlífi á „danska kerfinu“ í áratugi

Árið 1972 kom júgóslav­nesk sígauna­fjöl­skylda til Kaup­manna­hafnar á gömlum Opel bíl með hrör­legt hjól­hýsi í eft­ir­dragi. Fjöl­skyldan kom sér fyrir á tjald­stæði í borg­inni og fékk hlýjar mót­tökur hjá borg­ar­yf­ir­völdum. Engan grun­aði þá að 43 árum síðar, og marg­falt stærri, yrði fjöl­skyldan enn á fram­færi danskra skatt­borg­ara, eng­inn úr þessum hópi myndi nokkru sinni sjá sér far­borða með laun­aðri vinnu og hún hefði þegið jafn­gildi 1.600 millj­óna íslenskra króna frá dönskum skatt­borg­urum.

Þegar Levakovic fjöl­skyldan kom til Dan­merkur sum­arið 1972 var hún búin að ferð­ast um Skand­in­avíu í nokkra mán­uði. Fólkið kom frá Króatíu, sem þá var hluti Júgóslavíu og var með júgóslav­nesk vega­bréf. Um ástæður þess að fjöl­skyldan yfir­gaf heima­landið er fátt vitað. Núver­andi „höfuð ætt­ar­innar“ Gimi Levakovic, sem var tveggja ára þegar fjöl­skyldan sett­ist að í Danmörku, sagði í við­tali að for­eldrar sínir hefðu, eins og gengur og ger­ist, verið að leita að betra lífi. Það hefðu þau fundið hér í Danmörku.

Starfs­menn borg­ar­innar tóku vel á móti Levakovic fólk­inu. Leið­beindu þeim varð­andi allt það sem til­heyrir flutn­ingi til lands­ins, búsetu­skrán­ingu og útvegun hús­næðis, kynntu fjöl­skyld­unni skóla-og heil­brigð­is­kerfið og, síð­ast en ekki síst, hvaða mögu­leika á opin­berri fjár­hags­að­stoð fólk, sem nýkomið væri til lands­ins, ætti rétt á. Þau Levakovic voru mjög ánægð með við­tök­urnar og sett­ust að á Amager og hafa búið þar allar götur síðan.

Fara sér hægt í atvinnuleitinni


Meðal þess sem starfs­menn Kaup­manna­hafn­ar­borgar útskýrðu fyrir þessum nýjum íbúum voru atvinnu­mögu­leikar og hvernig skyldi bera sig að í þeim efnum. Mik­il­vægt væri að finna vinnu við hæfi, ekki endi­lega taka það fyrsta sem byð­ist heldur vanda valið. Það má með sanni segja að fjöl­skyldan hafi ekki rasað um ráð fram í atvinnu­leit­inni því nú, 43 árum síðar, hefur eng­inn úr þess­ari fjöl­skyldu, sem nú telur yfir 40 manns, fundið vinnu við hæfi. Það kom sem sé fljót­lega í ljós að þau Levakovic höfðu afar tak­mark­aðan áhuga á því að afla sér tekna með hefð­bundum hætti en kynntu sér þeim mun betur öll lög og reglur varð­andi fram­færslu­líf­eyri og aðra opin­bera fjár­hags­að­stoð.

Góðkunningjar lögreglunnar


Þeir sem verðir laga og reglu þurfa iðu­lega að hafa afskipti af og þekkja vel til eru stundum nefndir góð­kunn­ingjar lög­regl­unnar. Levakovic fjöl­skyldan er sann­ar­lega meðal þeirra sem lag­anna verðir þekkja vel til en myndu tæp­ast tengja við nokkuð gott.

[quote font="0" align="right"]Þau Levakovic hafa í dönskum fjöl­miðlum iðu­lega verið kölluð ill­ræmdasta fjöl­skylda Dan­merkur. [/quote]

Eftir að fjöl­skyldan fór frá Króatíu og sett­ist að hér í Danmörku kom brátt í ljós að sá lífs­stíll sem hún vildi til­einka sér sam­ræmd­ist ekki hinum opin­bera fram­færslu­líf­eyri sem íbúar lands­ins fá í sinn hlut, þeir sem rétt eiga á slíku. Fram hefur komið í blöðum að á síðsta ári fékk fjöl­skyldan jafn­gildi rúmra 80 millj­óna íslenskra króna úr opin­berum sjóðum. Þetta hefur þó ekki hrokkið til. Karl­arnir, ásamt nokkrum konum, í hinni ört stækk­andi fjöl­skyldu hafa þess vegna um margra ára skeið stundað óhefð­bundna tekju­öflun, rán og grip­deildir. Þar hefur fólkið reynst bæði iðið og ástund­un­ar­samt.

Þau Levakovic hafa í dönskum fjöl­miðlum iðu­lega verið kölluð ill­ræmdasta fjöl­skylda Dan­merkur. Lög­reglan telur að aðeins hafi kom­ist upp um lít­inn hluta þeirra afbrota sem fjöl­skyldan hefur stundað. Afskipti lög­regl­unnar af þess­ari „atvinnu­starf­semi“ hefur stundum truflað heim­il­is­frið­inn: ætt­ar­höf­uðið, Gimi Levakovic (46 ára) hefur sam­tals setið í grjót­inu í 6 ár og bræður hans og bræðra­synir hafa margoft setið inni, um lengri eða skemmri tíma. Sumum þeirra hefur verið vísað úr landi en þeir snúa jafn­harðan aftur og taka upp fyrri iðju. Allir karl­menn átján ára og eldri hafa, að einum und­an­teknum, kom­ist í kast við lögin. Við laus­lega taln­ingu fann sá sem þennan pistil skrifar 280 fréttir sem tengj­ast fjöl­skyld­unni og á síð­asta ári skráði lög­reglan 203 mál sem tengj­ast fjöl­skyld­unni og 60 sinnum var ein­hver úr fjöl­skyld­unni kall­aður til yfir­heyrslu vegna afbrota.

Sjónvarpsþátturinn


Núna í jan­úar sýndi danska sjón­varps­stöðin TV2 tvo sjón­varps­þætti um Levakovic fjöl­skyld­una. Þætt­irnir voru gerðir með sam­þykki fjöl­skyld­unnar og þar eru löng við­töl við Gimi Levakovic (ætt­ar­höf­uðið) og Jura bróð­ur­son hans sem nú afplánar 5 ára dóm og verður vísað úr landi. Jura, sem er 26 ára, seg­ist alltaf hafa ætlað sér að verða gangster, það verði hver að finna sína fjöl í líf­inu og þetta sé sín fjöl. Hann lýsti mik­illi óánægju með að verða sendur með rútu til Króatíu þegar afplánun lýkur, slíkt væri við­bót­ar­refs­ing. Hann sagði jafn­framt að hann hefði verið átta ára þegar hann fór að fara með föður sínum í ráns­ferðir, til að læra aðferð­irnar, og hann hefði sjálfur byrjað að stela þegar hann var 13 ára.

[caption id="attachment_18032" align="alignnone" width="1024"] Ætt­ar­höf­uðið Gimi Levakovic í við­tali í sjón­varps­þætt­inum sem TV2 gerði um fjöl­skyld­una hans.[/caption]

Þegar ætt­ar­höf­uðið Gimi var spurður hvernig á því stæði að hann hefði aldrei unnið neitt svar­aði hann því til að hann áliti að til þess að fá vinnu þyrfti menntun og hana hefði hann ekki. „Hefurðu aldrei íhugað að afla þér mennt­unar?“ spurði sjón­varps­mað­ur­inn. „Nei, aldrei“ var svarið. Gimi á tvö ung börn á skóla­aldri, hvor­ugt þeirra gengur þó í skóla, hann seg­ist að sjálf­sögðu vilja að börnin fái menntun en þetta sé nú svona. Ein tengda­dóttir bróður hans er 16 ára og á eitt barn, hún hefur ekki verið í skóla í mörg ár. Gimi sagði að ef ung­lings­stúlka væri í skóla heyrði hún talað um kyn­líf og fjöl­skyldan væri jafn­framt viss um að hún ætti kærasta í skól­anum, slíkt gengi ekki. Þegar hann var minntur á skóla­skyld­una sagði hann; „Við sígaunar höfum okkar siði og venjur og Danir verða bara að virða það.“ Hann lagði líka mikla áherslu á gildi fjöl­skyld­unnar sem stæði saman í blíðu og stríðu, „sígaunar eru frið­samir“ sagði hann. Sleppti því hins vegar alveg að minn­ast á að hann barði fyrr­ver­andi konu sína til óbóta og keyrði síðar, eftir að þau voru skilin, á hana þar sem hún var á gangi og stórslas­aði hana.

Viðbrögðin


Sjón­varps­þætt­irnir tveir vöktu mikla athygli. Þar kom fram að þau Levakovic virt­ust hafa það bæri­legt eins og sagt er. Stór­fjöl­skyldan býr í stóru ein­býl­is­húsi á Amager en einnig í öðru slíku í Dragör. Og það eru ekki ein­hverjar útkeyrðar druslur sem fjöl­skyldan ferð­ast í heldur þýskir eðal­vagnar. Hús­bún­að­ur­inn sömu­leiðis ekki af lak­ara tag­inu, eðal­hús­gögn. Margir hafa spurt sem svo: hvernig má það vera að þessi fjöl­skylda geti búið hér ára­tugum saman, lifað góðu lífi á pen­ingum úr sam­eig­in­legum sjóðum lands­manna án þess að lyfta litla fingri í heið­ar­legri vinnu, farið um ruplandi og ræn­andi og fleira í þessum dúr? Fram hefur komið að Gimi (höfuð ætt­ar­innar) hefur ætíð fram­vísað lækn­is­vott­orðum þegar þess hefur verið kraf­ist. Ýmsir draga í efa að hann sé óvinnu­fær en hann seg­ist hald­inn miklum kvíða.

Margir stjórn­mála­menn hafa tjáð sig við fjöl­miðla um fjöl­skyld­una, bæði nú eftir sýn­ingu þátt­anna og á und­an­förnum árum. Sumir þeirra krefj­ast þess að fjöl­skyld­unni allri verði vísað úr landi. Slíkt er þó hæg­ara sagt en gert og þótt höfuð ætt­ar­innar segi að hann og fjöl­skyldan vilji helst vera í Króatíu hefur hann þó ekki sýnt neina til­burði í þá átt að flytja. Á meðan ekk­ert breyt­ist fær Levakovic fjöl­skyldan því áfram sem sam­svarar sjö millj­ónum íslenskra króna á mán­uði og drýgir svo kannski tekj­urnar með sínum aðferðum.


Að gefnu til­efni: Talað er um sígauna en ekki Rómafólk í þess­ari grein. Það er gert vegna þess að í við­tölum við með­limi fjöl­skyld­unnar í Danmörku tala þeir um sjálfa sig sem sígauna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár