Listgjörningur eða skemmdarverk

Brjóst­mynd af Friðriki V Dana­kóngi eyði­lagð­ist þegar deild­ar­stjóri við Kon­ung­lega fag­ur­lista­skól­ann í Kaup­manna­höfn, ásamt hópi nem­enda, henti stytt­unni sem var í sam­komu­sal skól­ans í sjó­inn. List sagði deild­ar­stjór­inn sem hefur verið sendur heim.

Styttan af Friðriki V á kæjanum.
Styttan af Friðriki V á kæj­anum.

Mið­viku­dag­inn 4. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn varð Kim Lindsø, eins og svo oft áður, litið út um glugg­ann á skrif­stofu sinni, skammt frá Nýhöfn­inni. Úr skrif­stof­unni blasir sundið sem skilur að Amager og meg­in­land Sjálands við. Handan sunds­ins er hús danska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, og enn­fremur bryggjan þar sem Gullfoss lá ætíð þegar hann kom til Kaup­manna­hafnar, um ára­tuga­skeið. Hvorki voru það þó Gullfoss eða utan­rík­is­ráðu­neytið sem flugu í gegnum huga Kim Lindsø þegar hann leit út um glugg­ann.

Á bryggju­kant­inum voru um það bil tíu manns, allir í hettu­peysum, með það sem Kim Lindsø sýnd­ist vera brjóst­mynd, á litlum hand­vagni. „Hvad er nu det her for noget hugs­aði ég,“ sagði Kim síðar í blaða­við­tali. Hann fékk þó ekki tæki­færi til að velta því mikið fyrir sér, því skyndi­lega lét hettu­fólkið stytt­una gossa í sjó­inn, en einn úr hópnum var með sím­ann á lofti til að mynda „við­burð­inn“. Varla var styttan lent í sjónum þegar ein­hverjir úr hópnum komu auga á Kim Lindsø í glugg­anum, æptu upp og tók þá allur hóp­ur­inn til fót­anna.

Kim Lindsø klór­aði sér í koll­inum yfir því sem hann hafði séð en ákvað síðan að rétt­ast væri að láta lög­regl­una vita.

Auður stallur stofnandans

Það tók ekki langan tíma að finna út hvað það var sem sturtað var í höfn­ina því þennan sama dag kom í ljós að brjóst­mynd af Friðriki V var horfin af stalli sínum í sam­komusalnum á Charlottenborg, þar sem Fag­ur­lista­skól­inn er til húsa. Þegar Kim Lindsø var sýnd mynd af stytt­unni sem saknað var taldi hann engan vafa leika á að hún væri sú sem hann hefði séð sturtað fram af bryggju­kant­inum .

Ástæða þess að brjóst­myndin hefur verið á áber­andi stalli í sam­komusalnum er ekki til­viljun. Friðrik V (1723 – 1766) stofn­aði nefni­lega Fag­ur­lista­skól­ann árið 1754, á þrjá­tíu og eins árs afmæli sínu. Fyrsti rektor skól­ans var Frakkinn Jacques Saly (1717 – 1776). Skólinn hefur frá upp­hafi verið til húsa í Charlottenborgarhöllinni við Kóngsins Nýjatorg. Höllin var reist á árunum 1672 til 82 og hét upp­haf­lega Gyld­en­løves Palæ. Árið 1700 keypti Charlotte Amalie, ekkja eftir Kristján V, höll­ina sem síðan hefur borið nafn hennar. Gegnum tíð­ina hafa margir af þekkt­ustu mynd­list­ar­mönnum Dana stundað nám við skól­ann. Sæmundur Hólm (1749 -1821) var fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem stund­aði nám við Aka­dem­í­una, eins og skól­inn er iðu­lega kall­aður, en þangað hafa margir úr hópi þekkt­ustu mynd­list­ar­manna Íslend­inga sótt menntun sína. Margir kunnir íslenskir arki­tektar hafa sömu­leiðis stundað þar nám. Mynd­list­ar­deild Aka­dem­í­unar er enn til húsa á Charlottenborg en arki­tekta­deildin er flutt út á Krist­jáns­höfn.

Styttan ónýt eftir að liggja í sjónum

Styttan, eða rétt­ara sagt leif­arnar af henni, voru auð­fundnar. Þegar þær höfðu verið hífðar upp á bryggj­una sást að styttan, sem er úr gifsi, hafði ekki haft gott af dvöl­inni á sjáv­ar­botni, var svo að segja ónýt. Á mynd­bandi sem tekið var upp þegar stytt­unni var kastað í sjó­inn sást að þegar hún skall í sjónum datt höf­uðið af. Leif­arnar af því fund­ust líka á botn­inum.

Grunurinn beindist strax að „innanhússfólki“

Grunur lög­reglu og for­svars­manna Aka­dem­í­unar beind­ist strax að nem­endum skól­ans. Sá grunur var stað­festur þegar mynd­band af atburð­inum var lagt á netið. Samhliða mynd­bands­birt­ing­unni var birt yfir­lýs­ing frá hópnum. Þar kom fram að til­gang­ur­inn með því að kasta stytt­unni í sjó­inn væri að vekja athygli á og mót­mæla þræla­sölu og þræla­haldi Dana fyrr á tímum.

Segl­skipið Friderich er talið vera meðal fyrstu skipa sem fluttu þræla frá Gana til Dönsku Vestur-Indía. Skip þetta var í eigu U.F. Gyld­en­løve, en hann byggði höll­ina sem hýsir Aka­demína. Hluti grjóts­ins sem notað var í höll­ina kom frá eyj­unni St. Thomas, hafði verið notað sem ball­est í „þræla­skipið“. Áður­nefndri yfir­lýs­ingu nem­enda fylgdu engin nöfn.

Deildarstjóri hringir

Þrátt fyrir mikla eft­ir­grennslan tókst lög­reglu ekki að kom­ast að hverjir hefðu fjar­lægt stytt­una af stall­inum og kastað henni í sjó­inn.

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, þann 19. nóv­em­ber, hringdi sím­inn á rit­stjórn­ar­skrif­stofu dag­blaðs­ins Politi­ken. Í sím­anum var kona sem sagð­ist heita Katrine Dirckinck-Holmfeld og vera deild­ar­stjóri í Aka­dem­í­unni. Hún hefði fjar­lægt stytt­una af stall­inum í sam­komusalnum og kastað henni í sjó­inn. Hún hafði sömu­leiðis skrifað rektor skól­ans og sam­stundis verið send heim, um óákveð­inn tíma. Hún vildi ekki upp­lýsa hverjir hefðu aðstoðað sig við að kasta stytt­unni í sjó­inn.

Uppákoman hafði ákveðinn tilgang

Í við­tali við Politi­ken og í frétta­skýr­inga­þætt­inum Deadline í danska sjón­varp­inu, DR, sagð­ist Katrine Dirckinck-Holmfeld ekki líta á upp­á­kom­una (happ­en­ing var orðið sem hún not­aði) sem skemmd­ar­verk. Upp­á­koman hefði þjónað ákveðnum til­gangi, sem sé að vekja athygli á þeirri stað­reynd að Danir hefðu aldrei gert upp við þennan svarta blett, þræla­tíma­bilið, í sögu sinni.

Þá var spurt hvort rétta leiðin til að gera upp við þennan tíma í sögu Dan­merkur væri að eyði­leggja lista­verk eftir fyrsta rektor Aka­dem­í­unnar. Katrine Dirckinck-Holmfeld sagð­ist vita að umrædd stytta væri afsteypa, ein fjöl­margra slíkra. Þar að auki væri þessi afsteypa hvorki sér­lega gömul né verð­mæt „kannski 60 til 70 ára“. Og þannig séð ekki sér­lega merki­leg.

Hvorki gömul né verðmæt

Ofan­greind ummæli vöktu athygli. Margir, meðal ann­ars stjórn­mála­menn og list­fræð­ingar höfðu sagt stytt­una ómet­an­legt lista­verk. For­svars­menn á Aka­dem­í­unni gátu í fyrstu ekki svarað til um aldur og verð­mæti stytt­unnar. Þegar sér­fræð­ingar höfðu skoðað stytt­una, eða það sem eftir var af henni, kváðu þeir upp úrskurð sem stað­festi ummæli Katrine Dirckinck-Holmfeld.

Styttan væri afsteypa, gerð ein­hvern­tíma eftir 1950. Til væru margar slíkar, frá mis­mun­andi tímum, og árið 2017 hefði ein verið seld á upp­boði í Kaup­manna­höfn fyrir 18 þús­und krónur danskar (390 þús­und íslenskar). Frum­gerð­ina hefði höf­und­ur­inn, Jacques Saly, haft með sér heim til Frakk­lands árið 1774, þegar hann lét af störfum sem rektor við Aka­dem­í­una.

For­svars­mönnum Aka­dem­í­unnar var létt þegar þessar nýju upp­lýs­ingar lágu fyrir. Sama gildir um marga aðra, t.d. stjórn­mála­menn, sem höfðu haft uppi stór orð um „þennan glæp“ eins og sumir þeirra orð­uðu það.

Hins vegar sé engan veg­inn hægt að afsaka gjörðir deild­ar­stjór­ans og þeirra sem tóku þátt í „upp­á­kom­unni“. Þess má geta að málið var strax eftir að upp um það komst kært til lög­reglu.

Flytja mörg verk á öruggari staði

Þótt Katrine Dirckinck-Holmfeld hafi ekki viljað upp­lýsa um aðstoð­ar­fólkið, virð­ist ekki leika vafi á að það hafi allt verið nem­endur við Aka­dem­í­una. Í dag­blað­inu Berl­ingske sagði nem­andi, sem ekki vildi láta nafns síns getið, að hóp­ur­inn sem kastaði kóngs­stytt­unni í hafið, myndi ekki láta staðar numið. Þessi yfir­lýs­ing varð til þess að fjöl­mörg lista­verk, sögu­leg og verð­mæt, sem verið hafa í húsa­kynnum Aka­dem­í­unnar hafa nú verið flutt í örugga geymslu. Tals­maður skól­ans sagði þetta gert í örygg­is­skyni.

Innan Aka­dem­í­unnar hafa um langt skeið staðið miklar deilur, meðal ann­ars um stjórnun skól­ans og kennslu­hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár