Kórónufrumvarp

Lokaðar kórónur má ekki nota.
Lokaðar kór­ónur má ekki nota. Mynd: EPA

Stundum er sagt að ekk­ert mál sé svo lít­il­fjör­legt að lög­gjaf­ar­valdið geti ekki séð ástæðu til að setja um það lög og fram­kvæmda­valdið fylgt fram­kvæmd­inni eftir og dregið fyrir rétt þá sem ekki fylgja lög­unum. Dæmi um slíkt smá­mál, að flestra mati, er frum­varp sem danski menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann hefur lagt fram á danska þing­inu, Fol­ket­inget. Frum­varpið fjallar um til­tekið tákn, nánar til­tekið kór­ónu. Svo­nefnda lok­aða kór­ónu. „Kór­ón­u­málið“ eins og það er kallað komst í frétt­irnar í fyrra og var um það fjallað í fjöl­miðlum víða um lönd, meðal ann­ars hér í Kjarn­anum. Flestum finnst kannski ótrú­legt að ráð­herra í rík­is­stjórn Dan­merkur skuli leggja fram frum­varp um slíkt smott­erí. En, þeim sem eiga hags­muna að gæta varð­andi þetta frum­varp finnst það hreint ekk­ert smott­erí heldur stór­mál sem varði bæði heiður og sögu­lega hefð.

600 ára gömul lög

Frá þrett­ándu öld og fram á þá fimmt­ándu fengu all­margar danskar krár sér­stakt leyfi kon­ungs til að baka brauð, brugga öl og eima áfengi. Krárnar sem fengu hið kon­ung­lega leyfi (einsog það hét) stóðu flestar við helstu vegi lands­ins og átti með leyf­is­veit­ing­unni að tryggja að ferða­langar gætu fengið mat og gist­ingu. Þeir sem fengu kon­ung­lega leyfið aug­lýstu með því að nota kór­ónu­eft­ir­lík­ingar sem hengdar voru upp utandyra ásamt nafni stað­ar­ins. Kórónuna not­uðu líka margir til að skreyta mat­seðla, serví­ettur, hnífa­pör, diska og glös. Kórónan var eins­konar gæða­stimp­ill. Þetta var löngu áður en franski hjól­barða­fram­leið­and­inn Michelin var orð­inn eins konar heims­yf­ir­dóm­ari á sviði mat­ar­gerð­ar­listar og dag­blöðin með sínar stjörnu­gjafir ekki orðin til.

Þó líði ár og öld

Þótt eng­inn tengi þetta texta­brot úr þekktu dæg­ur­lagi við laga­setn­ingur og stjórn­sýslu eiga orðin vel við kór­ónu­lögin, sem þrátt fyrir nafnið giltu um veit­inga­sölu Þau voru nefni­lega í gildi í um það bil 600 ár, til árs­ins 1912. Það ár voru sett lög sem bönn­uðu alla notkun „kongekronen“, án sér­staks leyfis og þeim sem not­uðu kór­ón­urnar bæri að fjar­lægja þær að við­lagðri refs­ingu. Þessi laga­setn­ing breytti engu, kór­ón­urnar héngu eftir sem áður við krár þær sem áður höfðu leyfið og eng­inn amað­ist við þessum aldagamla skrauti. En allt tekur enda.

Eigendur kóngakráa fá bréf

Árið 2012 kom nýr deild­ar­stjóri til starfa á danska Rík­is­skjala­safn­inu. Meðal þess sem hann rak augun í á nýja vinnu­staðnum voru lögin um kór­ónu­bannið. Deild­ar­stjór­ann minnti að hann hefði ein­hvers­staðar á ferðum sínum um Dana­veldi séð slíka kór­ónu hanga yfir dyrum. Þegar hann kann­aði málið kom í ljós að ekki hafði verið gerð minnsta til­raun til að fram­fylgja kór­ónu­bannslög­unum þótt þau hefðu verið í gildi í heila öld. „Þetta gengur ekki“ hugs­aði deild­ar­stjór­inn og ákvað að ráð­ast gegn þessum lög­brotum sem staðið höfðu í heila öld án þess að nokkur lyfti svo mikið sem litlafingri. Hann sendi eig­endum kór­ónu­kránna bréf undir árs­lok 2013 og fyr­ir­skip­aði að kór­ón­urnar skyldu þegar í stað fjar­lægðar.

Krá­ar­eig­endur klór­uðu sér í koll­inum og ákváðu svo að sjá til. En deild­ar­stjór­inn ætl­aði ekki að sjá til, hann sendi annað og harð­orð­ara bréf þar sem kraf­ist var svara um hvenær við­kom­andi hygð­ist fjar­lægja kór­ónur sem honum til­heyrðu. Rík­is­skjala­safnið myndi grípa til aðgerða ef skip­unum yrði ekki fram­fylgt. Benti líka á að form­lega hefði kór­ónu­notk­unin aldrei verið leyfð en nota mætti svo­kall­aða opna kór­ónu í stað hinnar hefð­bundnu lok­uðu. Nokkrir krá­ar­eig­endur fengu í fram­haldi heim­sókn lög­reglu­manna sem sögð­ust vera að kanna hvort fyr­ir­mælum Rík­is­skjala­safns­ins hefði verið fylgt. Ekki kom til handa­lög­mála en krá­ar­eig­endur spurðu hvort Rík­is­skjala­safnið væri orðin yfir­stjórn lög­regl­unnar. Kór­ón­urnar héngu svo áfram á sínum stað, einn krá­ar­eig­andi fjar­lægði þó kór­ónu sem hékk yfir úti­dyr­unum.

Kráareigendur þráast við

Margir krá­ar­eig­endur sögðu í við­tölum að þeim hefði brugðið nokkuð við hót­un­ar­bréfið og heim­sóknir lög­regl­unnar. Þeir ætl­uðu þó ekki að ana að neinu og það hefði tekið Rík­is­skjala­safnið heila öld að koma þessum skip­unum um kór­ón­urnar til við­tak­enda. „Það er ákveðið við­mið um við­bragðs­hraða“ sagði einn þeirra.

Þingmenn ekki upprifnir

Þegar „kór­ón­u­málið“ komst í fjöl­miðla fyrir rúmu ári voru þing­menn meðal þeirra sem ekki voru upp­rifnir yfir vinnu­semi deild­ar­stjór­ans. „Er Rík­is­skjala­safnið orðið ein­hvers­konar lög­regla sem getur hótað sektum og hver veit hvað“ sagði þing­maður í blaða­við­tali. Annar benti á að þessar gömlu krár væru allar frið­aðar og það bryti í bága við lög að breyta þar nokkru, utandyra eða innan. Nokkrir þing­menn gerðu stólpa­grín að deild­ar­stjór­anum og yfir­mönnum hans. „Þessir starfs­menn ættu kannski að ein­beita sér að því að varð­veita þau skjöl sem þeim er trúað fyrir en ekki láta stela þeim úr safn­inu“ (fyrir nokkru kom í ljós að hund­ruð verð­mætra skjala hafa horfið úr safn­inu). Málið hefur líka verið rætt í þing­inu og fram kom þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem ekki var þó afgreidd.

Ráðherra leggur fram frumvarp

Bertel Haarder var meðal þeirra sem lýsti undrun sinni á fram­göngu deild­ar­stjór­ans sam­visku­sama og bréfa­skrifum hans. Nú er Bertel Haarder orð­inn menn­ing­ar­mála­ráð­herra og hann lagði fyrir nokkrum dögum fram frum­varp sem heim­ilar þeim sem þegar nota kór­ón­urnar, og hafa gert um langa tíð, að nota þær áfram á sama hátt og verið hefur um aldir. „þetta flokk­ast undir skyn­semi“ sagði ráð­herr­ann.

Yfir­stjórn Rík­is­skjala­safns­ins hefur ekki viljað tjá sig um frum­varpið en deild­ar­stjór­inn rögg­sami er nú orð­inn fyrr­ver­andi deild­ar­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár