Skuggar fortíðar í stúlknakórnum

Michael Bojesen, einn þekkt­asti hljóm­sveit­ar­stjóri Dan­merkur og núver­andi for­stjóri Malmö óper­unnar er kom­inn í ótíma­bundið leyfi. Ástæðan er frá­sagnir stúlkna sem voru í Stúlkna­kór danska útvarps­ins undir hans stjórn frá 2001 – 2010.

Pigekoret, stúlknakór danska ríkisútvarpsins, með núverandi kórstjóra.
Pig­ekoret, stúlkna­kór danska rík­is­út­varps­ins, með núver­andi kór­stjóra. Mynd: DR

Fyrir rúmri viku, laug­ar­dag­inn 5. júní, birti dag­blaðið Politi­ken langa umfjöllun um Stúlkna­kór danska útvarps­ins, Pig­ekoret. Umfjöllun blaðs­ins vakti mikla athygli og nær allir danskir fjöl­miðlar greindu frá umfjöllun blaðs­ins og því sem þar kom fram.

Kórinn var stofn­aður árið 1938, hét þá Radi­opig­ekoret en síðar var nafn­inu breytt í DR pig­ekoret. Eins og nafnið gefur til kynna er kór­inn ein­göngu skip­aður stúlkum, á aldr­inum 15 – 22 ára, dæmi eru þó um að stúlkur niður í 13 ára gamlar hafi sungið í kórnum. Að jafn­aði eru 50 stúlkur í kórnum, flestar þeirra hafa áður sungið í einum eða fleirum þeirra þriggja kóra sem til­heyra kór­skóla danska útvarps­ins, fyrir yngri stúlkur. Mjög eft­ir­sótt er að kom­ast í stúlkna­kór­inn, sem er virtur og mik­ils met­inn, langt út fyrir danska land­steina. Að jafn­aði heldur kór­inn árlega í kringum 60 tón­leika, flesta í heima­land­inu. Einnig ferð­ast kór­inn til ann­arra landa til tón­leika­halds enda mjög eft­ir­sóttur. Líf stúlkn­anna snýst að veru­legu leyti um kór­starfið og það sem því til­heyrir.

Sex stjórnendur

Frá stofnun kórs­ins árið 1938 hafa aðeins sex stjórn­endur, allt karlar, haldið um tón­sprot­ann. Einn þeirra, Tage Morten­sen, stjórn­aði kórnum í 35 ár, frá 1966 – 2001. Þá tók Michael Bojesen við stjórn­inni, hann hélt um sprot­ann til árs­ins 2010. Núver­andi stjórn­andi Philip Faber tók við sem stjórn­andi árið 2013.

Gátu ekki þagað lengur

Fyrir nokkru hafði fyrr­ver­andi félagi í kórnum, kona sem nú er rúm­lega þrí­tug, sam­band við blaða­mann dag­blaðs­ins Politi­ken, og sagði frá því sem hún kall­aði „leynd­ar­málið í stúlkna­kórnum“, í tíð Michael Bojesen. Blaða­mað­ur­inn spurði strax hvort fleiri sem voru í kórnum gætu stað­fest frá­sögn hennar. „Hvað viltu fá mörg nöfn“ var svarið. Í fram­haldi af þessu sím­tali komst blaða­mað­ur­inn í sam­band við á annan tug kvenna sem verið höfðu í kórnum á ára­bil­inu 2001 – 2010. Þær höfðu allar sömu sögu að segja. „Af hverju viljið þið tala núna“ spurði blaða­maður Politi­ken. „Við getum ekki þagað lengur“ sögðu kon­urnar og sögðu að þegar þær voru í kórnum hefðu þær verið ungar og ekki þorað að gera, eða segja, neitt af ótta við að það myndi skaða fram­tíð þeirra í kórnum.

Michael Bojesen

Eins og nefnt var hér að framan tók Michael Bojesen við stjórn Stúlkna­kórs­ins árið 2001. Hann var fer­tugur að aldri, vel mennt­aður og reyndur kór­stjórn­andi. Michael Bojesen tók við góðu búi af Tage Morten­sen, sem á sínum 35 kór­stjóra­árum skap­aði kórnum þann virð­ing­ar­sess sem hann nýtur nú. Danskir fjöl­miðlar töl­uðu um nýtt blóð og ferska vinda sem fylgdu nýjum stjórn­anda en hrósuðu jafn­framt Tage Morten­sen í hástert fyrir hans mikla starf.

Útlitið og klæðnaðurinn skipti máli

Fljót­lega eftir að Michael Bojesen tók við stjórn kórs­ins töldu margar stúlkn­anna sig skynja ákveðna breyt­ingu. Hún sneri ekki að söng og laga­vali, þar varð engin breyt­ing.

Vegna þess að kór­inn er ald­urs­bland­aður, stúlk­urnar á aldr­inum 15 – 22 ára end­ur­nýj­ast hluti kórs­ins nán­ast árlega.

Stúlkur sem sóttu um að kom­ast í kór­inn, og líka þær sem fyrir voru, veittu því athygli að eftir að Michael Bojesen tók við stjórn­inni breytt­ist eitt­hvað. Þeim fannst sem þær væru skyndi­lega komnar inn í ein­hvers­konar „karla­klúbb“, orðnar stúlk­urnar hans Michael. Það var skyndi­lega orðin aukin áhersla á útlitið og klæðn­að­inn. Ein þeirra sem Politi­ken tal­aði við sagði greini­legt að Michael Bojesen hefði veitt þeim stúlkum sem voru djarfari í klæða­burði meiri athygli. Sama hefði gilt um gesta­söngv­ara sem unnu með kórnum. „Það var verið að reyna að ýta okkur út í að vera ein­hvers­konar kyn­tákn, okkur sem vorum vart af barns­aldri. Það fór ekki fram hjá okkur að athygli gesta­söngv­ar­anna beind­ist að þeim okkar sem voru djarfari í klæða­burði.“

Ekki hlustað á kvartanir

Þegar stúlk­urnar fóru að tala um þessi mál heima fyrir var for­eldr­unum brugðið. Nokkrir þeirra kvört­uðu til yfir­stjórnar kórs­ins en það bar engan árangur. Einn við­mæl­andi Politi­ken sagð­ist hafa fundið andúð stjórn­and­ans þegar hann vissi að for­eldrar sínir hefðu kvartað. Hún gafst á end­anum upp og hætti í kórnum. Önnur stúlka, 17 ára, kvart­aði til yfir­stjórn­ar­innar eftir að hún hafði séð skila­boð sem stjórn­and­inn sendi jafn­öldru hennar.

Íslandsferðin

Eins og áður sagði tók Michael Bojesen við stjórn kórs­ins árið 2001. Hann hafði reyndar stjórnað kórnum á jólatón­leik­unum 2020 vegna veik­inda Tage Morten­sen. Meðal fyrstu verk­efna kórs­ins undir stjórn Michael Bojesen var tón­leika­ferð til Íslands vorið 2001. Þar söng kór­inn meðal ann­ars í Hall­gríms­kirkju, við góðar und­ir­tektir.

Stúlk­urnar í kórnum veittu því athygli að það var eitt­hvað „í gangi“ milli stjórn­and­ans og einnar stúlku í kórnum. Þetta þótti stúlk­unum mjög óþægi­legt og gátu vart um annað rætt, stjórn­and­inn var rétt að verða 41 árs en stúlkan 17 ára. Þegar Michael Bojesen frétti af því að stúlk­urnar væru í upp­námi boð­aði hann þær til fundar. Hann var að sögn við­mæl­enda Politi­ken æstur og reiður, sagði að þær ættu ekki að vera að pískra eitt­hvað sín á milli og kannski væru ein­hverjar öfund­sjúkar yfir hver fengi að syngja ein­söng á tón­leik­unum.

En skömmu síðar kom í ljós að pískrið var ekki ástæðu­laust, þetta sem var „í gangi“ milli stjórn­and­ans og stúlkunnar var upp­haf ást­ar­sam­bands. Stúlkan hætti skömmu síðar í kórnum og þau stjórn­and­inn gift­ust og það hjóna­band stendur enn.

Karlaveldi

Þegar blaða­menn Politi­ken spurðu hvers vegna stúlk­urnar hefðu ekki snúið sér til hljóm­sveit­ar­stjór­ans Per Erik Veng sögðu þær að það hefði ekk­ert þýtt. Hann hefði verið í „karla­klúbbnum“ með Michael Bojesen. Hann hefði verið klæm­inn og sent stúlkum í kórnum óvið­eig­andi skila­boð eins og til dæmis „giftur en til í tuskið“.

Árið 2003 fór kór­inn í tón­leika­ferð til Suður-Afríku. Þeirrar ferðar minn­ast þær sem Politi­ken ræddi við, og tóku þátt í ferð­inni, vel. Mat­ar­eitrun kom upp í hópnum og margar urðu mjög veikar. Ein nefndi að þegar stúlk­urnar lágu á sund­laug­ar­bakka hefði þær rætt um hvernig karl­arnir, kór­stjór­inn og fleiri, gláptu á þær. „það var ekk­ert ólög­legt við þetta, en mjög óþægi­legt“.

M Magazine

Haustið 2002 fékk yfir­stjórn Stúlkna­kórs­ins bréf frá rit­stjóra tíma­rits­ins M Magazine. Rit­stjór­inn sagð­ist hafa fengið um það ábend­ingu frá Michael Bojesen að ef til vill væri til­valið að fá stúlkur úr Stúlkna­kórnum til að sitja fyrir á myndum sem síðar yrðu birtar í blað­inu. Rit­stjór­inn spurði hvort þessi hug­mynd nyti stuðn­ings yfir­stjórnar kórs­ins. Yfir­stjórnin svar­aði að engin slík mynda­taka kæmi til greina. Michael Bojesen sagði að rit­stjóri M Magazine hefði haft sam­band við sig og viðrað hug­mynd­ina.

M Magazine kall­aði sig stráka­blað og þar birt­ust myndir af fáklæddum stúlkum og ýmis­konar kjafta­sögur, heil­ræði um kyn­líf og fleira í þeim dúr. Blaðið kom fyrst út árið 2000 en útgáf­unni var hætt árið 2015.

Kínaferðin

Í júlí 2004 fór Stúlkna­kór­inn til Kína og söng í Shanghai og Beijing. Kórinn vakti mikla athygli og Alex­andra, þáver­andi eig­in­kona Jóakims prins var með í för. 35 ára gesta­söngv­ari tók sömu­leiðis þátt í ferð­inni, hann hafði sungið mikið með kórnum eftir að Michael Bojesen tók við sem stjórn­andi. Nokkrar stúlkur í kórnum fengu send skila­boð frá honum, með skila­boðum sem ekki var hægt að mis­skilja. Nokkru eftir heim­kom­una skrif­aði ein þeirra kvört­un­ar­bréf til yfir­stjórnar danska útvarps­ins. Í kjöl­farið var hún kölluð á fund með kór­stjór­anum og hátt­settum starfs­manni útvarps­ins. Í við­tali við Politi­ken sagð­ist stúlkan sem blaðið nafn­greinir, að hún hafi verið neydd til að draga bréfið til baka. Hún gerði það ekki á staðnum og þegar nokkur tími var lið­inn fékk hún orð­send­ingu frá starfs­mann­inum þar sem hann bauðst til að hjálpa henni að skrifa bréfið. Undir þessum þrýst­ingi dró hún bréfið til baka en hætti í kjöl­farið í kórnum.

Karlarnir muna ekkert

Einungis tveir karlar eru nafn­greindir í umfjöllun Politi­ken og ann­arra danskra fjöl­miðla. Michael Bojesen og Per Erik Veng. Þeir og aðrir sem nefndir voru í frá­sögnum stúlkn­anna kann­ast ekki við lýs­ingar þeirra. Michael Bojesen sagð­ist í við­tali við Politi­ken ekki kann­ast við lýs­ingar stúlkanna á flestu sem fram kom í umfjöllun blaðs­ins. Varðandi sam­band hans við stúlk­una, sem síðar varð eig­in­kona hans, sagði Michael Bojesen að það hefði gert hinar stúlk­urnar í kórnum óör­uggar að verða vitni að upp­hafi þessa ást­ar­sam­bands.

Áberandi í tónlistarlífinu

Menn­irnir tveir sem nafn­greindir eru í umfjöllun Politi­ken og ann­arra danskra fjöl­miðla hafa um ára­bil verið áber­andi í dönsku tón­list­ar­lífi.

Per Erik Veng var í tæpa tvo ára­tugi stjórn­andi sin­fón­íu­hljóm­sveitar danska útvarps­ins en var rek­inn árið 2007. Þá hafði nem­andi við Hafn­ar­há­skóla skrifað rit­gerð um sam­skipta­vanda í hljóm­sveit­inni. Ári eftir brott­rekst­ur­inn var hann ráð­inn til Dönsku tón­list­araka­dem­í­unnar. Starf hans þar var að sjá um skipu­lagn­ingu tón­leika og við­burða. Síðar var hann menn­ing­ar­full­trúi við sendi­ráð Dan­merkur í Berlín og árið 2016 ráð­inn for­stöðu­maður Menn­ing­ar­stofn­unar Brus­sel­borgar í Belgíu.

Sagði af sér og kominn í leyfi

Michael Bojesen stjórn­aði Stúlkna­kórnum til árs­ins 2010.

Á árunum 2012- 2016 var hann fram­kvæmda­stjóri árlegrar tón­list­ar­há­tíðar í Kaup­manna­höfn, Copenhagen Opera Festival.

Árið 2017 var hann ráð­inn stjórn­andi óper­unnar í Malmö í Svíþjóð. Sama ár var hann jafn­framt skip­aður stjórn­ar­for­maður Lista­sjóðs danska rík­is­ins, Statens kunstfond. Sjóður þessi er mjög áhrifa­mik­ill í dönsku lista- og menn­ing­ar­lífi og úthlutar á þessu ári um 500 millj­ónum danskra króna (um 10 millj­arðar íslenskir) til lista og menn­ing­ar­mála.

Eftir að dag­blaðið Politi­ken birti umfjöllun sína sagði Michael Bojesen af sér for­mennsku og jafn­framt setu í sjóðs­stjórn­inni.

Stjórn Malmö óper­unnar sendi frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­far umfjöll­unar Politi­ken og lýsti fullu trausti og stuðn­ingi við Michael Bojesen sem óperu­stjóra. Blekið var varla þornað á und­ir­skrift stjórn­ar­innar þegar Michael Bojesen til­kynnti að hann færi í ótíma­bundið leyfi frá óper­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár