Burt með gettóin

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag storm­uðu átta danskir ráð­herrar inn á Mjølnerpar­ken á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn. Slíkt er ekki dag­legur við­burður. Tilefnið var að kynna áætlun dönsku rík­is­stjórn­ar­innar um að upp­ræta hin svoköll­uðu gettó.

Und­an­farið hefur umfjöllun um gettóin, vand­ræða­hverfin, verið fyr­ir­ferð­ar­mikil í dönskum fjöl­miðlum. Ástæður þess­arar umfjöll­unar eru nokkrar. Þar má nefna átök glæpa­gengja sem hafa aðsetur á Norð­ur­brú í Kaup­manna­höfn, í kringum áður­nefndan Mjølnerpark og vax­andi ótta almenn­ings sem sakar stjórn­völd og lög­reglu um úrræða­leysi. Þetta teng­ist líka umræðum um mál­efni flótta­fólks og hæl­is­leit­enda (það fólk býr ekki í gettó­unum) og hefur beint athygl­inni að mál­efnum og stöðu inn­flytj­enda og afkom­enda þeirra sem margir hverjir búa í vand­ræða­hverf­unum. Sumum þeirra inn­flytj­enda sem komu til Dan­merkur fyrir mörgum árum, jafn­vel ára­tugum, hefur gengið illa að fóta sig í dönsku sam­fé­lagi. Vilja helst halda þeim siðum og venjum sem ríktu í gamla heima­land­inu, t.d. varð­andi klæða­burð, trú­ar­iðkun, verka­skipt­ingu á heim­ilum o.s.frv.

Einskonar hliðarsamfélag

Orðið gettó, sem notað er í mörgum tungu­málum, er alda­gam­alt en upp­runinn óljós. Eitt elsta dæmi um slíkt hverfi er frá 11. öld, í Prag. Árið 1462 varð til í Frank­furt í Þýska­landi hverfi gyð­inga, og í Feneyjum varð til slíkt hverfi snemma á 16. öld. Fram til þess tíma hafði gyð­ingum ekki verið heim­ilt að búa í Feneyjum en árið 1516 fengu þeir heim­ild til að búa í sér­stöku hverfi í borg­inni, með ströngum skil­yrðum. Það hverfi var nefnt gettó. Fleiri dæmi mætti nefna, til dæmis að árið 1692 lagði lög­reglu­stjór­inn í Kaup­manna­höfn til að til yrði sér­stakt gyð­inga­hverfi í borg­inni en ekk­ert varð úr þeirri hug­mynd. Á árum síð­ari heims­styrj­ald­ar­innar stofn­uðu þýsku nas­ist­arnir fjöl­mörg gyð­inga-gettó, í löndum Austur-Evrópu.

Í dag er notkun orðs­ins ekki bundin við hverfi gyð­inga, heldur er þar átt við eins­konar hlið­ar­sam­fé­lag. Hverfi þar sem sem fólk af sama upp­runa býr og mann­lífið lýtur á ýmsan hátt öðrum lög­málum en ann­ars gilda.

Dönsk gettó

Árið 1964 var orðið gettó í fyrsta sinn nefnt í Danmörku. Þá fjall­aði dag­blaðið Berl­ingske Tidende (nú Berl­ingske) um afmark­aða bæj­ar­hluta á Aust­ur­brú, Norð­ur­brú og Vest­ur­brú. Þessi hverfi áttu það sam­eig­in­legt að þar bjó fólk sem flutt hafði til Dan­merkur, í leit að betra lífi. Íbúð­irnar í þessum bæj­ar­hlutum voru litlar og íbú­arnir áttu það sam­eig­in­legt að hafa lítið handa á milli.

Á sjötta og sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar fluttu margir útlend­ingar til Dan­merkur, í atvinnu­leit. Tyrkir voru fjöl­menn­astir. Margir þeirra sett­ust að í hverfum í nágrenni Kaup­manna­hafnar, einkum vestan við borg­ina. Orðið gettó var ekki notað um þessi hverfi. Á þeim tíma þótti heppi­legt að inn­flytj­endur byggju á sama svæði, rök­semdin var sú að þannig myndu þeir hjálpa hver öðrum, meðan þeir væru að koma sér fyrir og kynn­ast aðstæðum. Afleið­ingin varð hins­vegar sú að þarna mynd­uð­ust hverfa­kjarnar þar sem íbú­arnir voru nán­ast allir af sama þjóð­erni. Þeir héldu sínum siðum, umgeng­ust nær enga aðra en landa sína og lærðu aldrei dönsku. Í frétta­skýr­inga­þætti sem nýlega var sýndur í danska sjón­varp­inu kom fram að mörg dæmi eru um fólk af erlendum upp­runa sem getur ekki tjáð sig á dönsku, jafn­vel ekki um ein­föld­ustu atriði. Í dag eru allir á einu máli um að það sé mjög óæski­legt að svo margt fólk af öðru en dönsku þjóð­erni setj­ist að á sama svæð­inu.

Mikil fjölgun innflytjenda

Á und­an­förnum ára­tugum hefur inn­flytj­endum sem sest hafa að í Danmörku fjölgað mikið. Víða í Danmörku hafa orðið til hverfi þar sem hlut­fall inn­flytj­enda og afkom­enda þeirra er mjög hátt. Þrátt fyrir tals­verðar umræður um að óæski­legt væri að til yrðu eins­konar „inn­flytj­enda­hverfi“ fjölg­aði slíkum hverfum frá ári til árs og smám saman fest­ist orðið gettó í sessi. Í ára­móta­ræðu sinni árið 2004 ræddi Anders Fogh Rasmus­sen, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, um þessa óheilla­þróun eins og hann komst að orði, sagði nauð­syn­legt að grípa til ráð­staf­ana, í Danmörku ættu allir að til­heyra sama sam­fé­lag­inu. Þótt margir tækju undir þetta gerð­ist fátt.

Hvað er gettó?

Eftir banka­hrunið 2008 jókst atvinnu­leysi mikið í Danmörku. Það bitn­aði ekki hvað síst á inn­flytj­endum og afkom­endum þeirra. Margt af því fólki stóð illa að vígi, hafði unnið lág­launa­störf, margir með tak­mark­aða menntun, atvinnu­lausum fjölg­aði mikið. Með til­heyr­andi vanda­málum.

Árið 2010 birti rík­is­stjórn Lars Løkke Rasmus­sen áætlun um ýmis konar aðgerðir til að sporna við því sem ráð­herr­ann kall­aði „gettómyndun“. Fram til þess tíma hafði ekki verið til nein eig­in­leg skil­grein­ing á því hvað gettó væri en stjórnin hafði nú látið vinna slíka grein­ingu. Þar voru til­greind fimm atriði og ef þrjú þeirra, eða fleiri eiga við um við­kom­andi hverfi flokk­ast það undir gettó:

  1. Meira en 40 pró­sent íbúa á aldr­inum 18 til 64 ára eru án atvinnu eða stunda ekki nám.
  2. Hlutfall inn­flytj­enda og afkom­enda þeirra er meira en 50 pró­sent.
  3. 3 pró­sent 18 ára eða eldri hafa brotið lög um vopna­burð eða fíkni­efna.
  4. 50 pró­sent íbúa á aldr­inum 30 til 59 ára eru án lág­marks­mennt­unar.
  5. Laun fólks á aldr­inum 15 til 64 ára, og ekki stundar nám, ná ekki 55 pró­sentum með­al­launa sam­svar­andi hóps á sama atvinnu­svæði.

Þetta er semsé sú skil­grein­ing sem notuð hefur verið frá árinu 2010. Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar um aðgerðir breytt­ist fátt. Í dag eru hverfin sem flokk­ast undir gettó skil­grein­ing­una talin vera 22, þau eru víða um land en þau stærstu í Kaup­manna­höfn, Árósum og Óðins­véum.

Burt með gettóin

Margir hafa á und­an­förnum árum ítrekað bent á nauð­syn þess að grípa til rót­tækra aðgerða, hamla gegn því að í borgum og bæjum lands­ins verði til sér­sam­fé­lög fólks af ákveðnum upp­runa. Fólks sem nýtur góðs af „kerf­inu“ en vill að öðru leyti sjálft ráða sínum málum að flestu leyti. Gagn­rýn­is­radd­irnar verða sífellt fleiri og hávær­ari. Þetta hefur ekki farið fram hjá stjórn­mála­mönn­unum. Og nú vill rík­is­stjórnin grípa til aðgerða. Róttækra aðgerða. Áætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem átta ráð­herrar kynntu í Mjølnerpar­ken síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, er í tutt­ugu og tveimur liðum. Nokkur atriði vekja þar mesta athygli. Lars Løkke hafði fyrir nokkrum vikum sagt að nauð­syn­legt væri að breyta íbúa­sam­setn­ing­unni í gettó­unum og í því skyni teldi hann jafn­vel rétt að rífa sumar íbúða­blokkir og breyta öðrum. Með því væri unnt að lækka hlut­fall íbúða í opin­berri eigu (þar sem inn­flytj­enda­fjöl­skyldur búa gjarna). Fjár­hags­að­stoð til þeirra sem hyggj­ast flytja í gettó­hverfi verði lækkuð, í því skyni að gera eft­ir­sókn­ar­verð­ara að setja sig ann­ars staðar niður. Þeir sem njóta styrks til nýað­fluttra (aðlög­un­ar­styrkur) fái ekki að setj­ast að í gettóum, styrk­ur­inn verði þá felldur niður.

Mörg fleiri atriði eru í áætlun stjórn­ar­innar en það sem lang mesta athygli og umræður hefur vakið er sú til­laga að strang­ari refs­ing, nánar til­tekið tvö­föld refs­ing, liggi við brotum sem framin eru í gettóum (eða á svæðum sem lög­reglan til­greinir) en í öðrum hverfum eða bæj­ar­hlutum. Það skiptir ekki máli hvar sá brot­legi er búsettur, heldur hvar hann fremur afbrotið. Þetta telja margir sér­fræð­ingar sem fjöl­miðlar hafa rætt við algjör­lega úti­lokað að geti stað­ist, refs­ing geti ekki verið strang­ari vegna brots sem framið er t.d í Mjølnerpar­ken en sams­konar brots í Gentofte (sem ekki er gettó). Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske lýsti Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra undrun sinni á því að þetta atriði skyldi vekja svo mikla athygli. Margir þing­menn hafa lýst stuðn­ingi við fyr­ir­ætl­anir stjórn­ar­innar en efast um þetta til­tekna atriði. Flestir virð­ast á einu máli um að nauð­syn­legt sé að grípa til ráð­staf­ana til að snúa við blað­inu. Allt sem reynt hafi verið til þessa hafi reynst gagns­lítið en ef látið verði reka á reið­anum vaxi vand­inn og verði að lokum óleys­an­legur Gordions­hnútur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár