Hrífandi bók um huldufólksbyggðir

Bókmennta­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um bókina Huldu­heimar – Huldufólks­byggð á Íslandi eftir Símon Jón Jóhannsson.

Dverghamrar. Foss á Síðu í baksýn
Dverg­hamrar. Foss á Síðu í bak­sýn Mynd: Ívar Gissurarson

Hulduheimar – Huldfólksbyggðir á Íslandi

Símon Jón Jóhannsson tók saman.

Ljós­myndir: Ívar Gissurarson o.fl.

Kortagerð: Guðjón Ingi Hauksson.

Ísland er óþrjótandi uppspretta þegar kemur að því að upplifa landið og hið sérstæða samband mannsins við það. Hér á landi hefur þetta samband tekið á sig sumpart sýnilegri myndir en í nágranna­löndum okkar, hugsanlega vegna þess hvernig það var numið – hér kom maðurinn að náttúru sem var ólík flestu því sem hann þekkti í öðrum löndum og hér var náttúran kvikari og óútreiknanlegri en maðurinn þekkti til annars staðar. Eldgos og jarð­skjálftar kölluðu á skýringar og líklegt er að margt annað – til dæmis sérstök náttúru­vætti – hafi kallað eftir túlkun sem talist gæti rökrétt og eðlileg.

Það er kannski í slíku ljósi sem ber að skoða álfatrúna og þá vissu, að hér fyrir­fyndust sérstakar álfa­byggðir og meira að segja álfa­kirkjur, stundum í nánd við bæi og byggðir mannanna, en líka faldar í afdölum og á afskekktum stöðum. Um álfa hefur það verið sagt að þeir séu ívið minni að vexti en við mennirnir, beri sig betur og glæsilegar, séu vel tilhafðir og klæðist fallegum og litríkum fötum, hafi yndi af fögrum söng og þokka­fullum dansi, að híbýli þeirra séu yfirleitt glæsilegri og tilkomu­meiri en manna­bústaðir og umfram allt snyrtilegri. Lýsing okkar Íslendinga á álfum er sennilega það sem við komum næst sjálfs­gagnrýni.

Það er því ekki úr vegi að hampa lítilli og elskulegri bók sem komið hefur út fyrir skemmstu. Hún heitir Huldu­heimar. Huldufólks­byggðir á Íslandi og fjallar um álfa­byggðir þessa land í skipulegri fram­setningu þjóð­fræðingsins Símonar Jóns Jóhannessonar þar sem hann fer með lesandann hringinn í kringum landið og lýsir rúmlega áttatíu stöðum þar sem álfar eiga heima – að því er munnmæli, sögur, sagnir, fjöl­miðlar og aðrar heimildir kveða á um. Hver slíkur staður fær einn kafla þar sem Símon Jón gerir grein fyrir því sem þekkt er um hann, hann er einnig merktur á læsilegu korti sem Guðjón Ingi Hauksson hannaði; auk þess sýna greinar­góðar ljós­myndir Ívars Gissurar­sonar staðinn og umhverfi hans. Þeim ferða­manni sem leggur á sig hringferð um landið til að heiðra álfa landsins með heimsókn á þannig ekki í neinum vanda með að rata á réttan stað.

Það vekur athygli, að álfa­byggðir virðast dreifast sæmilega jafnt um landið. Þannig er að finna 9 staði á Reykjanesi og höfuð­borgar­svæðinu, 13 staði á Vestur­landi og 8 á Vestfjörðum, 20 á Norður­landi, 9 á Austur­landi og loks 20 á Suður­landi. Það virðist því augljóst að álfum hefur tekist ívið betur til með sína byggða­stefnu en okkur mann­fólkinu og er það vissulega umhugsunar­vert. Þá skal nefna að í bókinni er einnig að finna fróðlegan Inngang um huldufólk og eigin­leika þess og í bókarlok er sérstakur kafli um kross­götur, en á slíkum geta útsjónar­samir menn náð sér í ýmsar velgjörðir og auðæfi svo fremi það sé gert á réttum tíma. Hvaða tími það er, geta útsjónar­samir komist að með því að blaða í bókinni hans Símonar Jóns.

Huliðsheimar – Huldufólks­byggðir á Íslandi hvetur sannarlega til að fara hringinn um landið og kynnast betur hinum leyndardóms­fullu álfum. Það getur svo sannarlega verið ferðinnar virði, tala nú ekki um ef það getur orðið til þess að kynslóðir treysti böndin sín á milli og upplifi að heimurinn er kannski aðeins stærri en bara sá sem sést með berum augum. Huliðsheimar. Huldufólks­byggðir á Íslandi hvetur til þess, hún er skrifuð af fordóma­leysi og hispurs­leysi sem ber ekki einasta vott um virðingu fyrir efninu heldur staðgóða þekkingu líka.

Að lokum skal sögð dálítil saga sem gerist á einum þeirra staða sem sagt er frá í bókinni, Álfhólnum við Álfhólsveg sem er örugglega ein þekktasta og umtalaðasta huldufólks­byggð á Íslandi – og örugglega sú álfabyggð sem oftast hefur verið sýnd erlendum ferða­mönnum. Ónefndur móðurmáls­kennari nýbúa­barna fór gjarnan með bekkinn sinn upp að Álfhól og sagði þeim söguna af aldur­hnignum álfi, sem bjó nú einn í hólnum því manna­byggðir hefðu þrengt svo að byggð álfanna að þeir hefðu allir hrökklast á brott. Nema þessi eini aldni álfur, sem hélt tryggð við sína heima­byggð, þótt nú væru að renna á hann tvær grímur og allsendis óvíst að hann myndi haldast við öllu lengur. Þegar þarna var komið sögunni hjá kennaranum þoldi einn nemandinn ekki lengur við. Hann var barn flótta­fólks sem leitað hafði hælis hér á landi og vissi hvað það var að hrekjast burtu úr sinni heima­byggð. Hann lagðist á magann og hrópaði niður í þrönga glufu í steininum: „Ekki fara, elsku álfamaður, vertu kyrr! Ekki fara!“

Bók Símonar Jóns um huldufólks­byggðir á Íslandi er ávísun á þessa samhygð milli fólks og manna og á sannarlega erindi í okkar samfélag og tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár