Minnst 39 látnir eftir skotárás á næturklúbb í Tyrklandi

39 eru látnir eftir skotárás á nætur­klúbbinn Reina í Istanbúl í Tyrklandi í gærkvöldi. Lögregla hefur greint frá því að líklega hafi einn byssu­maður verið að verki. Þegar hefur verið borin kennsl á 21 fórnar­lamb og eru 15 þeirra erlendir ríkis­borgarar. Á sjöunda tug til viðbótar slasaðist. Árásar­maðurinn gengur enn laus og stendur yfir umfangs­mikil leit af honum. Samkvæmt fréttum erlendra miðla voru á bilinu 500-700 manns staddir á nætur­klúbbnum að fagna áramótunum.

Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sendi frá sér yfir­lýsingu vegna árásarinnar í morgun. Þar sagði hann að tyrkneska þjóðin myndi berjast til endaloka gegn árásum hryðjuverka­hópa og þeirra sem stæðu að baki þeim. „Þeir eru að reyna að skapa ringul­reið, draga úr okkar fólki og stuðla að ójafnvægi í landinu okkar með viðurstyggilegum árásum sem beinast gegn almennum borgurum[...]Við munum halda ró okkar sem þjóð, standa enn fastar saman og aldrei gefa eftir gagnvart svona skítugum leikjum.“

Hægt er að fylgjast með live-bloggi The Guardian um málið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár