Hjaltalín getur ekki fengið millifærslur frá bresku fyrirtæki vegna gráa listans

Breskt fyr­ir­tæki sagði umboðs­manni hljóm­sveit­ar­innar Hjalta­lín að Ísland væri eitt þeirra landa sem fyr­ir­tækið ætti ekki að milli­færa til, vegna aðgerða til að sporna við pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Hljómsveitin Hjaltalín gat ekki fengið bankamillifærslu frá Bretlandi vegna veru Íslands á gráa lista FATF.
Hljóm­sveitin Hjalta­lín gat ekki fengið banka­milli­færslu frá Bret­landi vegna veru Íslands á gráa lista FATF. Mynd: Aðsend mynd

Starfs­maður dreif­ing­ar­fyr­ir­tækis í Bret­landi veitti umboðs­manni hljóm­sveit­ar­innar Hjalta­lín þau svör að Ísland væri eitt af lönd­unum sem fyr­ir­tækið ætti ekki að milli­færa til vegna aðgerða til þess að berj­ast gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Steinþór Helgi Arn­steins­son umboðs­maður hljóm­sveit­ar­innar greindi frá þessu á Twitter í dag. Í sam­tali við Kjarnann segir hann að Hjalta­lín hafi átt inni pen­ing hjá þessu til­tekna fyr­ir­tæki, en fyr­ir­tækið hafi verið að upp­færa kerfin hjá sér og því hafi hann þurft að setja aftur inn ban­ka­upp­lýs­ingar sveit­ar­innar.

Það reynd­ist hins vegar ekki hægt, segir Steinþór. Að gefa upp íslenskan banka­reikn­ing var ein­fald­lega ekki í boði, þrátt fyrir að hægt væri að velja banka­reikn­inga í ríkjum á borð við Afganistan og Sýrland. Þegar skýr­inga var leitað bár­ust þau svör sem nefnd eru hér að ofan.

Steinþór segir að hljóm­sveitin muni sækja pen­ing­ana eftir öðrum leiðum en banka­milli­færslu. Hann hendir gaman að mál­inu, birtir mynd af sveit­inni og spyr: „Lítum við út eins og hryðju­verka­menn, Hr. Brown?” eins og fjöldi Íslend­inga gerði um árið.

Ísland hefur verið á gráa lista Financial Action Task Force (FATF) frá því í októ­ber í fyrra og greint hefur verið frá því að dæmi séu um að greiðslur til íslenskra við­skipta­banka- eða við­skipta­manna þeirra hafi taf­ist af þeim sökum, sem og að erlendir bankar hafi alfarið hafnað því að hafa milli­göngu um greiðslur til og frá land­inu, eins og virð­ist til­fellið í sam­skiptum Hjalta­lín við breska fyr­ir­tækið.

Stjórnvöld búast við því að losna af listanum í október

Á alls­herj­ar­fundi FAFT í júní­mán­uði var nið­ur­staða sér­fræð­inga­hóps sem hefur metið þær úrbætur sem íslensk stjórn­völd hafa unnið að til þess að losna af gráa list­anum væri lokið með full­nægj­andi hætti.

Ferlinu er þó ekki alveg lokið, því sam­kvæmt yfir­lýs­ingu stjórn­valda um málið er búist við því að full­trúar þessa sama sér­fræð­inga­hóps komi til Íslands í byrjun sept­em­ber í vett­vangs­at­hugun, til þess að stað­festa árang­ur­inn.

Ef vett­vangs­at­hug­unin stað­festir árangur Íslands varð­andi þær úrbætur sem farið var fram á má gera ráð fyrir að lögð verði fram til­laga um að Íslands verði tekið af gráa list­anum á fundi sem ráð­gert er að halda í októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár