Norðmenn hagnast á stríði og orkukrísu

Hrávöru­verð hefur hækkað hratt á síðustu mánuðum, meðal annars vegna stríðsins í Úkraínu og orku­krísunni sem því hefur fylgt. Norðmenn hafa hagnast mikið á þessum hækkunum, en nýtt met var sett í virði olíu-, gas-, og álút­flutnings frá landinu í mars.

Stór hluti tekjuaukningar norska útflutningsgeirans er tilkominn vegna hækkana í orkuverði.
Stór hluti tekju­aukn­ingar norska útflutn­ings­geirans er til­kom­inn vegna hækk­ana í orku­verði. Mynd: EPA

Útflutnings­tekjur Norðmanna af olíu, jarðgasi, fiski og áli náðu nýjum hæðum í mars, þar sem heims­markaðsverð á þessum vörum hefur hækkað hratt frá innrás Rússlands í Úkraínu. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá norska blaðinu Dagens Næringsliv.

Blaðið vísar í nýjar útflutnings­tölur frá norsku hagstofunni (SSB) sem birtust í gærmorgun, en þar segir að heildar­virði útflutnings frá landinu hafi aukist um tæpan helming á milli mánaða. Auk þess segir hagstofan að vöru­viðskipta­jöfnuður, sem er útflutningur að frádregnum innflutningi, hafi aldrei verið meiri.

Verðhækkanir drífa tekjuaukningu

Samkvæmt Dagens Næringsliv er þessi aukning tilkomin vegna gríðarlegra verð­hækkana á hrávörum, sem Noregur flytur út. Þar má helst nefna olíu, sem hefur hækkað mikið í verði í kjölfar þess að Banda­ríkin og Kanada hafa bannað innflutning á rússneskri olíu sem hluti af refsiaðgerðum vegna innrásarinnar í Úkraínu. Evrópu­sambands­lönd íhuga einnig að gera slíkt hið sama innan skamms.

Sömuleiðis hafa aðildar­ríki Evrópu­sambandsins reynt að draga úr innflutningi á jarðgasi frá Rússlandi og leita þau nú að öðrum leiðum til að sinna orku­þörfinni sinni. Þrátt fyrir það er aukningin á útflutnings­tekjum Norðmanna á jarðgasi einungis vegna verð­hækkana á vörunni, þar sem útflutt magn þeirra til aðildar­ríkja sambandsins er nú þegar í hámarki og hefur ekki getað aukist meira þrátt fyrir aukna eftir­spurn.

Myndin hér að ofan sýnir verðmæti útfluttra var frá Noregi á síðustu tveimur árum. Í síðasta mánuði nam það 226,3 milljörðum norskra króna, eða um 3,300 milljörðum íslenskra króna. Útflutningurinn á jarðgasi stóð undir rétt tæpum helmingi af þessum tekjum í mars.

Líka fiskur og ál

Norski orku­geirinn er þó ekki einn um að hafa hagnast á miklum verð­hækkunum síðustu mánaða, en einnig má sjá miklar hækkanir í virði útflutnings annarra vara. Þeirra á meðal er ál og álafurðir, en útflutnings­virði þeirra hefur aukist um 78 prósent á milli mánaða í landinu vegna verð­hækkana.

Sömuleiðis var nýtt met slegið í síðast mánuði í útflutnings­verðmæti fisks og fiskiafurða, þrátt fyrir að útflutt magn á fiski hafi dregist saman um 12 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. Aukningin var fyrst og fremst tilkomin vegna mikilla verð­hækkana á norskum laxi, en hann er nú orðinn um þriðjungi dýrari en hann var í fyrravor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár