ASÍ sendi bréf á peningastefnunefnd og varaði við stórfelldum vaxtahækkunum

Forseti ASÍ segir að hækkun vaxta muni hafa í för með sér hreina kjara­skerðingu almennings. Peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans kynnir vaxta­ákvörðun á morgun. Greiningar­aðilar spá 0,75 prósentu­stiga hækkun.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, forseti Alþýðu­sambands ÍSlands (ASÍ), hefur sent bréf á alla þá sem sitja í peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands þar sem hún varar við því að nefndin ráðist í stór­felldar vaxta­hækkanir til að bregðast við aukinni verðbólgu. Peninga­stefnu­nefndin mun tilkynna um vaxta­ákvörðun sína á morgun, en greiningar­deildir tveggja stærstu banka landsins, Lands­bankans og Íslands­banka, spá því að stýri­vextir verði hækkaðir um 0,75 prósentu­stig. Gangi sú spá eftir munu stýri­vextir verða 2,75 prósent og hafa þá hækkað um tvö prósentu­stig frá því í maí í fyrra. Stýri­vextir á Íslandi yrðu þá með þeim hæstu í Evrópu. Einu löndin sem eru hluti af Evrópska efnahags­svæðinu sem eru með hætti stýri­vexti en það eru Ungverja­land (2,9 prósent) og Tékkland (4,5 prósent).

Í bréfinu er nefndin hvött til þess að huga að öðrum stjórn­tækjum Seðla­bankans í baráttu sinni við verðbólgu, sem mælist nú 5,7 prósent. Helsta ástæða þess að innlend verðbólga hefur aukist er hækkandi fasteigna­verð, sem hækkaði um meira en 15 prósent á síðasta ári.

Drífa segir að vaxta­hækkun muni hafa í för með sér hreina kjara­skerðingu almennings. „Skarpar vaxta­hækkanir hafa þegar þrengt að heimilum landsins. Stór fjöldi lántakenda hefur fært sig yfir í óverðtryggð lán, bæði vegna hagstæðari kjara og fyrir beina og óbeina hvatningu bæði stjórn­valda og Seðla­bankastjóra. Þannig sagðist Seðla­bankastjóri í maí 2020 vonast til að vextir myndu haldast lágir á Íslandi og í ágúst sl. spáði hann nýju framfara­skeiði þar sem minni þörf yrði á vaxta­hækkunum. Fyrstu kaupendur eru í sérstak­lega viðkvæmri stöðu en þeir hafa farið inn á fasteigna­markað við hátt raunverð og lága vexti. Ekki er hægt að halda því fram að kaupendur hafi tekið rangar ákvarðanir enda voru valkostirnir nánast engir í ljósi húsnæðis­skorts. Við þær aðstæður sem uppi eru er ekki einsýnt að hækkun vaxta ein og sér dragi úr verðbólgu. Áhrifin gætu allt eins orðið öfug.“

Hún segir það hafi verið mistök að grípa ekki fyrr til þjóð­hags­varúðar­tækja til að hægja á eftir­spurn eftir húsnæði.

Seðla­bankinn beitti slíkum stjórn­tækjum í fyrra þegar peninga­stefnu­nefnd ákvað að lækka hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls hús­næð­is­lána úr 85 pró­sentum í 80 pró­sent, auk þess sem greiðslu­byrði hús­næð­is­lána ætti almennt að tak­markast við 35 pró­sent. Þar að auki hækk­aði nefndin svo­kall­aðan sveiflu­jöfn­un­ar­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki, sem dregur úr skuld­setn­ingu þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár