Bréf umboðsmanns Alþingis birt of fljótt – Yfirfara verklag í kjölfarið

Bréf umboðs­manns Alþingis til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar var aðgengi­legt í svo­kall­aðri funda­gátt við mót­töku þess en í bréf­inu kom fram að umboðs­maður vildi ekki gera það opin­bert fyrr en það hefði verið afhent og lagt fram á fundi nefnd­ar­innar.

For­sætis­nefnd tók til umfjöll­unar á fundi sínum þann 5. mars ábend­ingu um ótíma­bæra birt­ingu á efni bréfs umboðs­manns Alþingis til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í til­efni af umfjöllun hennar um ákvarð­anir dóms­mála­ráð­herra og verk­lag við vinnslu til­lögu til Alþingis um skipan dóm­ara í Lands­rétt.

Í bréfi umboðs­manns frá því 2. mars síð­ast­lið­inn kom fram að hann mundi ekki gera bréfið opin­bert fyrr en það hefði verið afhent og lagt fram á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Bréfið var hins vegar aðgengi­legt í svo­kall­aðri funda­gátt við mót­töku þess. Fjallað var um efni þess í Frétta­blað­inu 5. mars 2018 áður en það var lagt fyrir nefnd­ina. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur af þessu til­efni ákveðið að gögn, sem ekki varða ein­stök þing­mál sem hún hefur til með­ferðar, verði ekki aðgengi­leg í funda­gátt nema sam­kvæmt ákvörðun hennar.

Þetta kemur fram í svari for­seta Alþingis við fyr­ir­spurn frá Óla Birni Kárasyni um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga og skyldur þing­manna sem birt­ist á fimmtu­dag­inn í síð­ustu viku.

Ekki fengið kæru um „leka“

Óli Björn spurði hvort for­sætis­nefnd hefði fengið kvörtun, kæru eða ábend­ingu vegna „leka“ á trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem þing­nefndir eða þing­menn hafa fengið. Hann spurði jafn­framt hvort for­sætis­nefnd hefði gripið til ein­hverra ráð­staf­ana eða kannað rétt­mæti slíkra kvart­ana.

Í svar­inu segir að frá og með 143. lög­gjaf­ar­þingi hafi for­sætis­nefnd ekki fengið til með­ferðar kæru um leka á trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem þing­nefndir eða þing­menn hafa fengið til umfjöll­unar.

Í svar­inu segir þó að nefndin hafi tví­vegis fjallað um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga í þing­nefndum. Í fyrra sinn hafi það verið í til­efni af ósk for­manns stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þar sem farið var fram á að for­sætis­nefnd tæki til umræðu með­ferð trún­að­ar­gagna í þing­nefndum og aðgengi að gögnum þing­nefnda á lok­uðu vef­svæði þeirra, eða svo­kall­aðri funda­gátt.

Ekki hafi verið vísað til ákveð­ins máls eða upp­lýs­inga. Á fundi for­sætis­nefndar þann 5. febr­úar síð­ast­lið­inn hafi málið verið rætt og sam­þykkt að for­seti mundi, í sam­ráði við skrif­stofu þings­ins og nefnda­svið þess, kanna hvernig best mætti haga aðgangi að fund­ar­gögnum fasta­nefnda, sér­stak­lega með til­liti til þess að hvaða gögnum yrði frjáls aðgangur, um hvaða gögn skyldi ríkja trún­aður sam­kvæmt reglum for­sætis­nefndar og hvaða gögn nefndir ósk­uðu eftir að væru trún­að­ar­gögn um tíma og yrði þá ekki dreift á fundi.

Í seinna skiptið hafi verið um að ræða bréf umboðs­manns Alþingis sem birt­ist á funda­gátt­inni og greint er frá hér að ofan.

Yfirfara allt verklag

Í svar­inu segir enn fremur að af til­efni fram­an­greindu og að frum­kvæði for­seta Alþingis hafi þessi mál verið til sér­stakrar athug­unar innan skrif­stof­unnar og á nefnda­sviði. Meg­in­á­herslan hafi verið á að fylgja skuli fyr­ir­mælum reglna for­sætis­nefndar um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga. Athug­unin hafi jafn­framt beinst að því að yfir­fara allt verk­lag, ekki síst eftir að þing­menn fasta­nefnda hófu að geta sótt fund­ar­gögn nefndar í funda­gátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár