Stefnir á atkvæðagreiðslu um sjálfstætt Skotland í október 2023

Nicola Sturgeon leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins stefnir á að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands á ný næsta haust – með eða án leyfis bresku rík­is­stjórn­ar­innar.

Nicola Sturgeon fyrsti ráðherra Skotlands.
Nicola Sturgeon fyrsti ráð­herra Skotlands. Mynd: EPA

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands og leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins, hefur lagt til að atkvæða­greiðsla fari á ný fram um sjálf­stæði Skotlands þann 19. októ­ber á næsta ári.

Sturgeon til­kynnti í dag að hún myndi rita Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands bréf og óska eftir form­legu sam­þykki rík­is­stjórn­ar­innar fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni, en jafn­framt sagði hún að þrátt fyrir að það fáist ekki muni hún halda áætlun sinni til streitu.

Hæsti­réttur Bret­lands þarf þó að úrskurða um lög­mæti atkvæða­greiðsl­unnar áður en hún færi fram, fáist form­legt leyfi breska for­sæt­is­ráð­herr­ans ekki.

Samkvæmt því sem segir í frétt BBC af þessum vend­ingum, sem hafa legið í loft­inu um hríð, stefnir Sturgeon á að sama spurn­ing verði lögð fyrir skoskan almenn­ing og í atkvæða­greiðsl­unni sem fram fór árið 2014: Ætti Skotland að vera sjálf­stætt land?

Fram kemur í frétt BBC að Sturgeon hafi komið því á fram­færi í dag að ef hæsti­réttur telji að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla verði ekki lög­mæt án form­legs sam­þykkis bresku stjórn­ar­innar, muni hún líta svo á að næstu þing­kosn­ingar í Bret­landi verði í reynd þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði.

Þegar kosið var um málið árið 2014 varð nið­ur­staðan sú að 55,3 pró­sent kjós­enda sögðu nei við sjálf­stæði, en 44,7 pró­sent sögðu já. Kosn­inga­þátt­taka var 84,6 pró­sent.

Fyrir og eftir þá atkvæða­greiðslu var gjarnan rætt um að með þjóð­ar­at­kvæð­inu skyldi málið verða lagt til hliðar um lengri tíma, en sjálf­stæð­is­sinnar hafa á und­an­förnum árum meðal ann­ars sagt að útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, sem naut lít­ils stuðn­ings í Skotlandi, hafi orðið til þess að til­efni sé til að leyfa Skotum að segja hug sinn til sjálf­stæðis á ný.

Nú stefnir Sturgeon á það, sem áður segir, að atkvæða­greiðsla fari fram í októ­ber á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár