Bankasýslan skoðar lagalega stöðu sína og heldur eftir söluþóknun

„Komi í ljós að ein­hverjir sölu­að­ilar hafi ekki staðið undir því trausti sem Banka­sýslan gerði til þeirra mun það hafa áhrif á sölu­þókn­anir til þeirra,“ segir í til­kynn­ingu stjórnar stofn­un­ar­innar. For­stjóri hennar, Jón Gunnar Jónsson, sagði við Stundina í síð­ustu viku að nauð­syn­legt væri að treysta fjár­mála­stofn­un­unum.

Seldur
Seldur 22,5 pró­senta hlutur rík­is­ins var seldur í lok­uðu útboði sem aðeins var ætlað fag­fjár­festum. Efa­semdir eru uppi um að þeir einir hafi fengið að taka þátt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins skoðar nú laga­lega stöðu sína gagn­vart sölu­að­ilum í lok­uðu útboði á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka og ætlar að halda eftir sölu­þóknun í þeim til­vikum þar sem ágallar voru við sölu á bréfum í Íslands­banka. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu stjórnar stofn­un­ar­innar sem birt var í dag. Fjármála-og verð­bréfa­fyr­ir­tækin á Íslandi sem sáu um að selja hluta­bréfin í Íslands­banka voru Lands­bank­inn, Íslands­banki, Fossar mark­aðir, Íslensk verð­bréf og Acro-verð­bréf, áður Íslenskir fjár­festar. 

Fram­kvæmd útboðs­ins hefur sætt harðri gagn­rýni allt frá því að það fór fram en ein helsta gagn­rýnin hefur verið á hverjir fengu að taka þátt. Útboðið var lokað og aðeins ætlað fag­fjár­festum en ekki almennum fjár­festum. Fjár­mála­fyr­ir­tækj­unum sem voru sölu­að­ilar í útboð­inu fyrir hönd Banka­sýsl­unnar var í sjálfs­vald sett að skil­greina fjár­fest­ana.

Segjast ekki mega kanna

Í til­kynn­ing­unni segir að sú flokkun sé það sem fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hafi til rann­sóknar. Stjórnin segir stofn­un­ina …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár