Besti knattspyrnumaður allra tíma látinn

Diego Maradona er látinn, sextugur að aldri.

Argentínska knattspyrnu­goðsögnin Diego Maradona lést af völdum hjarta­áfalls í dag, sextugur að aldri, samkvæmt argentínska frétta­miðlinum Clarín.

Breski miðillinn Daily Mail greindi einnig frá andlátinu, en samkvæmt honum lést Maradona á heimili sínu, tveimur vikum eftir að hafa undir­gengist aðgerð vegna blóðtappa í heilanum.

Maradona, sem spilaði meðal annars með argentínska lands­liðinu í knatt­spyrnu og félags­liðunum Barcelona, Napoli og Sevilla, er víða álitinn hafa verið besti knattspyrnu­maður allra tíma.

Á landsliðs­ferli sínum skoraði hann 34 mörk í 91 leik, en á meðal þeirra var markið sem kallað var „hönd guðs“ og var skorað í átta-liða úrslitum heims­meistara­mótsins árið 1986 gegn enska lands­liðinu.

Maradona átti einnig farsælan feril með liði Napoli, en liðið vann efstu Serie A-deildina tvisvar með hann í farar­broddi. Hann hætti svo með liðinu árið 1991, en sama ár var hann settur í 15 mánaða keppnis­bann eftir að kókaín hafði greinst í lyfja­prófi hjá honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár