Alltaf hætta að ferðast í fjalllendi að vetrarlagi

Nú um helg­ina er spáð góðu veðri og lík­legt að margir ætli að nýta það til úti­vistar. Enn er tölu­verð hætta á snjó­flóðum til fjalla á suð­vest­ur­horn­inu. Ekki er ger­legt að vakta með mik­illi nákvæmni ein­stakar göngu­leiðir með til­liti til snjó­flóða­hættu.

Ský faðma tinda Esjunnar síðdegis í dag.
Ský faðma tinda Esjunnar síð­degis í dag. Mynd: Skjáskot úr vefmyndavél

Það fylgir því alltaf hætta að ferð­ast í fjall­lendi að vetr­ar­lagi. Brött fjöll geta safnað snjó og við ákveðnar aðstæður geta fallið flóð, ýmist af nátt­úru­legum orsökum eða af manna­völdum. Snjóflóð geta verið mis­stór en jafn­vel lítil flóð geta ógnað fólki ef þau til dæmis hrúg­ast upp í giljum eða fara út í sjó. Þá er talað um lands­lags­gildrur. Í flestum til­fellum þegar fólk lendir í snjó­flóðum í óbyggðum þá hefur það sjálft eða ein­hver í hópnum sett flóðið af stað.

Þetta segir Harpa Gríms­dóttir, sér­fræð­ingur á snjó­flóða­vakt Veð­ur­stofu Íslands, í sam­tali við Kjarnann. Hún segir ómögu­legt að vakta með mik­illi nákvæmni ein­stakar göngu­leiðir með til­liti til snjó­flóða­hættu vegna þess að þær geta farið um fjöl­margar mis­mun­andi brekkur.

Á mið­viku­dag lentu skíða­menn í snjó­flóði í Móskarðs­hnúkum. Flóðið var lítið, en óheppi­legar aðstæður urðu þess vald­andi að einn þeirra grófst í árgili og lést. Annað lítið fleka­flóð fór af stað undan skíða­manni á svip­uðum slóðum nokkru síðar. Eins féllu nokkur lítil snjó­flóð í Mosfelli og Skála­felli.

Veð­ur­stofan gerir svæð­is­bundna spá um snjó­flóða­hættu með úti­vi­star­fólk í fjall­lendi í huga. Slík spá er meðal ann­ars gerð fyrir suð­vest­ur­hornið sem er til­rauna­verk­efni er hófst síð­asta vetur. Þar er hætta skil­greind í fimm stigum og tekur spáin bæði til snjó­flóða af nátt­úru­legum orsökum og af manna­völdum.

Snjó­flóða­hætta er metin á alþjóð­legum skala sem inni­felur mat á líkum á flóðum og stærð þeirra fyrir stórt svæði. Ekki er ein­ungis gef­inn upp litur, heldur fylgir spánni texti og tákn sem lýsa aðstæðum betur.

Á mið­viku­dag var snjó­flóða­hætta á suð­vest­ur­horn­inu metin á stigi 2 (gulur – nokkur hætta). Á því stigi er ekki búist við stórum, nátt­úru­legum snjó­flóðum, en minni snjó­flóð geta fallið og fólk getur sett snjó­flóð af stað í bratt­lendi á afmörk­uðum svæðum. Spá um snjó­flóða­hættu er nú á stigi 3 (app­el­sínu­gulur – tölu­verð hætta). Talsvert nýsnævi er til fjalla og hafa flóð fallið af manna­völdum í nýja snjónum.

Snjó­flóða­spáin veitir almenn­ingi upp­lýs­ingar um snjó- og snjó­flóða­að­stæður á ákveðnu svæði og er mjög almenn vegna tak­mark­aðra upp­lýs­inga. „Hún getur því aldrei komið í stað­inn fyrir stað­bundið mat hverju sinni, en hún er eitt af því sem ein­stak­lingar geta nýtt sér til þess að meta sjálfir snjó­flóða­hættu á hverjum stað fyrir sig,“ segir í útskýr­ingum um spána á vef Veð­ur­stof­unnar.

Öruggast að halda sig frá hlíðum þar sem bratti er 30° eða meiri

Í svæð­is­bundnu snjó­flóða­spánni er komið á fram­færi fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum um lag­skipt­ingu snævar og fréttum um snjó­flóð sem fallið hafa á við­kom­andi svæði. Jafn­framt er eðli snjó­flóða­hætt­unnar lýst og hvers konar staði ber helst að var­ast.

Bæta má öryggi umtals­vert með því að halda sig frá hlíðum þar sem bratti er 30° eða meiri. Ef slys hendir er mik­il­vægt að vera með réttan útbúnað til þess að auka lík­urnar á að geta fundið og bjargað félögum sínum úr snjó­flóði: Snjó­flóðaýli, skóflu og stöng.

Svæð­is­spáin er gefin út fyrir norð­an­verða Vest­firði, utan­verðan Trölla­skaga og Aust­firði. Þá var til­rauna­verk­efni um spá á snjó­flóða­hættu á suð­vest­ur­horni lands­ins bætt við á síð­asta ári.

Ástæðan fyrir því að spáin var gerð fyrir þessi þrjú svæði í upp­hafi er sú að þar starfa snjóat­hug­un­ar­menn á vegum Veð­ur­stof­unnar sem aðstoða við vöktun byggðar. Þeir afla gagna um veður og snjóa­lög sem nauð­syn­leg eru við gerð snjó­flóða­spár. Á þessum svæðum er líka stunduð mikil fjalla­ferða­mennska að vetr­ar­lagi.

Fimm gerðir snjóflóðavanda

Í spánni eru skil­greindar fimm gerðir „snjó­flóða­vanda“ (e. avalanche problem) sem geta átt við. Með því er gerð til­raun til að lýsa dæmi­gerðum aðstæðum í snjó og í veðri sem geta leitt til þess að snjó­flóð fellur.

Hinar fimm gerðir snjó­flóða­vanda eru nýsnævi, skaf­snjór, við­var­andi veik lög, votur snjór og snjó­skrið. Fyrir hverja gerð eru skil­greindar líkur á að snjó­flóð falli sem geta verið: Ólíklegt, mögu­legt, lík­legt, mjög lík­legt, full­víst.

Þegar snjó­flóða­spáin er á stigi 2 (gulum) eða hærra er alltaf skil­greind að minnsta kosti ein gerð af snjó­flóða­vanda fyrir við­kom­andi svæði. Lagt er mat á það hvar vand­ann er helst að finna, líkur á að snjó­flóð falli og lík­leg hámarks­stærð snjó­flóða ef þau falla.

Til­gang­ur­inn með skil­grein­ingu á snjó­flóða­vanda er að bæta og ein­falda fram­setn­ingu á svæð­is­bund­inni snjó­flóða­spá og lýsa á ein­faldan hátt vara­sömum snjó­að­stæðum. Alltaf þarf að hafa í huga að spáin er mikil ein­földun á raun­veru­leik­anum og hættur geta leynst víðar en spáin til­greinir.

Nú um helg­ina er spáð góðu veðri og lík­legt að margir ætli að nýta það til úti­vistar. Enn er tölu­verð hætta á snjó­flóðum til fjalla á suð­vest­ur­horni lands­ins. „Snjór sem féll í síð­ustu viku er enn til staðar og getur verið óstöð­ugur við ákveðnar aðstæður,“ bendir Harpa á. Hún segir að eins og alltaf ráð­leggi hún fólki að fara að öllu með gát.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár