Áfram óljóst hver ber ábyrgð á því að flugvallarstarfsmenn flóðlýstu fréttafólk

Þrátt fyrir tilraunir fjölmiðla, auk Blaðamanna­félagsins, til að komast að því hvernig til þess koma að frétta­tökuteymi frá RÚV var flóðlýst við Kefla­víkur­flugvöll í upphafi mánaðarins er það enn óljóst. Isavia vísar nú á ríkis­lögreglu­stjóra.

Fyrir liggur að fréttamenn voru flóðlýstir við Keflavíkurflugvöll í upphafi mánaðar. Hvorki Isavia né ríkislögreglustjóri hafa hins vegar gert grein fyrir því hvernig það atvikaðist.
Fyrir liggur að frétta­menn voru flóð­lýstir við Kefla­vík­ur­flug­völl í upp­hafi mán­aðar. Hvorki Isavia né rík­is­lög­reglu­stjóri hafa hins vegar gert grein fyrir því hvernig það atvik­að­ist. Mynd: Skjáskot/RÚV

Enn er óljóst hvernig á því stendur að starfs­menn Isavia á Kefla­víkur­flugvelli lýstu með bílljósum á frétta­tökuteymi Ríkis­útvarpsins í upphafi mánaðarins og hver ber á því ábyrgð.

Kjarninn óskaði í síðustu viku eftir því að fá skýr svör frá Isavia um hvernig á því stæði að þetta hefði átt sér stað, og hver bæri á því ábyrgð.

Í svari sem barst Kjarnanum í gær segist Isavia vísa öllum fyrir­spurnum um þetta tiltekna mál til embættis ríkis­lögreglu­stjóra, um hafi verið að ræða lögreglu­aðgerð sem embættið beri ábyrgð á og það hafi farið með alla stjórn aðgerða á vettvangi.

Fyrir­spurn Kjarnans var sett fram í því skyni að reyna að upplýsa lesendur miðilsins, í eitt skipti fyrir öll, um það hver bar ábyrgð á því að frétta­menn voru flóð­lýstir af starfs­mönnum Isavia og þannig gert ókleift að mynda það sem þau vildu myndu innan flug­vallar­girðingarinnar.

Isavia sagði starfsmenn hafa fengið fyrirmæli frá lögreglu

Kjarninn sagði, í frétt sem birtist 3. nóvember, frá yfir­lýsingu Isavia vegna málsins. Þar kom fram að lögregla hefði farið fram á það við starfs­menn öryggis­gæslu Isavia að komið yrði í veg fyrir mynda­tökur af lögreglu­aðgerðinni á Kefla­víkur­flugvelli, þegar stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra flutti 15 umsækj­endur um alþjóð­lega vernd til Grikk­lands með leigu­flugi.

„Að mati Isa­via er það ekki hlut­verk örygg­is­gæslu flug­vall­ar­ins að hindra störf fjöl­miðla. Isa­via harmar að það hafi gerst í nótt og biðst afsök­unar á því. Isa­via mun fara yfir þessa fram­kvæmd með lög­reglu,“ sagði í yfir­lýs­ingunni frá Isa­via.

Lögregla sagðist ekki hafa gefið fyrirmæli um að byrgja fréttateymi sýn

Lögreglan og Isavia áttu svo fund á miðvikudaginn í síðustu viku, 9. nóvember. Í kjölfar þess fundar var send út yfir­lýsing, þar sem sagði frá því að við yfirferð á framkvæmd aðgerðarinnar hefði komið í ljós að tilmæli voru ekki nægilega skýr, og að verklag í aðgerðum sem þessum yrði tekið til gagn­gerrar endur­skoðunar til að koma í veg fyrir „óskýr­leika á vettvangi“. Aldrei hefði verið „ætlun aðila að hindra störf fjölmiðla með nokkrum hætti“.

Í kjölfar þess að tilkynningin var send út sendi embætti ríkis­lögreglu­stjóra svo frá sér viðbótar­tilkynningu, sem í sagði: „Það áréttist að lögregla gaf ekki fyrirmæli um að hindra frétta­flutning á fylgdum“.

Blaðamannafélagið telur frekari skýringa þörf

Í svari Isavia til Kjarnans, sem raunar er samhljóða bréfi sem ríkis­fyrirtækið sendi á Blaðamanna­félag Íslands, segir meðal annars að í vinnu Isavia og lögreglu verði áhersla lögð á „skýrt hlutverk starfs­fólks Isavia þannig að aldrei verði nokkur vafi um fyrirmæli lögreglu“.

„Isavia hefur þegar harmað þau mistök sem gerð voru og beðist afsökunar á þeim. Við erum nú sem fyrr reiðubúin til að eiga gott samstarf við fjölmiðla þegar óskað er eftir að sinna störfum á Kefla­víkur­flugvelli,“ segir einnig í svarinu.

Í umfjöllun á vef Blaðamanna­félagsins segir að Sigríður Dögg Auðuns­dóttir formaður félagsins muni kalla eftir fundi með Svein­birni Indriða­syni forstjóra Isavia til þess að ræða málið frekar.

„Að mati BÍ þarfnast þetta frekari skýringa af hálfu bæði Isavia og embættis ríkis­lögreglu­stjóra,“ segir á vef Blaðamanna­félagsins.

Nýjasta svar Isavia til Kjarnans í heild sinni

Isavia vísar öllum fyrir­spurnum um þetta tiltekna mál til embættis ríkis­lögreglu­stjóra enda var um að ræða lögreglu­aðgerð sem embættið ber ábyrgð á og fór með alla stjórn aðgerða á vettvangi.

Þegar rútan kom á Kefla­víkur­flugvöll með lögreglu­fylgd var óskað eftir aðstoð starfs­manna Isavia við að koma rútunni í skjól. Orðið var við beiðninni á vettvangi og var lögregla á öllum stundum upplýst um gang mála.

Starfs­fólk Isavia hefur síðan farið yfir atburðarás málsins og átti fund með fulltrúum embættis ríkis­lögreglu­stjóra. Á þeim fundi var farið yfir samskipti lögreglu og starfs­fólks Isavia. Ákveðið var að setja í gang sameiginlega vinnu beggja aðila þar sem ferli og verklag í aðgerðum af þessu tagi er tekið til endur­skoðunar. Áhersla verður þar lögð á skýrt hlutverk starfs­fólks Isavia þannig að aldrei verði nokkur vafi um fyrirmæli lögreglu.

Isavia hefur þegar harmað þau mistök sem gerð voru og beðist afsökunar á þeim. Við erum nú sem fyrr reiðubúin til að eiga gott samstarf við fjölmiðla þegar óskað er eftir að sinna störfum á Kefla­víkur­flugvelli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár